Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.12.2011, Qupperneq 39

Læknablaðið - 15.12.2011, Qupperneq 39
LEIÐBEININGAR textann þannig að öll umfjöllunin rúmist með góðu móti á einni síðu. Gefa þarf upp 4-6 lykilorð á ensku. Yfirlitsgreinar Yfirlitsgreinar geta fjallað um margvísleg læknisfræðileg viðfangs- efni en markmið höfunda ætti að vera að vekja áhuga lesandans á efninu og glæða skilning á því. Oft er um að ræða samantekt á ákveðnum sjúkdómi, sjúkdómaflokki eða meðferð. Textinn verður að byggja á ritrýndum heimildum og vera gagnreyndur (evidence- based). Mikilvægt er að höfundar geti þess hvernig þeir leituðu heimilda, til dæmis hvernig leitað var í rafrænum gagnagrunnum eins og PubMed og Web of Science. Yfirlitsgreinar þurfa að höfða til breiðs lesendahóps og mikilvægt er að hagsmunatengsl hafi ekki áhrif á val á heimildum og túlkun þeirra. Æskilegt er að nota millifyrirsagnir og forðast langar setningar. Einnig er mælt með stuttri samantekt á því helsta sem höfundar vilja koma á framfæri í sérstakri málsgrein í lok greinarinnar. Yfirlitsgreinar mega vera allt að 5000 orð og ágripið að auki 200 orð. Heimildir mega vera allt að 60 og töflur og myndir alls 10 talsins. Hægt er að birta fleiri heimildir, töflur og myndir í netútgáfu blaðsins í samráði við rit- stjórn. Bréf til blaðsins Blaðið er vettvangur fyrir lesendur blaðsins til að tjá sig um ákveðnar greinar eða annað efni sem birst hefur í blaðinu. Mikil- vægt er að textinn sé skýr og höfundar komi sér beint að efninu, enda hámarkslengd 500 orð og fjórar heimildir. Ritstjórn tekur ákvörðun um birtingu bréfa sem send eru til blaðsins. Heimildir Heimildir eru tölusettar í þeirri röð sem þær koma fyrir í texta og er byggt á sömu framsetningu og í PubMed (pubmed.com). Greint er frá nöfnum allra höfunda (einnig íslenskra) samkvæmt enskri ritvenju og allir höfundar tilgreindir, nema ef höfundar eru fleiri en sex, þá er bætt aftan við sjötta nafnið et al. Næst kemur titill greinar, nafn tímarits sem er oft stytt (sjá nlm.nih.gov), birtingarár, árgangur og blaðsíðutal. Tilvitnanir í bækur eru tilgreindar með höfundi, bókartitli, útgefanda, útgáfustað og útgáfuári. Sé vitnað til greina sem eru samþykktar til birtingar en hafa ekki birst á prenti eða netinu er það tilgreint með nafni tímarits og svo er skeytt við „In press" auk ártals aftast í sviga. Avallt þarf að setja mánuð og ártal aftan við netsíðu. Forðast ber tilvitnanir í ágrip, „óbirtar niðurstöður" og „persónulegar upplýsingar". Sé það gert skal tilgreina tímasetningar og nafn þess sem veitti upplýsingar og þess getið í texta og eingöngu þar. Tilvitnanir í munnlegar upp- lýsingar eru ekki leyfðar. Töflur og myndir Myndefni er birt með skýringum á íslensku í prentútgáfu blaðs- ins og á ensku í netútgáfunni. Sérstaklega þarf að gæta þess að persónuauðeinkenni sjúklinga komi hvergi fram á myndum, til dæmis röntgenmyndum. Töflur Töflur skulu númeraðar með rómverskum tölum (tafla I, 11, IV), settar með 1,5 eða tvöföldu línubili og hver tafla á sér síðu í skjalinu sem geymir greinina. Vísa þarf til hverrar töflu í texta og mikil- vægt er að töflutexti sé skýr. Mikilvægt er að töflutexti sé nægi- lega ítarlegur og lýsandi. Allar skammstafanir þarf að leysa upp og skýra á íslensku. Forðast ber að endurtaka í töflu niðurstöður sem þegar hafa verið nefndar í megintexta og þá aðeins helstu niður- stöður. Hér að neðan er dæmi um töflu. Tafla X. Samanburður á aldri og áhættuþáttum kransæðasjúkdóms hjá sjúklingum sem gengust undir opna hjartaaðgerð á Landspítala 2002-2006. Offituhópur n=207(%) Viðmiðunarhópur n=513(%) p-gildi Aldur, ár 64,8 67,2 <0,01 Karlar 168(81,2) 423 (82,5) 0,76 Sykursýki 40 (19,3) 69 (13,4) 0,07 Háþrýstingur 134(64,7) 308 (60,0) 0,16 Reykingar 50 (24,2) 123(23,9) 0,11 Statínlyfjanotkun 173 (83,6) 356 (69,3) <0,01 Myndir Mikilvægt er að velja myndir af kostgæfni og sýna aðeins helstu niðurstöður á myndrænan hátt. Myndir eru númeraðar með tölu- stöfum (mynd 1, 2, og svo framvegis) og vísa þarf í hverja mynd í texta. Hverri mynd þarf að fylgja auðskilinn myndatexti sem líkt og töflutexti þarf að vera nægilega ítarlegur og lýsandi. Útskýra þarf mælieiningar og tákn. Áður en til birtingar kemur er útlit mynda oftast lagfært af grafískum hönnuði Læknablaðsins. Æski- legt er að hafa myndir sem einfaldastar, til dæmis sleppa lituðum bakgrunni og bakgrunnsstrikum (grid lines) og forðast þrívídd. Einnig ber að forðast skæra liti, og línur þurfa að vera nægilega breiðar til að sjást. Höfundar verða að afla birtingarleyfa frá rétt- höfum mynda sem þeir eiga ekki sjálfir og þarf að tiltaka það sér- staklega í myndatexta. Eins og fyrir töflur þarf bæði íslenskan og enskan myndatexta, auk merkinga. Myndir skal senda sem tiff eða jpg í að minnsta kosti 300 pkt upplausn en ekki inni í wordskjali. Myndir verða að vera skýrar og geta þolað smækkun, hvort sem þær eru svart/hvítar eða í lit. Myndir af sjúklingum skulu gerðar ópersónugreinanlegar. Skriflegt leyfi sjúklings þarf fyrir birtingu ljósmynda. Dæmi um myndanotkun má sjá á næstu opnu. Ferill greinar eftir að hún er send til Læknablaðsins Ritrýni og dkvörðun um birtingu Eftir að grein berst til Læknablaðsins er metið hvort hún mæti kröf- um blaðsins um frágang, lengd og útlit. Geri hún það ekki, er hún send aftur til höfunda. Sé frágangur í samræmi við leiðbeiningar blaðsins, úthlutar ritstjóri henni til tveggja lækna í ritstjórn og ber annar þeirra meginábyrgð og velur ritrýna en hinn er til ráðgjaf- ar gerist þess þörf. Ritstjórnarmenn eru valdir með tilliti til efnis greinar og þekkingar þeirra, um leið og reynt er að forðast hags- muna- og vinatengsl við höfunda. Sömu sjónarmið eru höfð að leiðarljósi við val á ritrýnum, en þeir eru alla jafna tveir til þrír LÆKNAblaðið 2011/97 703
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.