Læknablaðið - 15.01.2008, Qupperneq 57
U M R Æ Ð U R O G FRÉTTIR
F R Á SIÐANEFND
Tveir úrskurðir siðanefndar LÍ
Úrskurðirnir eru birtir í Læknablaðinu skv. tilmælum siðanefndar
Ár 2007, föstudaginn 7. desember, kom Siðanefnd Læknafélags
íslands saman í fundarsal í húsakynnum Læknafélags Islands að
Hlíðasmára 8, Kópavogi. Nefndina skipa Allan V. Magnússon,
formaður, Ingvar Kristjánsson læknir og Stefán B. Matthíasson
læknir.
Fyrir var tekið erindi stjórnar Læknafélags Islands frá 26.
október 2005 vegna ummæla Kára Stefánssonar í Kastljósþætti
2. nóvember 2005.
ÚRSKURÐUR
Með bréfi dagsettu 24. nóvember 2005 skýrði formaður
Læknafélags íslands frá því að stjórn félagsins hefði ákveðið
á fundi sínum hinn 22. nóvember 2005 að óska eftir því við
Siðanefnd Læknafélags íslands að hún tæki til umfjöllunar og
úrskurðar, eftir því sem við ætti, kvörtun vegna háttsemi sem
kynni að stríða gegn siðareglum Læknafélags Islands.
Segir síðan að sú háttsemi sem kvartað sé undan sé hvort
Kári Stefánsson læknir hafi með ummælum sínum um Jóhann
Tómasson, sem hann lét falla í lok sjónvarpsviðtals í Kastljósi
þann 2 nóvember 2005 þar sem hann sagði m.a., samkvæmt því
sem fram kemur í þættinum sjálfum sem Siðanefnd hefur fengið
afrit af,... „etja Jóhanni á foraðið" ... og: „Einhverra hluta vegna
þá hef ég fest þarna einhvers staðar inni í heilabúinu á honum
og hann virðist eiga erfitt með að koma mér þaðan út," gerst
brotlegur gegn siðareglum lækna.
Stjórn Læknafélags íslands hefur ekki látið mál þetta til sín
taka að öðru leyti en því að óska álits Siðanefndar á því hvort
Kári Stefánsson hafi gerst brotlegur gegn siðareglum lækna með
einhverjum af ummælum sínum um Jóhann Tómasson lækni í
fyrrnefndu viðtali.
Af hálfu Kára hefur verið tekið til vama og þess krafist að
hann verði sýknaður af kröfum Læknafélags Islands.
Eftirfarandi orðaskipti áttu sér m. a. stað í Kastljósþætti í sjón-
varpinu 2. nóvember 2005:
J. V (fréttamaður): Ég er eiginlega að spyrja að
því hvort að þú hafir eitthvað beitt þessa ritnefnd ein-
hverjum þrýstingi til þess að gera eitthvað í þessu máli?
K. S: (Kári Stefánsson): Nei, það hef ég ekki. Og það er
ekkert á hennar valdi að gera nokkurn skapaðan hlut í þessu
máli. Mér finnst þetta hljóma, sko ef ég svona tek skref aft-
urábak og velti því fyrir mér hvers vegna birta þeir svona
grein þá fæ ég raunverulega ekki séð að baki því búi nokkur
skapaður hlutur sem að skiptir máli. Það má vera að þarna
séu einhverjar hreytur af deilunni um miðlægan gagnagrunn
á heilbrigðissviði, það má vel vera að þarna sé þreyttur rit-
stjóri, þreyttur ábyrgðarmaður sem nennir þessu ekki lengur
og er að bíða eftir að einhver ýti honum til hliðar því að ég fæ
ekki séð að hann fái nokkurn skapaðan hlut út úr þessu að
etja Jóhanni á foraðið, manni sem er búinn að skrifa eins og
ég segi tugi greina um mig í Morgunblaðið þar sem er alveg
ljóst og þarf ekki að fara í neinar grafgötur með það að Jóhanni
Tómassyni er ekkert sérstaklega vel við mig. Einhverra hluta
vegna hef ég fest þarna einhvers staðar inni í heilabúinu á
honum og hann virðist eiga erfitt með að koma mér þaðan
út. Ég held að það hljóti að vera mjög erfitt.... Skelfing hlýt-
ur að vera erfitt að vera með mann eins og mig á heilanum.
Lögmaður Kára Stefánssonar gerir þá aðalkröfu að máli þessu
verði vísað frá Siðanefnd Læknafélags íslands en til vara að
Siðanefndin úrskurði að Kári hafi ekki gerst brotlegur við siða-
reglur LÍ.
Samkvæmt gögnum málsins komi fram að stjórn Læknafélags
Islands hafi vísað málinu til siðanefndar í tilefni af bréfi Páls
Þorgeirssonar læknis til stjórnarinnar dags. 10. nóvember 2005,
þar sem hann reki meint ummæli Kára Stefánssonar í umrædd-
um Kastljósþætti. Páll hafi síðan skrifað annað bréf beint til
siðanefndarinnar dags. 21. desember 2005 með „viðbótarábend-
ingum" í fjórum liðum. Jafnframt fylgdi erindinu „eftirprentun
af síðasta hluta umrædds Kastljósviðtals við Kára Stefánsson".
Ekki sé hægt að ráða af erindi Siðanefndar til undirritaðs að
fyrrgreindar „viðbótarábendingar" Páls Þorgeirssonar læknis
séu til umfjöllunar hjá nefndinni og sé því ekki frekar fjallað
um þær, heldur einungis litið til þeirra ætluðu ummæla Kára
Stefánssonar sem rakin eru í bréfi nefndarinnar til lögmannsins
frá 23. nóvember 2006.
Aðalkrafa um frávísun málsins sé byggð á því að alls sé óvíst
hvaða ummæli hafi verið höfð uppi í umræddum sjónvarps-
þætti. Kári Stefánsson muni eftir því að hafa komið fram í þætt-
inum en ekki nákvæmlega hvað hann hafi sagt. I Ijósi þessa sé
ósannað hvaða ummæli Kári hafi haft uppi í sjónvarpsþættinum
og því rétt að vísa málinu frá.
Hér beri einnig að líta til þess að Jóhann Tómasson hafi ekki
haft uppi neinar kröfur í málinu og ekkert liggi frammi um
umboð til Páls Þorgeirssonar til að koma fram fyrir hans hönd.
Þótt stjóm LÍ geti beint málum til Siðanefndar að eigin frum-
kvæði sé rétt að túlka siðareglumar þannig að það komi helst til
álita þegar enginn aðili sé til að sækja mál. Meginreglur laga um
aðildarskort eigi því að leiða til frávísunar, hvort sem litið er til
reglna réttarfarslaga eða stjórnsýslulaga.
Þá geri hvorki kærandinn Páll eða stjórn LI tilraun til þess að
útskýra hvað það sé í ætluðum orðum Kára Stefánssonar sem sé
aðfinnsluvert og hann hafi ekki hugmynd um það heldur. Orðin
sem fallið hafi séu ekki stóryrði á neinn mælikvarða.
Telji nefndin sannað að Kári Stefánsson hafi haft uppi þau
ummæli sem Páll Þorgeirsson eignar honum er þess krafist að
Siðanefnd úrskurði að ummælin hafi ekki brotið gegn siða-
reglum LÍ.
Jóhann Tómasson læknir hafi veist að Kára Stefánssyni
með afar rætnum og ósmekklegum hætti í grein sinni í 9. tbl.
Læknablaðsins 2005. Sú grein hafi hleypt af stað miklu fjölmiðla-
LÆKNAblaðíð 2008/94 57