Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2012, Blaðsíða 42

Læknablaðið - 15.04.2012, Blaðsíða 42
UMFJÖLLUN O G GREINAR Böndum brugðið á fílinn Tryggvi Þorgeirsson umsjónardeildarlæknir á Barnaspítala Hringsins lauk meistara- námi í lýðheilsufræðum við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum síðastliðið vor. Þar kynnti hann sér meðal annars kenningar atferlishagfræðinnar sem hefur lagt til ný vopn í baráttunni gegn óhollustu, offitu og lífsstílssjúkdómum. ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson „Læknar og aðrir sem starfa að lýðheilsu- málum þekkja oft áhættuþætti sjúkdóma og hvað þarf að gera til að draga úr áhættu. Hins vegar reynist oft flókið að fá fólk til að breyta hegðun sinni og taka upp annan og hollari lífsstíl. Það hefur oft takmörkuð áhrif að fræða menn um hætturnar af núverandi lífsstíl og kostina við að hætta að reykja, breyta mataræði og hreyfa sig meira. Við stöndum frammi fyrir því að okkar vantar betri leiðir til að hafa áhrif á fólk, fá það til að breyta hegðun sinni. Þar getur atferlishagfræðin nýst," segir Tryggvi í upphafi samtals okkar. „Atferlishagfræðin sameinar rann- sóknir í hagfræði og sálfræði í þeim tilgangi að skýra hegðun fólks og hefur sviðið í vaxandi mæli beint sjónum sínum að heilsutengdri hegðun. Líkt og í venju- legri hagfræði er gert ráð fyrir að hvatar og markaðslögmál hafi áhrif á hegðun, en því til viðbótar gerir atferlishagfræðin ráð fyrir mannlegum breyskleika af ýmsum toga. Þar má nefna að okkur skortir oft upplýsingar, tíma eða úrvinnslugetu og getum því ekki tekið fullkomlega skyn- samlegar ákvarðanir við öll tækifæri. Rannsóknir sýna að stór hluti ákvarðana okkar er ómeðvitaður og hafa þá ytri þættir gjarnan mikil áhrif. Á þessu hafa verið gerðar margar athyglisverðar og skemmtilegar rannsóknir þar sem meðal annars er sýnt fram á að magn þess sem við borðum og drekkum stýrist oft frekar af ytri viðmiðum, svo sem stærð og lögun diska, glasa og umbúða, en af innri við- miðum einsog seddutilfinningu. Til dæmis borðuðu þátttakendur í rannsókn ríflega 30% meira úr stórum poppkorns- fötum en litlum og helltu allt að 90% meira í lág og breið glös en í há og mjó glös af sömu stærð. Einföld ráðlegging til fólks sem vill borða minna er því hrein- lega að nota minni diska og minni glös. Rannsókn á tveimur hópum fólks sem var til meðferðar vegna offitu sýndi að annar hópurinn sem fékk enga meðferð aðra en þá að þeim var afhentur lítill diskur sem búið var að teikna á hæfilegar skammta- stærðir og 10 mínútna útskýringar á notk- un hans léttist meira á næstu 6 mánuðum en viðmiðunarhópurinn sem fékk engan disk en ítarlega fræðslu um rétt mataræði og hvernig best væri að bera sig að við að létta sig. Þarna kom viljastyrkur eða þekk- ing ekkert við sögu. Það er reyndar dæmi- gert fyrir margt í atferlishagfræðinni hversu einfaldar lausnirnar eru og hvað þær kosta lítið. Það getur skipt verulegu máli þegar lýðheilsa heillar þjóðar er við- fangsefnið að lausnirnar séu ódýrar enda getur smávægileg breyting til hins betra hjá stórum hópi fólks dregið verulega úr kostnaði samfélagsins við lyf og heil- brigðisþjónustu. Annað dæmi um ódýra lausn kom fram í nýlegri lítilli rannsókn þar sem grænmetisneysla skólabarna jókst marktækt þegar myndir af grænmeti voru límdar á matarbakka þeirra. Inngripið kostaði þrjá dollara fyrir hverja 100 bakka og virtust áhrifin sambærileg og eftir dýrt og tímafrekt inngrip þar sem börnin fengu endurtekna kennslu um hollustu grænmetis." Hvatvísi og rökhhugsun Tryggvi vísar einnig £ kenningar og rann- sóknir Daniels Kahneman, en hann er sálfræðingur sem hlaut Nóbelsverðlaun í hagfræði árið 2002 fyrir rannsóknir sínar í atferlishagfræði. „Það var kenning hans um tvískipt hugsanaferli, eða Diml Process Theory á ensku, sem vakti upphaflega áhuga minn á þessum fræðum. Rann- sóknir hans og annarra hafa bent til þess að hegðun og atferli stýrist af tveimur aðskildum hlutum heilans. Kahneman kallar þetta Kerfi 1 og Kerfi 2. í Kerfi 1 tökum við hraðar ákvarðanir, oftast ómeð- vitað og áreynslulaust og byggjum mjög á tilfinningum og hvötum. Þetta kerfi svarar að verulegu leyti til svokallaðra mesólimbískra dópamínbrauta heilans og hefur sterk áhrif á hegðun okkar. Kerfi 1 er stundum nefnt „fíllinn" með hlið- sjón af því hve erfitt er að halda aftur af því er það tekur á rás. Kerfi 2 svarar hins vegar einkum til framheilans og hýsir meðvitaða rökhugsun. Þar tekur ákvarð- anataka lengri tíma og krefst meiri orku og benda rannsóknir til þess að minni- hluti ákvarðana eigi sér stað hér. Kerfi 2 er stundum nefnt „fílatemjarinn" í ljósi þess að kerfið getur beitt skynsemi til að leiða fílinn á réttar brautir en hefur sjaldan afl til að halda aftur af honum þegar hvatir og tilfinningar koma honum á fullt skrið. Þegar fílatemjarinn reynir að halda aftur af fílnum með valdi tölum við um að beita viljastyrk en rannsóknir benda til þess að viljastyrkur sé hliðstæður vöðvastyrk að mörgu leyti. Hægt er að auka vilja- styrk með þjálfun en hins vegar þreytist hann við stöðugt álag og þarf hvíld og endurnýjaða orku. Því þreyttari sem við erum og því meira sem ytra áreiti, álag og hraði ákvarðana er, því meira stýrumst við af hinu hvatvísa og áreynslulausa Kerfi 1. Þetta var meðal annars sýnt fram á í skemmtilegri rannsókn þar sem tveir hópar þátttakenda voru látnir reyna mis- mikið á úrvinnslugetu heilans og voru síðan beðnir um að velja á milli súkku- laðiköku og ávaxtaskálar. Helmingur hópsins þurfti einungis að leggja tveggja stafa tölu á minnið og var því undir litlu álagi, en hinn helmingurinn þurfti að muna 7 stafa tölu. í ljós kom að hópurinn sem var undir meira álagi valdi 50% oftar súkkulaðikökuna." Tryggvi bendir á að rannsóknir sýna að atferli okkar og ákvarðanir stýrast í meirihluta tilfella af hinu hvatvísa Kerfi 1. Þetta hafi framleiðendur og seljendur matvæla, áfengis og tóbaks lengi nýtt sér í markaðssetningu. „Þar er höfðað til hvata og tilfinninga með myndum af kynþokkafullu og brosandi fólki, sjálf- stæðum kúrekum og svo framvegis. Þeirri 234 LÆKNAblaðið 2012/98
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.