Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.2011, Side 20

Læknablaðið - 15.12.2011, Side 20
RANNSÓKN Tafla I. Fylgikvillar hjá 16 sjúklingum sem gengust undir lungnasmækkunarað- gerð á Landspítala 1996-2008. Hver sjúklingur getur haft fleiri en einn fylgikvilla. Fylgikvilli Fjöldi Viðvarandi loftleki a7 daga 7 Enduraðgerð 5 Los á bringubeini 4 Blæðing í fleiðruhol 1 Rof á skeifugörn 1 Sýking í bringubeini og miðmæti 1 Lungnabólga 4 en sjö daga.8 Einnig voru kannaðar sérstaklega enduraðgerðir og hvort komið hefði til endurinnlagnar sem rekja mátti til aðgerðar- innar. Skurðdauði (operative mortcility) var skilgreindur sem andlát innan 30 daga frá aðgerð. Langtímalifun var könnuð samkvæmt upplýsingum úr Þjóðskrá og miðaðist eftirlit við 31. desember 2010. Meðaleftirfylgd var 8,7 ± 3,8 ár (bil 1,8 - 13,6 ár). Mælingar A lungnastarfsemi og poli Mælingar á lungnastarfsemi, þoli og blóðgösum voru gerðar fyrir aðgerð eftir endurhæfingu og að meðaltali fjórum vikum eftir aðgerð. Lungnastarfsemi var metin með öndunarmælingu (Gould 2400 spirometer, Gould Instruments; Cleveland, OH) þar sem FVC og FEVj voru mæld ásamt lungnarúmmáli (total lung capacity, TLC) með helíumþynningaraðferð. Loftskipti voru mæld með single breath CO aðferð. Þolpróf var gert á þrekhjóli þar sem álag var aukið jafnt og þétt þar til sjúklingur gafst upp eða próf stöðvað vegna einkenna. Mæld súrefnisupptaka (SensorMedics Inc.; Yorba Linda, CA) við hámarksálag á þolprófi var mælikvarði á þol og hámarksálagið sjálft (í vöttum) var skráð sem hámarksafkastageta sjúklings. Slagæðablóðprufur til mælinga á blóðgösum voru tekn- ar sitjandi í hvíld fyrir þolpróf. Skurðtækni Allar aðgerðirnar voru gerðar í gegnum bringubeinsskurð og framkvæmdi sami skurðlæknir (KJ) þær allar. Notast var við tvíopa berkjurennu, annað lungað fellt saman í einu og 20-30% af rúmmáli hvors lunga um sig fjarlægð með heftibyssu (GIA AutoSuture, US Surgical, Cincinnati, OH, USA). Til að fyrirbyggja loftleka var notast við Gore-Tex® bætur til að styrkja heftiraðirnar. I lok aðgerðar var komið fyrir brjóstholskerum í bæði fleiðruhol, þeir tengdir við sog (-20 cm H,0) og bringubeininu lokað á hefð- bundinn hátt með stálvír. Sjúklingarnir voru vaktir á skurðstofu og síðan vistaðir á vöknunardeild í 3-5 klukkustundir áður en þeir fluttust á legudeild hjarta- og lungnaskurðdeildar. Brjóstholskerar voru fjarlægðir þegar loftleki hafði ekki sést í rúman sólarhring og bæði lungu vel þanin á lungnamynd. Fyrstu dagana eftir aðgerð voru verkir stilltir með dreypi sem gefið var í utanbastslegg, en honum var komið fyrir í upphafi svæfingar. Síðan var notast við hefðbundna verkjastillingu. Tölfræði Fyrir samfelldar breytur voru reiknuð meðaltöl með staðalfráviki eða miðgildi og bil gefið upp þar sem við átti. Meðaltöl mælinga fyrir og eftir aðgerð voru borin saman með pöruðu t-prófi. Kaplan- Ár eftir aðgerð Mynd 1. Lífshorfur (Kaplan-Meier) 16 sjúklinga sem gengust undir lungnasmækkun- araðgerð ó íslandi 1996-2008. Lífshorfur eftir eitt.fimm og tíu ár voru 100%, 93% og 63%. Brotnar línur sýna 95% öryggisbil. Meier aðferð var notuð við útreikning á lífshorfum. Tölfræðileg marktækni miðaðist við p-gildi <0,05. Leyfi Sjúklingarnir veittu upplýst samþykki fyrir þátttöku í rann- sókninni en tilskilin leyfi fengust hjá Siðanefnd Landspítala, Per- sónuvernd, og lækningaforstjórum Landspítala og Reykjalundar. Niðurstöður Meðalaldur sjúklinganna sextán var 59,2 ± 5,9 ár (bil 52-72 ár). Sjúklingarnir höfðu allir sögu um reykingar en höfðu hætt reyk- ingum að minnsta kosti sex mánuðum fyrir aðgerðina. Meðal- fjöldi pakkaára var 49 ± 18 (bil 25-80). Á fyrri hluta rannsóknartímabilsins (1996-2001) voru gerðar 12 aðgerðir og fjórar á því síðara (2002-2008). Aðgerðirnar tóku að meðaltali 86 ± 24 mínútur (bil 55-135). Fylgikvillar eftir að- gerð eru sýndir í töflu I. Viðvarandi loftleki var algengastur, eða hjá sjö sjúklingum, og fjórir greindust með lungnabólgu. Fimm sjúklingar gengust undir enduraðgerð, þar af fjórir vegna loss á bringubeini. Einn sjúkling þurfti að endurlífga í enduraðgerð sem gerð var vegna blæðingar í fleiðruhol. Allir sjúklingarnir lifðu af aðgerðina og útskrifuðust af sjúkrahúsi. Miðgildi legutíma var 17 dagar (bil 9-85 dagar). Tveir sjúklingar lágu inni lengur en einn mánuð. Báðir þurftu enduraðgerð og fékk annar þeirra sýkingu í bringubein og miðmætisbólgu. Við eftirlit voru 11 sjúklinganna á lífi. Dánarorsakir hinna fimm voru öndunarbilun (n=3) og lungnabólga (n=2). Mynd 1 sýnir Kaplan-Meier-graf yfir lífshorfur alls sjúklingahópsins og voru eins, þriggja og fimm ára lífshorfur 100%, 93% (95% öryggisbil 80-100%), 63% (95% öryggisbil 42-95%). Mælingar á lungnastarfsemi, hlutþrýstingi súrefnis og koltví- sýrings í slagæðablóði, hámarkssúrefnisupptöku og afkastagetu fyrir og eftir aðgerð eru sýndar í töflu II. FEVj hækkaði um 350 ± 220 mL (p<0,001) og FVC um 370 ± 360 mL (p=0,014). Lungnarúm- 684 LÆKNAblaðið 2011/97

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.