Læknablaðið - 15.04.2012, Blaðsíða 46
LYFJAEFTIRLIT
þá var læknirinn tengdur sjálfvirkt við
skömmtunarkort sjúklings," segir Ólafur.
„Þetta kemur líka fyrir í rafrænu gátt-
inni þar sem lyfjaávísanir liggja stundum
vikum saman og fólk er búið að gleyma
þegar það kemur í apótekið og veit þá
stundum ekki hvaða lyf það er að sækja,"
segir Magnús.
Þau leggja engu að síður áherslu á að
rafræna lyfjaafgreiðslan sé mun öruggari
og betri en handskrifaðir lyfseðlar en
gallarnir við kerfið er líka nokkrir. „Það
er mjög slæmt að læknar geti ekki aftur-
kallað lyfjaávísun rafrænt og að þeir geti
ekki séð hvaða önnur lyf sjúklingurinn á
þar inni óútleyst frá öðrum læknum."
Magnús nefnir lyfjaflokka sem lyfja-
eftirlitið hefur ekki snúist um en mætti
sannarlega beina sjónum að. „Þjóðin tekur
meira af þunglyndislyfjum en flestar aðrar
þjóðir en það þarf ekki endilega að þýða
að við séum að taka of mikið af þeim.
Kannski erum við komin lengra í með-
höndlun þunglyndis en aðrar þjóðir. Við
notum líka meira af sýklalyfjum en flestar
aðrar þjóðir. Mjög líklega erum við að nota
of mikið af þeim. En þetta hefur alveg
horfið í skuggann af heimsmetinu sem við
eigum í ávísun metýlfenídat-lyfjanna eins
og alþjóð er kunnugt."
„Þjóðin fékk kalda vatnsgusu framan
í sig í júní í fyrra þegar fjallað var um
metýlfenídatnotkunina í Kastljósþáttum
Sjónvarpsins," segir Ólafur. „Við vorum
búin að sjá þetta talsvert löngu fyrr. Hæsti
mánuðurinn í ávísun þessara lyfja var
mars 2010. Aldrei í íslandssögunni hefur
verið ávísað jafn miklu af ávanabindandi
GRIMSBORGIR
YOUR HOLIDAY HOME IN ICELAND
Glæsileg gisting í Grímsnesi
Fyrsta flokks veitingastaður
♦ ♦♦
Lúxus gisting fyrir 64 manns
♦ ♦♦
Árshátíðar - Brúðkaup - Afmælisveislur
♦ ♦♦
Góð fundaraðstaða
----------------------
sími: 555 7878
info@grimsborgir.com
gsm: 897 6802
www.grimsborgir.is
lyfjum og sérstaklega rítalíni. Við viljum
leggja sérstaklega áherslu á hversu slæm
þessi misnotkun á rítalíni er. Helmingun-
artími lyfsins er mjög stuttur og því þurfa
fíklar að sprauta sig mjög oft yfir daginn.
Það eykur sýkingarhættu vegna óhreinna
sprautunála margfalt. Þessu fylgir síðan,
eins og komið hefur fram, stóraukin tíðni
HlV-smita og lifrarbólgu C smittilfella og
við þessu ástandi höfum við að reynt að
bregðast með markvissum hætti alveg frá
haustinu 2010. Við erum ekki farin að sjá
minnkun á ávísunum þessara lyfja ennþá
að neinu ráði en hún hefur allavega ekki
aukist síðan. Það er hins vegar ekki hægt
að sætta sig við að talsvert stór hópur af
ungu fólki sé kominn í verulegan vanda
vegna misnotkunar lyfja sem fengin eru
hjá læknum. Þar þurfa allir að vinna
saman að því að leysa þann vanda og
við höfum ekki orðið vör við annað en
einlægan vilja til þess."
Fjórtán dauðsföll árlega
Undanfarin ár hafa um 14 dauðsföll vegna
ofskömmtunar ávanabindandi lyfja verið
skráð árlega. „Hugsanlega eru þau fleiri,
en sparnaður við réttarkrufningar síðustu
ár hefur haft sín áhrif og enginn réttar-
meinafræðingur er starfandi í landinu,
heldur er fengin réttarmeinafræðingur
frá Þýskalandi þegar ástæða þykir til. Það
er hins vegar ástæða til að nefna að í 134
dauðsföllum vegna ávanabindandi lyfja
á árabilinu 2002-2011 kom eitt ákveðið
verkjalyf, tramadól, við sögu í 37 tilfellum.
Þetta er morfínskylt verkjalyf sem sagt er
lítið ávanabindandi og er talsvert ávísað
en greinilegt að margir eru að misnota það
með svona skelfilegum afleiðingum."
Verði dauðsfall af völdum lyfjanotkun-
ar skoðar lyfjaeftirlitið allar ávísanir á við-
komandi 90 dögum fyrir andlátið. „Ef þar
er eitthvað sem við teljum athugunarvert
er viðkomandi læknir látinn vita. Læknar
hafa almennt lýst ánægju sinni með lyfja-
eftirlitið og núna er lyfjagagnagrunnurinn
uppfærður á tveggja vikna fresti. Helst
vildum við ná því sem næst rauntíma og
að læknar hefðu beinan aðgang að grunn-
inum."
238 LÆKNAblaðið 2012/98