Læknablaðið - 15.04.2012, Blaðsíða 51
BOSTON CONSULTING GROUP
Rangar niðurstöður um sykursýki
í skýrslu Boston Consulting Group
Ástráður B.
Hreiðarsson
Innkirtlalæknir,
yfirlæknir á göngudeild
sykursjúkra
astradur@landspitali. is
í janúarhefti Læknablaösins var sagt frá
fundi í Læknafélagi Reykjavíkur, þar sem
fjallað var um skýrslu hins sænska Boston
Consulting Group (BCG) um íslenska heil-
brigðiskerfið.1 A þessum fundi munu hafa
komið fram veigamiklar athugasemdir
við sumar niðurstöður skýrslunnar.
Meðal annars greindi Þórarinn Guðnason
hjartalæknir frá röngum niðurstöðum og
ályktunum sem varða starfsemi hjarta-
lækna, og sem hann hefur farið fram á við
velferðarráðuneytið og skýrsluhöfunda að
verði leiðréttar.2
Fleiri leiðréttinga er þörf
Mörgum hefur komið á óvart að í skýrslu
BCG fær meðferð sykursýki á íslandi lága
einkunn.
Það sem einkum virðist ráða því mati er
fjöldi bráðainnlagna vegna sykursýki sem
hlutfall af fjölda sykursjúkra.
Því miður hefur skýrsluhöfundum BCG
þarna orðið á í messunni. Þeir ganga út frá
alltof lágum tölum um algengi sykursýki á
Islandi. Þeim er kannske vorkunn, en þeir
hafa upplýst að þessar tölur séu fengnar
úr OECD-skýrslu frá 2009 „Health at a
Glance". Þarna virðist vera um að ræða
eldri og ónákvæmari tölur en við höfum
í dag. Út frá því lága algengi reikna þeir
út að bráðainnlagnir vegna sykursýki séu
hlutfallslega hærri hér en á hinum Norður-
löndunum og þar með fær ísland lága
einkunn.
Sem betur fer eru til nokkuð áreiðan-
legar tölur um algengi sykursýki á íslandi,
þakkað veri hóprannsóknum Hjarta-
verndar, en síðustu niðurstöður birtust
í ágætri grein í Læknablaðinu árið 2009.3 í
þeirri grein kemur fram að árin 2004-2007
hafi algengi sykursýki af tegund 2 hér á
landi verið um 4% hjá aldurshópnum 25-84
ára. Út frá tölum Hjartaverndar má varlega
áætla að algengi sykursýki hjá þjóðinni
allri sé að minnsta kosti 2,7% í stað 1,6%,
sem er sú tala sem BCG byggir útreikninga
sína á.
Upplýsingar um ísland í nýlegri útgáfu
Alþjóðasykursýkisamtakanna (IDF) byggja
einnig á niðurstöðum Hjartaverndar.4
Undirritaður benti skýrsluhöfundum á
ofangreint misræmi og í framhaldi af því
var mér send leiðrétt tafla sem gengur út
frá 2,7% algengi.
I stað „Highest index of acute admis-
sions adjusted for prevalence" stendur nú
„Acute admissions adjusted for prevalence
average in Nordics", það er bráðainn-
lagnir vegna sykursýki hér eru ekki fleiri
en meðaltalið á hinum Norðurlöndunum.
Hvað viðvíkur dánartíðni vegna sykursýki
stóð í skýrslunni: „Mortality index adjus-
ted for prevalence is average for Nordics"
en eftir leiðréttingu lítur þetta svona út:
„Mortality index adjusted for prevalence
is low compared to Nordics", það er hlut-
fallsleg dánartíðni hér er lægri en á hinum
Norðurlöndunum.
Einn skýrsluhöfunda, Elisabeth Han-
sen, segir orðrétt í svari til undirritaðs:
„As this report was produced in only 5
weeks and covered the entire health care
system we unfortunately did not have time
to discuss the findings with representati-
ves of each specialty which we very much
would have liked to have done."
Ég læt öðrum eftir að dæma um hvort 5
vikur sé nægilegur tími til þess að taka út
heilbrigðiskerfi heillar þjóðar þótt smá sé.
Flestum er kunnugt samhengið milli
offitu og sykursýki af tegund 2. í BCG-
skýrslunni kemur fram að offita sé í mik-
illi aukningu hér á landi „Obesity is inc-
reased rapidly in Iceland" og að við séum
nálægt heimsmethöfum (Ameríkönum) í
þeirri grein og langfremstir Norðurlanda.
Á sama tíma skrifa skýrsluhöfundar að
algengi sykursýki sé mjög lágt, það er 1,6%
miðað við 6,3%, sem er OECD-meðaltal, án
þess að velta neitt vöngum yfir því.
Ofangreind rannsókn Hjartaverndar
sýndi einmitt fram á mikla aukningu í
algengi sykursýki af tegund 2 hér á landi
samfara mikilli aukningu í líkamsþyngd
þjóðarinnar á undanförnum árum og
áratugum.3
Rétt er að taka fram að eitt af því sem
BCG finnur réttilega að í sinni skýrslu
er vöntun á sykursýkigagnagrunni. Sótt
hefur verið um að koma upp slíkum
gagnagrunni við Landspítala en því miður
hefur það ekki hlotið náð fyrir augum
Persónuverndar.
Ég verð að viðurkenna að mér fannst
við lestur BCG-skýrslunnar ómaklega
vegið að þeim fjölmörgu sem sinna með-
ferð sykursjúkra á íslandi. Það er heldur
ekki léttvægt að ákveðnir sjúklingahópar
þurfi að heyra það að meðferð þeirra sé
ábótavant þegar þær upplýsingar byggja á
röngum forsendum.
Eitt af helstu markmiðum sykur-
sýkimeðferðar er að koma í veg fyrir
fylgikvilla sykursýki og víða er árangur
meðferðar sykursjúkra metinn eftir því.
Hingað til höfum við íslendingar ekki far-
ið illa út úr slíku mati, og enn sem komið
er eru blinda og nýrnabilun hlutfallslega
mun sjaldgæfari hér en víðast annars
staðar. Óskandi er að svo verði áfram, en
ekki víst.
Ýmsar blikur eru nú á lofti í heilbrigðis-
málum sem því miður gætu haft neikvæð
áhrif á meðferð og horfur sykursjúkra.
Heimildir
1. The Boston Consulting Group. Health Care System reform
and savings opportunities. Iceland Health Care System
project. 7. Oct. 2011.
2. Sigurjónsson H. Þekking okkar á málunum er ekki nýtt.
Læknablaðið 2012; 98:40-2.
3. Þórsson B, Aspelund T, Harris TB, Launer U, Guðnason
V. Þróun holdafars og sykursýki í 40 ár á íslandi. Lækna-
blaðið 2009; 95: 259-66.
4. IDF Diabetes Atlas. Fifth Edition. 2011:102-3.
LÆKNAblaðið 2012/98 243