Læknablaðið - 15.04.2012, Blaðsíða 4
4. tölublað 2012
LEIÐARAR
FRÆÐIGREINAR
199
Páll Matthíasson
Framfaraskref: Ný
réttargeödeild
Á heilbrigðisstofnun ganga hags-
munir sjúklinga fyrir. Á réttargeð-
deild á Kleppi eru hagsmunir við-
kvæms sjúklingahóps settir efst:
með betri og mannúðlegri með-
ferð og aðstæðum, og hagsmunir
þjóðfélagsins í heild: með fleiri
plássum, bættu öryggi og minni
rekstrarkostnaði.
201
Emil L. Sigurðsson
Skimun fyrir krabba-
meini í biöðruhálskirtli
Enginn velkist í vafa um að rann-
saka eigi menn með einkenni sem
gætu stafað af blöðruhálskirtils-
krabbameini. En hvernig á að
leiðbeina einkennalausum körlum?
Hvorki vísindalegur grunnur né
greiningartæki réttlæta skimun
fyrir krabbameini í blöðruhálskirtli.
203
Sigurður Ragnarsson, Martin Ingi Sigurðsson, Ragnar Danielsen,
Þórarinn Arnórsson, Tómas Guðbjartsson
Árangur míturlokuskipta á íslandi
Sjúklingar með þrengsli eða leka í miturloku fá skipti en án meðferðar getur
orðið alvarleg hjartabilun. Gigtsótt er algengasta ástæðan og í þróunarlönd-
um er hún enn landlæg og míturlokuþrengsli algeng. Hér á landi er gigtsótt
sjaldgæf og á Vesturlöndum greinast ný tilfelli aðallega í innflytjendum.
211
Bjarni Guðmundsson, Albert Páll Sigurðsson, Anna S. Pórisdóttir
Stífkrampi - tilfelli og yfirlit
Hér er eina dæmið um stífkrampa á íslandi síðustu 30 ár en hann var alvar-
legt vandamál áður fyrr. Ginklofi (ungbarnastífkrampi - tetanus neonatorum)
var faraldur í Vestmannaeyjum í margar aldir með dánartíðni ungbarna um
60-80%. Annars staðar á landinu dóu um 30% barna úr þessum sjúkdómi
en í Danmörku 15-20%.
217
Magnús Jóhannsson, Sigríður Haraldsdóttir
Rannsóknir í lyfjafaraldsfræði á íslandi
Lyfjafaraldsfræði rannsakar verkanir lyfja. Hérlendis hafa byggst upp gagna-
söfn sem eru öflug tæki til rannsókna af þessu tagi. Gagnsemi safnanna
felst í að þau séu persónugreinanleg og hægt að samkeyra þau. Lyfjagagna-
grunnur landlæknis nær til ársins 2002 og er lyftistöng fyrir lyfjafaralds-
fræðilegar rannsóknir og hefur gjörbreytt stöðu þeirra. I greininni er yfirlit yfir
helstu gagnasöfn í landinu.
225
Guðni Arnar Guðnason, Sigríður Þórdís Valtýsdó ttir, Trausti Valdimarsson,
Stefán Þorvaldsson, Þorvaldur Magnússon
Karlmaður með lækkað natríum, slappleika og
megrun vegna æxlis í heiladingli
Áttræður maður reyndist of slappur fyrir endurhæfingu en eftir lyfjameðferð í
nokkrar vikur jókst þrekið og þýroxín i sermi mældist 15,3 pmól/l í stað 10,6
pmól/l áður, og natríum fór úr 122 mmól/l í 136 á 5 dögum. Maðurinn þyngd-
ist um 12 kg á tveimur mánuðum og gat hafið endurhæfingu.
Hugmynd að dagskrá?
LÆKNADAGAR 2013 VERÐA DAGANA 21.-25. JANÚAR í HÖRPU
Þeir sem vilja leggja til efni i dagskrá Læknadaga sendi hugmyndir sínar
til Margrétar Aðalsteinsdóttur magga@lis.is fyrir 10. maí nk.
Fram komi hvort óskað er eftir þátttöku Fræóslustofnunar við að greiða kostnað vegna komu
erlends fyrirlesara.
Undirbúningsnefnd
196 LÆKNAblaðið 2012/98