Læknablaðið - 15.04.2005, Qupperneq 53
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ELDRI LÆKNAR
Povl Riis í 49.
Íslandsheímsókn sinni
Á efstu myndinni stendur Povl Riis undir styttu af lífverði Danadrottningar sem
Lœknablaðið fékk að gjöffrá danska lœknablaðinu. Til vinstri er Tómas Árni Jónasson
að rekja feril Povls og hér að ofan fylgjast fundargestir með, meðal annars Ingvar E.
Kjartansson, Tómas Helgason og Páll Gíslason.
Povl Rns er íslenskum læknum að
góðu kunnur, hann stýrði danska
læknablaðinu um árabil, hefur tekið
þátt í ýmsum félagsmálum lækna og
lagt hönd á plóg við leit að svörum
við siðfræðilegum álitamálum. Povl
gerði stuttan stans á íslandi nú í
mars, að eigin sögn var það í 49. sinn
sem hann steig fæti á íslenska jörð og
taldi hann að þessi tíðni heimsókna
hans til landsins gæfi sterklega til
kynna hversu illa haldinn hann væri
af íslandsveirunni sem væri nota
bene ólæknandi. Hann er annars eins
og unglamb á vori, fæddur 1925.
Læknafélag fslands og öldunga-
deild félagsins buðu sameiginlega til
fundar með Povl í húsakynnum lækna-
félaganna að Hlíðasmára 8. Povl
ræddi stuttlega um sín hugðarefni sem
snúast nú æ meira um eldri borgara,
einkum eldri lækna, og hvernig koma
megi í kring farsælli skilum milli vinnu-
dags og eftirlaunaaldurs. Hann sýndi
fram á hinar afgerandi lýðfræðilegu
breytingar sem eru í deiglunni, jarð-
arbúum fjölgar hratt, tala eftirlauna-
fólks stígur og öll viðmið fara á flot. Á
Vesturlöndum og í Skandinavíu verð-
ur fyrst vart þeirra breytinga í mann-
fjöldapýramídanum að hann gildnar
efst, eldri borgarar sem voru ekki alls
fyrir löngu að fjölda 1:4 miðað við
starfandi vinnukraft eru nú 1:2,5. Og
í Danmörku er þegar farið að örla á
skorti á sérfræðilæknum, 700 stöður
lausar, og spár segja að árið 2020 muni
skorta mannskap í 2000 slíkar stöður.
Stór hluti starfandi danskra lækna er
sirka 58 ára og eftirlaunaaldur þeirra
er við 63 ára aldur. Þetta er til marks
um stórfelldar breytingar á aldurs-
samsetningu þjóðar og fjölda á vinnu-
markaði.
Povl benti á nokkrar leiðir til að
milda þetta: afnema föst aldursviðmið
til eftirlauna en halda eftirlaunarétti
við ákveðinn aldur þannig að 63 ára
gamlir læknar hefðu rétt til að velja að
halda vinnu sinni að gefnum skilyrð-
um, setja á laggirnar nýjar launaðar
stöður, til dæmis 15-10 stundir í viku
og eins til tveggja ára vinnusamninga.
Hann rakti helstu niðurstöður skoskr-
ar rannsóknar meðal lækna um vilja
þeirra til að vinna eftir að eftirlaun-
aaldri er náð. - Gestir fundarins voru
ánægðir með boðskap Riis og köpp-
uðu honum lof í lófa. Meðfylgjandi
myndir voru teknir við umrætt tæki-
færi.
VS
Læknablaðið 2005/91 369