Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.2011, Page 12

Læknablaðið - 15.12.2011, Page 12
RANNSÓKN Tafla 1. Lýsing á þátttakendum, aðstæðum þeirra og iyfjanotkun. Meðaltal (staðalfrávik) eða fjöldi (%*) Heildf N=186 Þéttbýli n=118 Dreifbýli n=68 P* Aldur, ár 74 (6,3) 74 (6,3) 74 (6,2) 0,66 Aldurshópur 65-74 ára 114 (61) 73 (62) 41 (60) 75-88 ára 72 (39) 45 (38) 27 (40) 0,84 Kyn Konur 89 (48) 62 (52) 27 (40) Karlar 97 (52) 56 (48) 41 (60) 0,091 Skólaganga, ár 7,5 (3,3) 8,2 (3,6) 6,3 (2,2) <0,001 Nægar ráðstöfunartekjur 123 (66) 88 (75) 35 (52) <0,001 Býr einn/ein 45 (24) 35 (30) 10(15) 0,022 Heimahjúkrun 16(9) 10(9) 6(9) 0,95 Heimaþjónusta 63 (34) 39 (33) 24 (35) 0,79 Fjöldi sjúkdómsgreininga 3,2 (1,8) 2,7 (1,6) 4,1 (1,8) <0,001 Líkamsþyngdarstuðull, kg/m2 27 (3,8) 27 (3,8) 27 (3,6) 0,88 Líkamleg áreynsla (PASE), 0-400+ 127(92) 126(87) 130 (101) 0,79 Líkamleg færni (TUG), sek 11 (3,6) 10(3,4) 12(3,4) <0,001 Verkir (SF-36), 0-100 65 (41) 73 (40) 50 (37) <0,001 Þunglyndiseinkenni (GDS), 0-30 6,5 (4,3) 5,6 (3,8) 8,1 (4,6) <0,001 Vitræn geta (MMSE), 0-30 27 (2,5) 27 (2,5) 27 (2,7) 0,80 Fjöldi lyfja 3,9 (2,7) 4,0 (2,8) 3,8 (2,6) 0,63 Fjöllyfjanotkun (a5 lyf) 76(41) 47 (40) 29 (43) 0,71 ‘Hlutföll (%) byggja á fjölda gildra svara fyrir hverja breytu; tgögnin eru ekki vigtuð; t p-gildi gefur til kynna hvort búsetutengdur munur á þátttakendum er marktækur; PASE = Physical Activity Scale for the elderly; TUG = Timed Up and Go; SF-36 = Short Form 36-item health survey; GDS = Geriatric Depression Scale; MMSE = Mini-Mental State Examination. væri fullnægt og einstaklingar beðnir um að taka þátt. Fimmtán manns uppfylltu ekki skilyrði til þátttöku þar sem þeir höfðu flutt inn á stofnun, flutt af svæðinu eða gátu samkvæmt upplýsingum frá umönnunaraðila ekki tjáð sig munnlega. Þeir 235 sem þá voru eftir í úrtakinu voru beðnir að taka þátt, 151 úr þéttbýli og 85 úr dreifbýli. Þátttökuhlutfallið var 78% í þéttbýli (n=118) og 80% í dreifbýli (n=68). í dreifbýli voru þátttakendur á aldrinum 65-86 ára (M=73,6; sf= 6,2), 40% í aldurshópi 75 ára og eldri og 40% kon- ur. í þéttbýli voru þátttakendur frá 65-88 ára (M=74; sf=6,3), 38% í aldurshópi 75 ára og eldri og 53% konur. I þéttbýli neituðu 33 að taka þátt en í dreifbýli neituðu 17. Ekki reyndist vera marktækur munur á aldurssamsetningu og kynjahlutfalli þeirra sem þáðu og höfnuðu þátttöku. Gagnaöflun fór fram í júní til september árið 2004. Áður en hún hófst voru fengin tilskilin leyfi frá Vísindasiðanefnd (nr. 04-037-Sl) og tilkynning send til Persónuverndar (nr. 1948/2004). Þátttakend- ur undirrituðu upplýst samþykki. Þrír starfsmenn rannsóknar- verkefnisins sáu um gagnaöflun og fengu þeir allir samræmda þjálfun í að nota stöðluð matstæki og leggja fyrir spurningalista í viðtalsformi. Til að draga úr áhrifum skertrar heyrnar á við- talið gátu þátttakendur lesið spurningarnar og svarmöguleikana af blaði, með stækkuðu letri, um leið og viðtalið var tekið. Þátt- takendur gátu valið um að fá starfsmennina heim eða að mæta á tiltekinn rannsóknarstað í nágrenni heimilis síns. Upplýsingar um lyfjanotkun voru skráðar eftir lyfjakortum þátttakenda og nánari útskýringum frá hverjum og einum. Ein- göngu voru skráð lyf sem þátttakendur tóku að staðaldri, til dæmis voru verkjalyf skráð ef viðkomandi tók þau reglulega, en annars ekki. Fjöldi lyfseðilsskyldra lyfja var reiknaður út frá þeirri skrán- ingu (fjöldi lyfja), einnig var búin til breyta fyrir fjöllyfjanotkun sem er skilgreind sem fimm eða fleiri lyfseðilsskyld lyf.4-5 Þá voru lyfin flokkuð í samræmi við ATC-flokkunarkerfi Alþjóðaheil- brigðismálastofnunarinnar sem skiptir lyfjum í 14 flokka eftir því líffæri eða líffærakerfi sem lyfið virkar á.9 Samkvæmt ATC var B12- vítamín flokkað sem meltingarfæra- og efnaskiptalyf (A-flokkur). Onnur vítamín voru hins vegar skráð í sérstakan flokk sem var ekki notaður frekar í rannsókninni en fól í sér öll vítamín, lýsi, fæðubótarefni og bætiefni sem hægt er að kaupa án lyfseðils. Sér- stök breyta var gerð fyrir þá lyfjaskammta sem ekki reyndist unnt að flokka samkvæmt ATC-kerfinu. Þátttakendur svöruðu spurningum um hve mörg ár þeir hefðu verið í formlegu námi, hvort þeir hefðu nægar ráðstöfunartekjur, hve margir væru í heimili með þeim og hvort þeir fengju heima- þjónustu eða heimahjúkrun. Einnig gáfu þeir upp þyngd, hæð og hvaða sjúkdómsgreiningar þeir hefðu fengið. Líkamsþyngdar- stuðull (kg/m2) og fjöldi sjúkdómsgreininga voru reiknaðar út frá þeim upplýsingum. Stöðluð matstæki voru lögð fyrir samkvæmt settum reglum fyr- ir hvert og eitt þeirra. Mat á líkamsvirkni aldraðra (Physical Activity Scalefor the Elderly, PASE)U metur líkamlega áreynslu liðinnar viku við þjálfun, frístundaiðju og störf innan og utan heimilis. Gefin eru stig frá núll og óalgengt er að þau fari yfir 400. Fleiri stig þýða 676 LÆKNAblaðið 2011/97

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.