Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.12.2014, Page 87

Fréttatíminn - 05.12.2014, Page 87
78 heilsa Helgin 5.-7. desember 2014 Metsölulisti Eymundsson Barnabækur: VIKA 48 1. Metsölulisti Eymundsson Barnabækur: VIKA 48 2. Metsölulisti Eymundsson Barnabækur: VIKA 48 3. Flottar í jólapakkann www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu G rænkál er ein hollasta fæða sem hægt er að neyta enda stútfullt af nauðsynlegum næringarefnum. Neysla á græn- káli dregur úr hættu á krabba- meini, lækkar blóðþrýstinginn, styrkir beinin og dregur úr hættu á asma. Ekki sakar að það er auð- velt að rækta það og það er ódýrt. Hinsvegar er það biturt bragð græn- kálsins sem fælir stundum frá en með réttri meðhöndlun er það hið mesta lostæti. Hér eru fimm leiðir til að borða grænkál. 1. Salat Einfaldasta leiðin er að búa til salat með grænkáli. Best er að skera það í litlar ræmur og hella yfir það blöndu af sítrónusafa, ólífuolíu og örlitlu salti og láta það standa í 10 mínútur. Á meðan grænkálið bíður eru skornar niður döðlur í þunnar ræmur og rautt epli er skorið í litla bita. Öllu er blandað saman við græn- kálið ásamt möndluflögum. 2. Soðið Grænkál er þykkt og stíft en sumir vilja hafa salatið mjúkt. Þess vegna er hægt að sjóða grænkálið í örlitla stund með salti. Það er gott að blanda því með soðnu spínati og brokkólí. Gott er að hella smá olífuolíu og sítrónusafa yfir grænkálið áður en það er borið fram. 3. Hristingur Grænkál er hægt að geyma í frysti og setja frosið út í hristing. Einfaldast er að bæta því út í grænan hristing en það hentar líka vel með berja- og bananarhristingi. Best er að setja lítið í einu og prófa sig áfram. 4. Pasta Kál er gott með pasta og það heldur áferðinni þegar það er soðið. Prófaðu að skipta því út fyrir spínat í pastauppskriftum. Það er einnig gott með einföldu pasta, olíu, sveppum, sterkri pylsu og parmesan osti. 5. Flögur Frábært snakk og mun hollara en feitar kartöfluflögur. Hreinsaðu grænkálið vel og þurrkaðu eins vel og þú getur. Sullaðu smá ólívuolíu á bökunarpappír sem er á bökunarplötu og legðu græn- kálið ofan á. Stráðu salti yfir kálið og hrærðu varlega svo allt blandist vel saman. Settu grænkálið í ofninn í u.þ.b. 10 til 15 mínútur eða þar til það er þurrt og stökkt. Best er að borða flögurnar heitar. Fimm leiðir til að borða grænkál „Ég las um Femarelle og leist vel á að prófa hormónalausa með- ferð og hef tekið það inn í nokkra mánuði og er búin að endur- heimta mitt fyrra líf,“ segir Eva Ólöf Hjaltadóttir, 71 árs. „Mér hafði ekki liðið nógu vel og var farið að finnast óþægilegt að vera mikið innan um fólk. Mér fannst ekki gott að vera í hávaða og hafði því einangrast félagslega,“ segir hún. „Eftir að ég hafði tekið Fermarelle í sex mánuði hætti ég að svitna eins og áður og er núna í sama bolnum allan daginn og er hætt að finna fyrir verkjum. Það besta er að börnin mín og tengdabörn hafa orð á því hvað ég sé orðin hress. Að auki hef ég misst 11 kíló án þess að reyna það sérstaklega. Ástæðan er sú að mér líður betur og ég get hreyft mig óhindrað. Ég er svo ánægð með Femarelle hylkin að ég mæli með þeim við allar vinkonur mínar.“ Eva Ólöf Hjaltadóttir. „Ég ákvað að prófa Femarelle síðasta vetur eftir að hafa lesið frásögn konu í blaði þar sem hún lýsti ánægju sinni með vöruna,“ segir Soffía Káradóttir sem á þeim tíma var að byrja á breytingaskeiðinu en vildi ekki nota hormóna. „Ég fann fyrir hitakófum, fótaóeirð, skapsveiflum, líkam- legri vanlíðan og vaknaði oft upp á nóttunni.“ Eftir að Soffía hafði tekið Femarelle inn í aðeins 10 daga hurfu öll einkenni breytingaskeiðsins. „Nú fæ ég samfelldan svefn, finn ekki lengur fyrir hitakófum eða fótaóeirð og líður mun betur á allan hátt og er í góðu jafnvægi. Ég get ekki ímyndað mér hvernig mér liði í dag ef ég hefði ekki kynnst þessu dásamlega undraefni.“ Soffía Káradóttir. Femarelle er fáanlegt í apó- tekum, heilsuverslunum og í heilsuhillum stórmarkaða. Nánari upplýsingar má nálgast á icecare.is og á Facebook- síðunni Femarelle. Femarelle er dásamlegt fyrir konur á breytingaskeiði Fermarelle er náttúruleg vara, unnin úr soja og vinnur á einkennum tíðahvarfa hjá konum. Hitakóf, nætursviti, skapsveiflur og verkir í liðum og vöðvum eru algeng einkenni tíðahvarfa. Virkni þess hefur verið staðfest með fjölda rannsókna á undanförnum 13 árum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.