Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.04.2012, Side 7

Læknablaðið - 15.04.2012, Side 7
RITSTJÓRNARGREiN Framfaraskref: Ný réttargeðdeild Páll Matthíasson Höfundur er geðlæknir og framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítala, hann er jafnframt klínískur dósent við læknadeild Háskóla íslands. pallmatt@landspitali. is Þann 29. febrúar síðastliðinn opnaði vel- ferðarráðherra nýja réttargeðdeild Land- spítalans á Kleppi. Rétt er að staldra við og skoða hvers vegna þetta er mikiivægt framfara- og umbótaskref. Sagan Er kom fram á 9. áratug síðustu aldar urðu kröfur um réttargeðdeild á Islandi háværar. Slík deild opnaði að lokum árið 1992 en ekki á Kleppi, eins og nærtækt hefði verið, heldur nauðlenti deildin í óhentugu hús- næði að Sogni í Ölfusi. Starfsemin hefur oft sætt gagnrýni síðan. Árið 1999 gerði „CPT-nefndin" töluverðar athugasemdir við aðbúnað að Sogni. Spurt var hvort ekki væri rétt að „flytja stofnunina á staö sem ekki væri eins fjarri höfuðstaðnum og þar sem sjúklingar kynnu að njóta góðs af auð- veldari aðgangi að faglegri þekkingu og aðstöðu til [...] umönnunar."'■2 Árið 2008 tók geðsvið Landspítala út starfsemi Sogns að ósk heilbrigðisráðu- neytisins. Tilefnið var áhyggjur af fag- legu starfi, miklir erfiðleikar við faglega mönnun og rekstrarerfiðleikar. Sjúklingar deildarinnar höfðu kvartað til landlæknis, umboðsmanns Alþingis og Geðhjálpar yfir umönnun og aðstæðum að Sogni. Niður- staða úttektarinnar var sú að Landspítali tók við rekstri Sogns af Heilbrigðisstofnun Suðurlands 1. apríl 2009 og er Sigurður Páll Pálsson yfirlæknir frá þeim tíma. Árið 2008 var rekstrarhalli Sogns tugir milljóna en deildin hefur verið rekin á pari frá 2009. Þverfaglegur hópur fagfólks gjörbreytti umönnun sjúklinga. Húsnæðið var samt áfram tæplega 600 m2 á þremur hæðum, þröngt og hentaði illa til að skapa öruggan ramma utan um starf réttargeðdeildar. Staðsetningin torveldaði endurhæfingu sjúklinga og smæðin stefndi í hættu öryggi starfsmanna og sjúklinga. í janúar 2011 var í ljósi þessa í minnisblaði frá Landspítala til velferðarráðherra hvatt til þess að hefja þegar flutning réttargeðdeildar frá Sogni að Kleppi. Landlæknir studdi þau sjónarmið. Framkvæmdastjórn Landspítala ákvað í októberbyrjun 2011 að loka Sogni og opna nýja réttargeðdeild á Kleppi. Velferðar- ráðherra samþykkti þá ákvörðun og 12. október síðastliðinn tilkynnti leiðarahöf- undur starfsfólki Sogns og síðan öðrum hagsmunaaðilum ákvörðunina. Vinna við nýja réttargeðdeild á Kleppi hófst þegar, en kostnaður við þær breytingar var sem betur fer hóflegur, þar sem hægt var að nýta tvær ónotaðar deildir á 2. hæð aðal- byggingar Klepps. Árangur Sogns Sogn gegndi mikilvægu hlutverki í geðheil- brigðiskerfi landsins í tvo áratugi og starfs- fólk deildarinnar á þakkir skildar fyrir óeigingjarnt starf. Árangur deildarinnar var hins vegar ekki „100%" eins og haldið hefur verið fram, enda óraunhæft að búast við slíku. Af 44 útskrifuðum sjúklingum eru 18% látnir, nær allir fyrir fimmtugt. Árangur var ekki góður hjá 7, þar sem vo- veiflegir atburðir áttu sér stað hjá þremur og fjórir brutu af sér aftur. Ný réttargeðdeild Á Kleppi er aðbúnaður sjúklinga réttargeð- deildarinnar til fyrirmyndar. Húsnæðið er nærri 1000 m2, rammbyggt á einni hæð, með sérinngangi gegnum bjartan garð, umlukinn hárri tvöfaldri girðingu. Betra aðgengi er að fagfólki og háskólasamstarfi, styttra er fyrir fjölskyldur sjúklinga að koma í heimsókn og útskriftarferli fer fram á höfuðborgarsvæðinu þangað sem flestir útskrifast. Öryggi sjúklinga og starfsmanna er miklu betra. Deiidin er stærri og auðveld- ara að aðskilja sjúklinga. Mjög gott öryggis- herbergi er til staðar, öflugt öryggiskerfi, nær öll deildin er í sjónlínu við vakther- bergi, stutt er í þrjár aðrar legudeildir og þar með annað starfsfólk ef þörf krefur. Geta til að sinna lögboðnu hlutverki batn- ar, þar sem deildin stækkar úr 7 í 9 rúm, auk möguleika á frekari stækkun. Nándin við aðrar deildir skapar einnig aðhald og möguleika á að fylgjast náið með gæðum þjónustunnar. í viðbót við ofannefnd fagleg rök er reksturinn nærri fimmtungi ódýrari. Lokaorð Rök finnast á móti lokun Sogns. Þyngst vega þar byggðasjónarmið. Ótti við breyt- ingar og ótti við að fordómar gegn geðsjúk- um magnist eru önnur rök sem hafa heyrst gegn nýrri réttargeðdeild og þá frekar úr hópi eldra fagfólks. Rök með nýrri réttargeðdeild eru þó miklu sterkari. Á heilbrigðisstofnun verða hagsmunir sjúklinga að ganga fyrir. Með nýrri réttargeðdeild á Kleppi er verið að setja í fyrsta sæti hagsmuni þessa við- kvæma sjúklingahóps (með betri og mannúðlegri meðferð og aðstæðum) og hagsmuni þjóðfélagsins í heild (með fleiri plássum, bættu öryggi og minni rekstrar- kostnaði). Jafnframt fékk starfsfólk Sogns nýja vinnu á réttargeðdeildinni á Kleppi ef það óskaði þess. Það er sjaldgæft að hægt sé að slá svo margar flugur í einu höggi og bæta svo ein- dregið þjónustu á sama tíma og rekstrar- hagræðing næst fram. Það er oft sagt að menningarstig þjóða sjáist á því hvernig þær koma fram við sína minnstu bræður. Með því að stíga þetta framfaraskref í með- ferð alvarlega geðsjúks fólks sem hefur orðið fyrir því óláni að fremja glæpi, getum við sem þjóð borið höfuðið hærra. Heimildir 1. Skýrsla Evrópunefndarinnar um varnir gegn pyntingum og ómannúðlegri og niðurlægjandi meðferð og refsingum til ríkisstjómar íslands. Febrúar 1999. 2. Bráðabirgðaskýrsla ríkisstjómar íslands til Evrópunefndar um vamir gegn pyndingum og ómannlegri eða vanvirð- andi meðferð eða refsingu (CPT). 01.10.1999. innanrikis- raduneyti.is/ utgefid-efni/til_nefnda/nr/663 - mars 2012. A drive for quality: a new forensic unit in lceland Dr. Pall Matthiasson MD, MRCPsych, PhD Chief Executive of Mental Health Services, Consultant Psychiatrist, National University Hospital of lceland, Clinical Associate Professor, University of lceland, WHO Counterpart for Mental Health. LÆKNAblaðið 2012/98 199

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.