Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.12.2014, Page 63

Fréttatíminn - 05.12.2014, Page 63
Í fjaðrasófum grænum Þ Það rifjuðust upp góðar stundir æskuár- anna í bjúkkanum með afa á Háteigs- veginum þegar glæsibílabók Arnar Sigurðssonar, Króm og hvítir hringir, rak á fjörur mínar. Forsíðumyndin er af alvöru kagga sjötta áratugarins, þegar bílar voru flottastir, Buick 1956. Bíllinn ber með sér þungbúinn þokka, tvílitur með hvítum dekkjahringjum, krómaður í bak og fyrir – og hardtop. Það þótti flottast, enginn gluggapóstur. Stýri, mælaborð og sæti samlit. Bogin framrúðan innrammaði stælinn. Afi átti einmitt sambærilegan dreka, Buick 1954. Bílinn keypti Eimskipafélagsskip- stjórinn nýjan, sigldi bæði á Ameríku og Rússland og lá ekki á skoðunum sínum þegar hann bar stórveldin saman. Ég hefði heldur aldrei séð afa fyrir mér á Moskvitch – og varla Volgu, þótt víga- legri væri en Moskinn. Bjúkki var það af stærstu gerð, hvítur með grænum undirtóni, grænn að innan, sætin græn, grænt mælaborð, grænt stýri. Sjálfskipt- ur með vökvastýri – sem þá hét páver- stýri upp á amerísku – og leið áfram, jafnvel á holóttum malarvegum þess tíma. Bekkur frammí og rúmaði marga – en yfirleitt sátu þar bara amma og afi, hann með hatt og hún líka. Hár hennar nýlagt undir hattinum, vel lagaðar bylgj- urnar högguðust ekki. Afturí, á öðrum sætisbekk, sátu farþegar þeirra. Þar var nánast hægt að koma fyrir eins mörgum börnum og voru á staðnum. Það var snúra á bakhlið framsætanna, vildu menn hífa sig upp úr fjaðrasófum grænum – og kveikjari jafnt afturí og frammí. Þetta var áður en það var talið óheppilegt að reykja með börn í bílnum – en ég er ekki að segja að það hafi verið stundað í bjúkkanum hans hafa. Hann var hættur að reykja á þessum árum – og aldrei reykti amma, datt það ekki í hug. Reykingar voru fyrir karla – og vindlar voru stundum púaðir á Háteigsveginum. Í fikti náði ég einu sinni að brenna mig á kveikjaranum í bjúkkanum og reyndi engar hunda- kúnstir með það apparat framar. Flottast var samt þegar afi setti bjúkk- ann í gang og bakkaði út úr bílskúrnum upp bratta brekku því skúrinn stóð mun neðar en gatan. Startarinn var undir bensíngjöfinni og því hreinlega allt gefið í botn þegar drekinn var ræstur. Átta strokka rokkurinn tók vel við sér, rumdi þegar bensínið sprautaðist inn. Hvert start tók því sinn slurk og án efa annað eins þegar kafteinninn bakkaði upp brekkuna – en flott var það og skipti kannski ekki öllu því þetta var löngu fyrir olíukreppuna illræmdu. Buick 1954 var ekki hannaður með sparneytni í huga. Pabbi átti líka svona ameríska fleka eins og Örn lýsir í bók sinni um krómdrekana með hvítu hringina – og víst voru hvítu hringirnir á dekkjunum þvegnir með stálull á sólardögum, þegar bónað var. Fyrir mitt minni veit ég að hann átti Buick blæjubíl, árgerð 1949, en sú árgerð boðaði nýja tíma hjá þessum fornfræga bílaframleiðanda, að því er fram kemur í bók Arnar. Ég man hins vegar eftir Chevrolet 1955 blæjubíl í hans eigu. Sá þótti flottur og komst án efa á íslenskar númeraplötur í gegnum Sölunefnd varnarliðseigna, sem meðal annars seldi notaða bíla sem varnar- liðsmenn á Keflavíkurflugvelli höfðu flutt inn. Örn segir frá því í bók sinni, einmitt þegar hann fjallar um glæsilega Chevrolet bíla af árgerð 1955-57, að hér á landi hafi þessir bílar aðallega verið fernra dyra, enda voru aðrar útfærslur litnar hornauga af þeim starfsmönnum sem úthlutuðu leyfum til bílakaupa. „Þó slæddust nokkrir hardtop- og blæjubílar í gegnum Sölunefndina,“ segir hann, „ungum bílaáhugamönnum til mik- illar ánægju. Íslensku vegirnir voru þó snöggir að gera út af við þá...“ Það eru orð að sönnu. Vegirnir voru hrikalegir og sennilega hafa gluggapóstar, sem ekki voru í hardtop bílunum og bæjubíl- unum, styrkt hina til aksturs á moldar- vegunum, þótt sérkennilegt sé til þess að hugsa að ríkisapparat hafi verið við lýði í þá daga sem úthlutaði leyfum til bílakaupa. Ég náði ekki að fylgja eftir þessari drekaeign forfeðranna. Aðeins einu sinni á lífsleiðinni hef ég eignast amer- ískan fólksbíl – og hann var fráleitt af stærð eða þyngd fyrrgreindra bjúkka og letta. Þetta var Ford Maverick. Árgerð hans man ég ekki en rauður var hann, jafnt að utan sem innan. Mín ágæta eiginkona lét þetta eftir mér – um stundarsakir. Hún kunni aldrei að meta Fordinn, þótti húddið á honum svo langt að varla sæist fram fyrir það, þótt þessi ágæti Maverick væri aðeins hálfdrætt- ingur á við bjúkkann hans afa, króm varla sjáanlegt á honum og því síður hvítir hringir. Hún fór því á stúfana, þeg- ar henni þótti hinn ameríski draumur eiginmannsins orðinn nógu langur, og pantaði Mazdapútu. Mig minnir að sú hafi verið auðkennd með stöfunum 323 og var minnsta gerð – með saumavélar- mótor. Að því gerðu hringdi hún í mig í vinnuna og sagði að nú gæti ég selt doll- aragrínið. Maverick-inn sá ég síðar á Bíldudal. Eigandinn virtist vera ánægður með hann. Ég veit ekki um konuna hans. Auðvitað hefðum við átt að varðveita bjúkkann hans afa, gera hann upp og nota á hátíðarstundum fyrir stórfjöl- skylduna, sitja mörg í fjaðrasófunum, bæði afturí og frammí. Varðveisla gamalla bíla var hins vegar ekki komin á dagskrá þegar hann var seldur, eftir dygga þjónustu. Einhverjir í ættinni halda því fram að hann sé enn til, að drekanum hafi verið bjargað frá glötun og hann gerður upp. Um það þori ég ekki að fullyrða – en væri það tilfellið, mætti hugsa sér að setjast undir stýri, þótt ekki væri annað, fikta aðeins í lampa útvarpstækinu, jafnvel kveikjaran- um ógnvænlega og starta, maður minn, heyra þungt hljóðið þegar bensíngjöfin neglir niður startarann sem þeytir átta strokka vélinni samstundis í gang – og sogar í sig bensínið. Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL Te ik ni ng /H ar i 54 viðhorf Helgin 5.-7. desember 2014
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.