Læknablaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 58
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ARFUR JÓNS STEFFENSEN
í geymslunni í Bygg-
görðum fer ágœtlega um
muni safnsins meðan þeir
bíða þess að hœgt sé að
sýna þá almenningi.
svo stöddu. Jafnframt er stjórninni falið að biðja
Seltjarnarnesbæ að halda lóðinni til haga. Þetta
gerir stjórnin en ári síðar kemur í ljós að bæjaryfir-
völd á Seltjarnarnes túlka bréf félagsins þannig
að fallið sé frá byggingu safnhúss á lóðinni. Þess í
stað er samþykkt í bæjarstjórn að reisa hjúkrunar-
heimili á lóðinni.
Síðan hefur raunar ekkert áþreifanlegt gerst í
málefnum safnsins. Að vísu gufuðu áætlanir um
byggingu hjúkrunarheimilis á þessum stað upp og
núverandi bæjarstjóri, Jónmundur Guðmarsson,
staðfesti í samtali við blaðið að lóðin væri enn til
reiðu ef einhver vildi byggja á henni safnhús.
Lækningaminjasafnið er hluti af Þjóðminjasafn-
inu og það ætti að vera í verkahring þess að reisa
hús yfir það. Staðan er sú að þótt Nesstofa sé hið
mætasta hús og merkileg bygging þá er hún ekki
vel fallin til sýninga á öðru en sjálfri sér. Nútíminn
gerir kröfur til þess að rúmt sé um sýningargripi og
safngesti og þess vegna var efnt til áðurnefndrar
samkeppni um byggingu húss sem rúmað gæti
sýningarsal, bókasafn og vinnuaðstöðu fyrir fræði-
menn.
En hver á að byggja húsið? Um það eru deild-
ar meiningar. Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminja-
vörður vill ekki kannast við að neitt standi upp á
Þjóðminjasafnið í þessu efni. Hlutverk og skyldur
safnsins takmarkist við að varðveita eigur safnsins
og halda við og starfrækja Nesstofu. Safnið hefði
enga fjármuni til að standa í nýbyggingum. í spjalli
Hægt að byrja að byggja strax
Höfundar verðlaunatil-
lögunnar með líkan af
henni uppi á vegg, Ásdís
Helga Agústsdótlir (tv.) og
Sólveig Berg Björnsdóttir.
Eins og fram kemur í greininni hér að framan var
efnt til samkeppni um hönnun sýningarhúss fyrir
lækningaminjasafnið á árununt 1997-1998. Tvær
konur úr stétt arkitekta fengu fyrstu verðlaun en
þær voru Asdís Helga Ágústsdóttir og Sólveig
Berg Björnsdóttir í Yrki
ehf. 1 umsögn dómnefnd-
ar um tillögu þeirra segir
meðal annars:
„Tengsl byggingarinnar
við núverandi hús og land
eru sérstaklega fruntleg og
hugvitsamleg. Byggingin
er stílhrein og gott fram-
lag nútíma arkitektúrs
sem hluti af mannvirkjum
staðarins. Hún er sam-
sett úr tveimur formunr,
einfaldur rétthyrningur
stendur sem útvörður að
útivistarsvæðinu annars
vegar og ávalur, ljós sal-
urinn ásamt anddyri snýr
að hinu manngerða urn-
hverfi hins vegar. Tilraun
höfunda að tengja útivist-
arsvæði inn á þak bygg-
ingarinnar og um leið
draga úr áhrifum hennar
af hlaði Nesstofu er látlaus og sannfærandi, auk
þess sem þetta gefur byggingunni aukið vægi í
umhverfinu, án þess þó að draga úr mikilvægi
þessa nýja húss.“
Húsið er tæplega 850 fermetrar að grunnfleti.
Þar af er aðalsýningarsalur tæplega 500 fermetrar
en auk þess eru í húsinu minni salir sem nota rná
til sýninga og fyrirlestrahalds. Einnig er gert ráð
fyrir bókasafni og vinnuaðstöðu fyrir fræðimenn.
Á hluta þaksins er hægt að hafa kaffihús og einnig
settu höfundar fram hugmynd um að koma þar
fyrir lyfjagrasagarði.
Þær Ásdís og Sólveig sögðu í spjalli við blaða-
mann að þeim þætti vænt urn þessa byggingu og
vonuðu að hún risi sem fyrst. Ekki væru þær þó
alltof bjartsýnar um að af því yrði. Þær eru höf-
undar Saltfisksetursins í Grindavík sem hefur
slegið í gegn og sögðu þær að aðsóknin að því
húsi hefði farið fram úr björtustu vonum bæjar-
stjórnarmanna þar syðra. Engin ástæða væri til að
ætla annað en að lækningaminjasafn í fallegu liúsi
hefði minna aðdráttarafl.
Ekkert ætti að vera því til fyrirstöðu að hefjast
hand við bygginguna því allar teikningar eru til af
henni. Kostnaðurinn stendur eflaust í mönnum.
Þó er húsið ekki ýkja dýrt. Áætlun um byggingar-
kostnað hljóðaði upp á 130 milljónir króna í nóv-
ember síðastliðnum en eflaust yrði endanlegur
kostnaður eitthvað hærri ef að líkum lætur.
374 Læknablaðið 2005/91