Læknablaðið - 15.09.2010, Page 3
Urtagarður í Nesi
Núna í ágúst var vígður garður við Nesstofu á
Seltjamamesi og er hluti Lækningaminjasafns
Islands og Lyfjafræðisafnsins. I garðinum
eru lækningajurtir og aðrar næringar- og
heilsubótarplöntur og tilheyrir hluti þeirra
íslenskri flóru. Aðrar eru innfluttar en hafa verið
ræktaðar í landinu um lengri eða skemmri tíma.
Garðurinn er stofnaður í minningu þriggja
manna: Bjarna Pálssonar landlæknis, Hans
Georg Schierbeck landlæknis og stofnanda
Garðyrkjufélags íslands árið 1885 og Bjöms
Jónssonar lyfsala sem annaðist nytja- og
lækningajurtagarð í Nesi frá árinu 1768.
Bæklingurinn Urtagarður í Nesi. Plöntuvísir,
hefur verið gefinn út af þessu tilefni og fulltrúi
landlæknis í undirbúningsnefnd að stofnun
garðsins, Lilja Sigrún Jónsdóttir, er ritstjóri hans
og er hugmyndin að gerð garðsins frá henni
komin.
Garðurinn er samvinnuverkefni Seltjarnar-
nessbæjar, Garðyrkjufélags íslands, landlæknis-
embættisins, Læknafélags íslands, Lyfjafræð-
ingafélags íslands, Lyfjafræðisafns og Lækn-
ingaminjasafns íslands. Ragnhildur Skarp-
héðinsdóttir landslagsarkitekt hannaði garðinn.
Texti og mytidir: VS
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS
Á forsíðu Læknabiaðsins að þessu sinni er stillimynd
úr myndbandsverkinu Sleep frá þessu ári eftir Sigurð
Guðjónsson (f. 1975). Verkið er frábrugðið fyrri verkum
hans að því leyti að það byggir á einu ferli sem sýnt er í
heild sinni án þess að klippt sé á það eða vikið að öðrum
atriðum. Sigurður hefur áður gert flókin kvikmyndaverk
sem vi'sa í margræða frásögn
eða einhvers konar framvindu
án þess að segja endilega
ákveðna sögu. Hér er
atburðarásin njörfuð niður í
einn ramma sem er reyndar
samsettur úr tveimur upptökum
sem síðan er skeytt saman.
Hægra megin er horft inn eftir
salarkynnum með tveimur
flóðlýstum súlum. Rýmið er hálf
hráslagalegt, ófrágengið og vatn
drýpur ofan úr loftinu, kannski er þetta hús í smíðum.
Vinstri hluti myndarinnar sýnir nærmynd af hljómplötu
sem snýst á plötuspilara og samsetningin er þannig úr
garði gerð að það er eins og platan sé innar í rýminu,
hulin í myrkrinu. Myndbandið sýnir síðan hvernig nálin
á plötuspilaranum birtist hægt og rólega fram undan
einni súlunni eins og karakter í myndinni og skríður
yfir rákir plötunnar nær miðju. Hlutföllin eru algjörlega
brengluð og þar er augljóst að um tvær ólíkar myndir
er aö ræða, en smám saman samsvarar myndin sér
þannig að hún verður að sannfærandi blekkingu. Verkið
skilur eftir sig mjög sterka mynd þær örfáu mínútur sem
það varir, súrrealíska en grípandi. Hljóðið er jafnframt
mikilvægt, droparnir sem skella
á steinsteyptu gólfinu og sargið í
hljómplötunni. Þar er ekki neina
tónlist að heyra, bara órætt suð
og hljóðið leggur línurnar fyrir þá
stemningu sem ríkir í verkinu,
draumkennda og dularfulla.
Tóm bygging og hljómplata
án tónlistar, þessi tómleiki er
áleitinn og óþægilegur. Verk
Sigurður bera gjarnan með
sér lúmskan óhugnað og er
þetta engin undantekning. Til þess að átta sig betur á
verkinu má skoða hluta þess á heimasíðu listamannsins
(www.sigurdurgudjonsson.net), og þá má geta þess
að hann sýnir ný verk á einkasýningu í sýningarrýminu
Suðsuðvestur í Reykjanesbæ nú í september.
Markús Þór Andrésson
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICALIOURNAL
www. laeknabladid. is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104-564 4106
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Jóhannes Björnsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Anna Gunnarsdóttir
Bryndís Benediktsdóttir
Engilbert Sigurðsson
Gunnar Guðmundsson
Inga S. Þráinsdóttir
Tómas Guðbjartsson
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og Ijósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Dögg Árnadóttir
dogg@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1700
Áskrift
9.500,- m. vsk.
Lausasala
950,- m. vsk.
Prentun, bókband
og pökkun
Oddi,
umhverfisvottuð
prentsmiðja
Höfðabakka 3-7
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að
birta og geyma efni blaðsins á
rafrænu formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með
neinum hætti, hvorki að hluta né í
heild án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) I eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition og
Scopus.
The scientific contents of the
lcelandic Medical Journal are
indexed and abstracted in
Medline (National Ubrary of
Medioine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition and
Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2010/96 515