Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.2008, Page 67

Læknablaðið - 15.01.2008, Page 67
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTI TÆKNIPISTILL Minna þekktir krókar og kimar LÍ-vefsins Davíð B. Þórisson dbt@hive.is Ég sit heima hjá mér með nýlagað Lavazza kaffi og ákveð með sjálfum mér að nú sé kominn tími til að skoða króka og kima nýju Læknafélagssíðunnar. Mér skilst að það sé margt þar að finna sem ekki blasir við manni við fyrstu sýn. Innskráning Þegar ég opna síðuna er ég ekki innskráður og ég er að sjálfsögðu búinn að gleyma leyniorðinu. Með því að smella á litlu örina hægra megin við innskráningarreitina tvo fæ ég upp síðu þar sem ég get látið senda mér leyniorðið með tölvupósti. Heppilegt að ég var nýlega búinn að uppfæra netfangið, annars hefði ég þurft að trufla hressu dömurnar á skrifstofu LÍ! Skömmu síðar fæ ég leyniorðið í pósthólfið mitt. Ég skrái mig inn með kennitölu og leyniorði og þar sem ég er núna að vinna á minni eigin fartölvu sem enginn annar á að hafa aðgang að, leyfi ég mér að haka við „muna aðgang næst". Þá opnast vefurinn næst með mig fyrirfram innskráðan, það er býsna þægilegt. Ef notandi skráir sig inn á opinni tölvu er auð- velt að eyða sjálfvirkri innskráningu, einfaldlega með því að skrá sig út í stað þess að bara loka vafranum. Athugasemdir Eftir innskráningu er ég strax færður á for- síðu FUL og sé þar nýjustu fréttir, umræður og atburði sem tilheyra svæðinu (ég var áður búinn að velja þessa stillingu á „mín síða". Það er nú eitthvað lítið um að vera þarna svo ég smelli á stóra Læknafélagsmerkið (uppi til vinstri) og fæ þá forsíðu LÍ-svæðisins. Þar sé ég talsvert meira enda virðist þar vera einhvers konar samansafn nýs efnis af öllum svæðum. Já heyrðu, þetta er athyglisvert - fyrir framan sumar fréttimar sé ég litla talblöðru. Ég hafði ekki tekið eftir þessu áður en augljóslega er blaðran fyrir framan þær fréttafyrirsagnir þar sem félagsmenn hafa tjáð sig með athugasemdum. Ég var aldrei alveg sammála Gunnari Ármannssyni í seinasta föstudagsmola hans og ég sé að það eru fleiri svo ég smelli á frétt- ina og bauna á hann nokkrum línum, hann er nú sennilega vanur því, lögfræðingurinn sjálfur! Það virðist vera frekar einfalt þetta athugasemdakerfi, bara skrifa og smella á „vista"... skrýtið að kolleg- arnir hafi ekki tjáð sig oftar um málin - sennilega ekki jafnfeimnir og ég! Umræður Mig langar samt að skrifa aðeins meira um annað mál sem mér er umhugað um - staðsetning nýja spítalans ... algjör vansinna að setja spítalann svona langt frá miðpunkti höfuðborgarinnar. Ég er líka með myndir til að rökstyðja mál mitt og langar að birta og heyra skoðanir kollega. Hér ríkir sem betur fer málfrelsi svo ég stofna nýja umræðu eftir að hafa kynnt mér ferlið á leiðbein- ingasíðunni. Leiðbeiningarnar er alltaf auðvelt að nálgast, hvar sem þú ert staddur á vefnum með því að smella á hnappinn efst til hægri. Ég sé að það eru nokkrar leiðir til að stofna nýja umræðu en sú auðveldasta mundi vera að nota fellivalmyndina á gráa, þunna kassanum ofarlega til vinstri sem er merkt „mín valmynd". Nú skul- um við sjá, þarna koma upp ansi margir mögu- leikar sem þarf að skoða, staðsetning og aðgangur. Það er búið að forstilla fyrir mig umræðuna þann- ig að hún er opin öllum LÍ félagsmönnum svo ég þarf litlu að breyta þama. Ég ætla að takmarka aðganginn þannig að bara vinnufélagarnir og stjórn LÍ hafi aðgang og vel þess vegna „sérsnið- inn aðgangur". Eða nei annars, þetta varðar alla hina og bara betra að fá líflegri umræður - ég breyti aðganginum þannig að allir félagsmenn LÍ geti verið með. Þetta er ótrúlega einfalt, fyrirsögn og svo þrumuræðan mín í textareitina og vista ... Já einmitt - þarna uppi sé ég vinkandi hendi, stórsniðugt! Ég var nefnilega búinn að lesa það að þegar ný umræða er stofnuð em send skilaboð á alla sem hafa aðgang. Nú vita allir af umræðunni sem ég var að stofna og auðvelt fyrir fólk að komast á hana með því að elta höndina. Æ og ó, þarna varð mér á í messunni. Ég hef verið eitthvað fljótfær með stafsetninguna - ég er alltaf að verða verri og verri með yfsilonin. Þetta er sem betur fer auðvelt að laga - ég smelli á litla strokleðrið og fæ þá upp reit til að breyta textanum. Slapp fyrir horn! Eins og áður er að finna framhald á pistlinum á vefsíðu LÍ, slóðin er www.lis.is/Items/Default. aspx?b=2595. LÆKNAblaðið 2008/94 67

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.