Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.01.2008, Side 63

Læknablaðið - 15.01.2008, Side 63
Viðurkenning á þingi Norrænna svæfinga- og gjörgæslulækna Sigríður Birna Elíasdóttir, læknanemi á 5. ári, hlaut í haust 2. verðlaun og viðurkenningu á þingi norrænna svæfingalækna fyrir rannsókn- arverkefni sem hún vann á vorönn 3. árs undir stjóm læknanna Felix Valssonar, Guðmundar Klemenzsonar og Bjarna Torfasonar. „Verkefnið fjallaði um mælingar á hjartahorm- óninu BNP (Brain Natriuretic Peptide) og árangri eftir hjartaskurðaðgerðir. Hjartað seytir þessu hormóni þegar tog kemur á hjartafrumurnar, eins og í hjartabilun og veldur þvagræsingu, auknum útskilnaði á Na+ og lækkar blóðþrýsting. Klínísk notkun á BNP mælingum hefur fyrst og fremst verið að greina hjartabilun en hugmynd þessarar rannsóknar var að með mælingu á hormóninu mætti spá fyrir um hvernig sjúklingnum reiddi af eftir hjartaaðgerðina," segir Sigríður Birna. Hún segir rannsóknina hafa falist í því að mæla BNP hormónið hjá öllum sjúklingum sem fóru í hjartaaðgerð á Landspítalanum á einu ári og síðan hafi verið fylgst með legulengd hvers sjúklings á gjörgæslu eftir aðgerðina, þörf á notkun inotrope lyfja eða ósæðarpumpu (intraaortic balloon pump) 24 klukkustundum eftir aðgerð, nýrnabilun og hjartadreps eftir aðgerð. „Ef allt er með felldu liggja sjúklingar einn dag á gjörgæslu eftir aðgerð en við miðuðum við meira en tvo daga á gjörgæslu og bárum saman við mælinguna á BNP fyrir aðgerð. Við bárum einnig BNP gildin saman við EuroSCORE og út- fallsbrot hjartans (ejection fraction) mælt með vélindaómun fyrir aðgerð. Niðurstaðan varð sú að þeir sjúklingar sem þurftu að liggja þrjá daga eða lengur á gjörgæslu voru með marktækt hærra BNP gildi fyrir aðgerð heldur en þeir sem lágu tvo daga eða skemur. Einnig spáði BNP fyrir þörf Sigríður Birna Elíasdóttir með viðurkenningarskjal fyrir 2. verðlaun á þingi norrænna svæfinga- og gjörgæslulækna. Hávar Sigurjónsson LÆKNAblaðið 2008/94 63

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.