Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2011, Síða 52

Læknablaðið - 15.12.2011, Síða 52
UMFJÖLLUN O G GREINAR Aldraðir hafa ólíkar þarfir ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Eva Nilsson Bágenholm var gestur og fyrirlesari á málþingi um siðfræði erfða- rannsókna sem Læknafélag Islands efndi til sem hluta af aðalfundi félagsins í október síðastliðnum. Nilsson hefur nýverið tekið að sér nýtt starf á vegum sænska heilbrigðisráðuneytisins sem felst í samræmingu á þjónustu við aldr- aða á landsvísu í Svíþjóð. Eva Nilsson er fyrrverandi formaður Sænska læknafélagsins og hefur átt sæti í nefnd WMA, alþjóðafélags lækna, sem sett hefur niður tillögur að siðareglum fyrir hið alþjóðlega læknasamfélag, og í fyrir- lestri sínum fór hún yfir þessar tillögur og reifaði hugmyndirnar að baki þeim. „I alþjóðasamfélaginu erum við að fást við mjög mismunandi umhverfi sem ræðst af menningu og lagasetningu hvers lands eða heimshluta. Tillögur WMA beinast að því að samræma siðareglur á heimsvísu en þar eru oft mjög ólík sjónarmið uppi sem þarf að sætta. Þó hefur okkur tekist að setja niður tillögur sem öll aðildarfélög okkar hafa tekið undir." Eitt af því sem Nilsson nefndi í erindi sínu var mikilvægi þess að vísindamenn birtu neikvæðar niðurstöður rannsókna ekki síður en jákvæðar. „Þetta er mikil- vægt til þess að koma í veg fyrir að slíkar rannsóknir séu endurteknar af öðrum, einfaldlega vegna þess að þeir vita ekki af fyrri rannsókn. Vandinn er sá að þeir sem gera rannsókn með neikvæðum niður- stöðum eru lítið spenntir fyrir að birta niðurstöðurnar og þar af leiðandi fréttir alþjóðasamfélagið ekki af rannsókninni. Gleymum ekki að neikvæðar niðurstöður geta beint öðrum í rétta átt." Nilsson segir WMA ekki hafa vald eða umboð til að setja aðildarfélögum sínum lög eða reglur. „Við gerum einungis tillög- ur en með því að aðildarfélögin hafa sam- þykkt þær er líklegra að þau hlíti þeim. Eitt af því sem við höfum lagt áherslu á og allir eru sammála um innan WMA er að þátttakendum í lyfja- eða læknisfræði- legum rannsóknum sé fylgt eftir þegar rannsókninni er lokið. Með þessu er til að mynda átt við að ef hópi sjúklinga hefur í rannsókn verið gefið tiltekið lyf sem skilað hefur góðum árangri, þá fái þeir lyfið eða meðferðina áfram eftir að rannsókninni lýkur. Við þekkjum dæmi um þetta úr þróunarlöndunum þar sem lyfjafyrirtæki hafa öll ráð í hendi sér og stjórna því jafn- vel hverjir sitja í rannsóknasiðanefndum í viðkomandi löndum." Nilsson segir að sem betur fer séu slík dæmi á undanhaldi og rannsóknasiðferði sé yfirleitt í mjög góðu horfi. „Siðareglur WMA hafa verið til í fjóra áratugi og eru endurskoðaðar reglulega með tilliti til breytinga á umhverfi og inntaki rann- sókna." 300.000 aldraðir þurfa mikla þjónustu Eva Nilsson Bágenholm tók nýlega við nýju starfi innan sænska heilbrigðis- ráðuneytisins þar sem henni er ætlað að hafa umsjón með samræmingu félags- og hjúkrunarþjónustu fyrir aldraða í Svíþjóð. Hún segir að rétt eins og annars staðar á Vesturlöndum fari fólki á eftirlaunaaldri fjölgandi, margir séu sjálfbjarga um alla hluti löngu eftir að eftirlaunaaldri er náð en að því komi fyrr eða seinna að samfé- lagið þurfi að hlaupa undir bagga og veita viðeigandi þjónustu. „Þetta er nýtt starf sem ekki hefur verið til áður og því mjög spennandi að takast á við það. Öldrunarþjónusta í Svíþjóð er á hendi þriggja aðila, sveitarfélaganna, sýslnanna og ríkisins. Þessi þjónusta skar- ast að nokkru leyti og menn eru meðvit- aðir um að ýmislegt gæti sparast með því að samræma þjónustuna betur og öðlast betri yfirsýn. Sýslurnar sjá um heilbrigðis- þjónustuna og sveitarfélögin sinna félags- þjónustunni. Hlutur ríkisins er fólginn í fjárveitingum til beggja málaflokka, en þó hafa bæði sýslur og sveitarfélög sína sjálf- stæðu tekjustofna. Langflestir aldraðra þurfa á hvoru tveggja að halda og þar liggja helstu möguleikar okkar á að auka hagkvæmni. Við sjáum fram á að á næstu árum og áratugum muni öldruðum fjölga og því er mikilvægt að koma þjónustu við þennan sístækkandi hóp þjóðfélagsins í sem hagkvæmast horf. Mitt starf felst í því fá sýslurnar og sveitarfélögin til að starfa saman að þessu verkefni, skipta með sér verkum og gæta þess að starfsemin skarist ekki og umbuna þeim sem tekst vel til. Umbunin felst í því að ríkið setur auknar fjárveitingar í málaflokkinn og veitir þær til sveitarfélaga og sýslna sem standa sig vel. Við erum að vinna að því að setja upp nothæfa mælikvarða til að geta metið árangurinn. Við munum gefa niðurstöð- urnar út og það ætti að verða enn meiri hvatning." 716 LÆKNAblaðið 2011/97

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.