Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 65

Læknablaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 65
UMRÆÐA & FRETTIR / IÐORÐ 175 Meira nöldur Á milli ára Loks má nefna að það hefur verið býsna áber- andi undanfarið hjá læknum og læknanemum að talað er um fjölgun eða fækkun í hópi tilfella „á milli ára” eða „á milli sjúklingahópa”. Samkvæmt íslenskri orðabók Eddu er atviksorðið milli notað um hreyfingu frá einum staö til annars (skipið siglir milli staða) og tiltekna afstöðu (bærinn stendur milli hæðanna) eða um tíma (vikan milli jóla og nýárs). Ekkert af þessu á hér við. Hvorki er nokk- ur afmarkaður tími milli ára, né eru sjúklingar milli sjúklingahópanna sem til rannsóknar eru. Holdastuðull Hugtakið body mass index er meðal annars notað í næringarfræði til að gefa til kynna hvort líkamsþyngd er hæfileg miðað við líkamslengd. Líkamsþyngdarstuðull er það heiti sem oftast hefur verið gripið til. Stuðullinn er þannig reikn- aður að líkamshæð í metrum í öðru veldi (m2) er deilt í líkamsþyngdina í kflóum (kg/m2). Stuðull á bilinu 20-25 kg/m2 lýsir kjörþyngd og gefur til kynna að orkuneysla og orkueyðsla séu í jafnvægi, þannig að hætta á hinum svonefndu ofneyslusjúk- dómum sé í lágmarki. Undirritaður heyrði nýlega notað heitið holdastuðull um þetta fyrirbæri og hreifst af. Holdastuðullinn gefur augljóslega til kynna í hvernig holdum menn séu, þó „góð hold” samkvæmt íslenskri málvenju, séu ekki endilega heilbrigðisfræðilega ákjósanleg. Rifja má svo upp að nafnorðið hold hefur fleiri en eina merkingu. I Islenskri orðabók Eddu er það sagt merkja kjöt, en dæmin, sem tekin eru um notkun þess í orðasamböndum, sýna að það nær einnig til fituvefja. Að vera í góðum holdum merk- ir að vera feitur og að ganga úr holdum merkir að leggja af megrast. Unknown primary Sigurður Björnsson, krabbameinslæknir, hringdi og sagðist vera að fást við enska heitið unknown primary í samsetningunni metastasis from un- known primary [site]. Honum fannst þau íslensku heiti, sem fram hafa komið, heldur stirðleg: meinvarp frá óþekktu frumæxli og meinvarp frá óþekktu frumseti. Hann lagði til þrísamsetta heitið dultogamein. Kvenkynsnafnorðið dul táknar leynd. í sam- setningum er það gjarnan notað um það sem er leynilegt, leyndardómsfullt eða yfirnáttúrulegt, svo sem dulmál og dulspeki. Samkvæmt Islenskri orða- bók Eddu merkir karlkynsnafnorðið togi þráður, kemba, ullarkemba, lyppa. Orðasambandið af sama toga er notað til að tákna það sem er af sama uppruna eða sama eðlis. Hvorugkynsnafnorðið mein er svo sjúkdómur eða veikindi, oft notað í samsettum heitum til að tákna staðbundna mein- semd frekar en almenn veikindi. Dultogamein er þannig meinsemd af óþekktum uppruna (strangt til tekið ekki endilega krabbamein!). Dulkrabbamein I kjölfar þessarar umræðu rifjaðist upp að áður hefur verið fjallað um fyrirbærið occult carcinoma, klínískt ógreint frumœxli með greindum meinvörp- um. Bjarni heitinn Bjarnason, fyrrum formaður Krabbameinsfélags Islands, bjó á sínum tíma til heitið huldukrabbamein (Læknablaðið 2000; 86: 64), undirritaður setti fram tillöguna dulkrabba- mein í tengslum við umfjöllunina (Læknablaðið 2000; 86: 711) og íðorðasafn lækna geymir heitið leynikrabbamein (Læknablaðið 2000; 86: 803). Ef til vill má sameina tillögur okkar Sigurðar í heitinu dulkrabbamein til að nota um frumkrabbamein á óþekktum stað. Agonist Jóhann M. Lenharðsson, lyfjafræðingur, sendi tölvupóst og sagðist um árabil hafa notað heitið örvi sem þýðingu á agonist þegar um væri að ræða efni sem verkaði örvandi um viðtaka, viðtakaörvi. Til samræmis hafði hann sett í notkun heitið and- örvi um efni sem hindraði verkun með því að bindast viðtaka. Það heiti sagði hann þó ekki hafa fengið góðar undirtektir. í staðinn hefðu komið fram heitin blokki, um efni sem korna í veg fyrir áverkun, hemill, um efni sem draga úr verkun ens- íms, og loki, um efni sem loka jónagöngum. Þessu er hér með komið á framfæri. Þetta eru allt lipur heiti, en undirritaður getur þó ekki látið hjá líða að lýsa þeirri skoðun sinni að verki sé einnig lýsandi og gott almennt heiti fyrir agonist, efni sem verkar á viðtaka. Antagonist Ólafur Ingimarsson, læknir, sendi tölvupóst frá Svíþjóð og stakk upp á heitinu verji (sbr. Rómverji) sem samheiti fyrir efni sem koma í veg fyrir verkun um viðtaka. Hann sá þannig fyrir sér heitið viðtaka- verji til að nota um efni sem verja viðtaka fyrir verkun annarra efna. Æskilegt væri að „prófa“ þessi heiti í talmáli og textum. Jóhann Heiðar Jóhannsson johannhj@landspitali.is Jóhann Heiðar er læknir á Landspítala Hringbraut. Læknablaðið 2005/91 381
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.