Læknablaðið - 15.01.2008, Qupperneq 65
á notkun inotropa, ósæðarpumpu og nýmabilun
eftir aðgerð. Það spáði jafn vel og EuroSCORE en
mun betur en útfallsbrot hjartans."
Sigríður þakkar aðalleiðbeinanda sínum Felix
Valssyni lækni fyrir hversu vel tókst til, „ . . .
en hann hefur mikið rannsakað ANP (atrial
natriuretic peptide) hormón sem er í sama flokki
og BNP og það var hans hugmynd að prófa að
mæla þetta hormón fyrir hjartaaðgerðir og skoða
hvort munur væri á BNP-gildum sjúklinga sem
fengju fylgikvilla eftir aðgerð og þeirra sem höfðu
eðlilegan gang eftir aðgerð. "
Hún segir að niðurstöðurnar hafi ótvírætt
hagnýtt gildi því með þessari mælingu megi
segja til um hvernig sjúklingi muni vegna eftir
aðgerðina. „Hver dagur á gjörgæslu kostar heil-
mikið, mannafla, tæki og fleira og með áhættumati
sjúklinga er hægt að nýta þá kosti sem fyrir hendi
eru sem best. Það er nauðsynlegt fyrir sjúklinginn
að vita áhættuna á aðgerð. Einnig er áhættumat
mikilvægt þegar verið er að bera saman árangur
hjartaaðgerða milli tveggja eða fleiri sjúkrahúsa
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilsugæslulæknir!
Laus er staða heilsugæslulæknis við heilsugæslustöð Rangárþing. Um er að ræða
60% stöðugildi og fer vinnan fram bæði á Hellu og Hvolsvelli. Æskilegt er að umsækjandi hafi viðurkenningu sem sérfræðingur í
heimilislækningum. Staðan er laus frá 1. mars 2008 eða samkvæmt samkomulagi. Laun eru samkvæmt ákvörðun kjaranefndar.
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2008. Heilsugæsla Rangárþings er hluti Heilbrigðisstofnunar Suðurlands - HSu.
Nánari upplýsingar veitir Þórir B. Kolbeinsson yfirlæknir í síma 480-5320.
Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem fást á skrifstofu landlæknis til framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands
á Selfossi.
Heilsugæsla Rangárþings starfrækir heilsugæslustöðvar á Hellu og Hvolsvelli. Þar starfa þrír læknar. Stöóvarnar eru vel búnar
með góðri vinnuaðstöðu. f sveitarfélögunum eru ný íþróttahús og sundlaugar. Þar er mjög barnvænt umhverfi með einsetn-
um skólum og leikskólaplássum. Miklir útivistar- og tómstundamöguleikar, 18-holu golfvöllur, hestamennska, veiðar og fl.
Tónlistarskóli og öflugt kórastarf. Klukkustundar akstur er til Reykjavíkur.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands var stofnuð 1. sept. 2004 við sameiningu heilsugæslustöðva á Suðurlandi og Heilbrigðisstofnunarinnar á Selfossi.
Þjónustusvæði stofnunarinnar nær til um 20.000 íbúa á suðurlandsundirlendinu. Stofnunin rekur 8 heilsugæslustöðvar, sjúkrahús á Selfossi með
55 sjúkrarúm, auk réttargeðdeildarinnar á Sogni í Ölfusi. Alls eru um 220 stöðugildi við Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR
VIÐURKENNING
við gæðastýringu, þá skiptir miklu máli að vita
hvernig sjúklingahópurinn er samsettur."
Sigríður Birna skrifaði grein undir handleiðslu
Felix sem send var ACTA, blaði svæfingalækna,
í desember 2006. Þau ákváðu svo að senda ágrip
af verkefninu á þing norrænna svæfinga- og
gjörgæslulækna 2007.
„Síðan var okkur tilkynnt að ágripið hefði verið
valið meðal fimm ágripa til að „keppa" til 1.-3.
verðlauna sem voru veitt í tilefni af 50 ára afmæli
ACTA sem okkur þótti auðvitað mjög skemmti-
legt. Svo eftir flutning á þessum fimm rannsókn-
um á þinginu var okkur tilkynnt að okkur hefðu
hlotnast 2. verðlaunin. Verðlaunin voru 20 þúsund
danskar krónur og viðurkenningarskjal. Þetta var
mjög gaman og ánægjulegt að fá þessa viðurkenn-
ingu," segir Sigríður Birna. Hún segist alls ekki
hafa gert upp hug sinn varðandi val á sérgrein,
svæfinga- og gjörgæslulækningar komi vissulega
til greina ásamt mörgu öðru. „Það er nægur tími til
að gera það upp við sig," segir hún að lokum.
LÆKNAblaðið 2008/94 65