Læknablaðið - 15.01.2008, Blaðsíða 67
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTI
TÆKNIPISTILL
Minna þekktir krókar
og kimar LÍ-vefsins
Davíð B.
Þórisson
dbt@hive.is
Ég sit heima hjá mér með nýlagað Lavazza kaffi og
ákveð með sjálfum mér að nú sé kominn tími til að
skoða króka og kima nýju Læknafélagssíðunnar.
Mér skilst að það sé margt þar að finna sem ekki
blasir við manni við fyrstu sýn.
Innskráning
Þegar ég opna síðuna er ég ekki innskráður og
ég er að sjálfsögðu búinn að gleyma leyniorðinu.
Með því að smella á litlu örina hægra megin við
innskráningarreitina tvo fæ ég upp síðu þar sem
ég get látið senda mér leyniorðið með tölvupósti.
Heppilegt að ég var nýlega búinn að uppfæra
netfangið, annars hefði ég þurft að trufla hressu
dömurnar á skrifstofu LÍ! Skömmu síðar fæ ég
leyniorðið í pósthólfið mitt. Ég skrái mig inn með
kennitölu og leyniorði og þar sem ég er núna að
vinna á minni eigin fartölvu sem enginn annar á
að hafa aðgang að, leyfi ég mér að haka við „muna
aðgang næst". Þá opnast vefurinn næst með mig
fyrirfram innskráðan, það er býsna þægilegt.
Ef notandi skráir sig inn á opinni tölvu er auð-
velt að eyða sjálfvirkri innskráningu, einfaldlega
með því að skrá sig út í stað þess að bara loka
vafranum.
Athugasemdir
Eftir innskráningu er ég strax færður á for-
síðu FUL og sé þar nýjustu fréttir, umræður og
atburði sem tilheyra svæðinu (ég var áður búinn
að velja þessa stillingu á „mín síða". Það er nú
eitthvað lítið um að vera þarna svo ég smelli á
stóra Læknafélagsmerkið (uppi til vinstri) og fæ
þá forsíðu LÍ-svæðisins. Þar sé ég talsvert meira
enda virðist þar vera einhvers konar samansafn
nýs efnis af öllum svæðum. Já heyrðu, þetta er
athyglisvert - fyrir framan sumar fréttimar sé
ég litla talblöðru. Ég hafði ekki tekið eftir þessu
áður en augljóslega er blaðran fyrir framan þær
fréttafyrirsagnir þar sem félagsmenn hafa tjáð sig
með athugasemdum. Ég var aldrei alveg sammála
Gunnari Ármannssyni í seinasta föstudagsmola
hans og ég sé að það eru fleiri svo ég smelli á frétt-
ina og bauna á hann nokkrum línum, hann er nú
sennilega vanur því, lögfræðingurinn sjálfur! Það
virðist vera frekar einfalt þetta athugasemdakerfi,
bara skrifa og smella á „vista"... skrýtið að kolleg-
arnir hafi ekki tjáð sig oftar um málin - sennilega
ekki jafnfeimnir og ég!
Umræður
Mig langar samt að skrifa aðeins meira um annað
mál sem mér er umhugað um - staðsetning nýja
spítalans ... algjör vansinna að setja spítalann
svona langt frá miðpunkti höfuðborgarinnar. Ég
er líka með myndir til að rökstyðja mál mitt og
langar að birta og heyra skoðanir kollega. Hér
ríkir sem betur fer málfrelsi svo ég stofna nýja
umræðu eftir að hafa kynnt mér ferlið á leiðbein-
ingasíðunni.
Leiðbeiningarnar er alltaf auðvelt að nálgast,
hvar sem þú ert staddur á vefnum með því að
smella á hnappinn efst til hægri.
Ég sé að það eru nokkrar leiðir til að stofna nýja
umræðu en sú auðveldasta mundi vera að nota
fellivalmyndina á gráa, þunna kassanum ofarlega
til vinstri sem er merkt „mín valmynd". Nú skul-
um við sjá, þarna koma upp ansi margir mögu-
leikar sem þarf að skoða, staðsetning og aðgangur.
Það er búið að forstilla fyrir mig umræðuna þann-
ig að hún er opin öllum LÍ félagsmönnum svo ég
þarf litlu að breyta þama. Ég ætla að takmarka
aðganginn þannig að bara vinnufélagarnir og
stjórn LÍ hafi aðgang og vel þess vegna „sérsnið-
inn aðgangur". Eða nei annars, þetta varðar alla
hina og bara betra að fá líflegri umræður - ég
breyti aðganginum þannig að allir félagsmenn LÍ
geti verið með. Þetta er ótrúlega einfalt, fyrirsögn
og svo þrumuræðan mín í textareitina og vista
... Já einmitt - þarna uppi sé ég vinkandi hendi,
stórsniðugt! Ég var nefnilega búinn að lesa það að
þegar ný umræða er stofnuð em send skilaboð á
alla sem hafa aðgang. Nú vita allir af umræðunni
sem ég var að stofna og auðvelt fyrir fólk að
komast á hana með því að elta höndina. Æ og ó,
þarna varð mér á í messunni. Ég hef verið eitthvað
fljótfær með stafsetninguna - ég er alltaf að verða
verri og verri með yfsilonin. Þetta er sem betur fer
auðvelt að laga - ég smelli á litla strokleðrið og
fæ þá upp reit til að breyta textanum. Slapp fyrir
horn!
Eins og áður er að finna framhald á pistlinum
á vefsíðu LÍ, slóðin er www.lis.is/Items/Default.
aspx?b=2595.
LÆKNAblaðið 2008/94 67