Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2012, Blaðsíða 10

Frjáls verslun - 01.10.2012, Blaðsíða 10
10 FRJÁLS VERSLUN 11. 2012 Icesave-ummæli ársins „Ég er eiginlega feginn að ég tók þetta verkefni að mér. Einhver varð að gera það.“ – Svavar Gestsson í sunnudagsblaði Morgunblaðsins 16. desember 2012. Til bjargar Grikklandi! „Það er svona í gríni. Til Grikklands? Ég hef farið margar ferðir til Wash- ington og þurft að fylgja eftir okkar málum þar. Og þegar við vorum þar núna að kynna okkar mál. Og fyrsta úttektin á okkur eftir að við lukum samstarfinu, sem var jákvæð. Þá var nú svona verið að spjalla á göngun­ um og ein spurningin var sú hvort ég væri ekki tilbúinn að koma og taka að mér Grikkland í sex mánuði. Og ég sagði nú nei takk.“ Steingrímur J. Sigfússon, þáverandi fjármálaráðherra, í Silfri Egils 20. maí 2012. Nokkur ummæli Brottför ársins „Nú tel ég tímabært að aðrir taki við keflinu sem mér var falið í kjölfar hrunsins. Að loknu þessu kjörtímabili hef ég því ákveðið að láta af þátttöku í stjórnmálum.“ – Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar í tölvupósti til sam- fylkingarfólks 27. september 2012. StreNgur árSiNS Er án efa sæstrengurinn sem Landsvirkjun skoðar núna hvort borgar sig að leggja milli Íslands og Evrópu. Þessi strengur, sem sumir vilja kalla sjóhund, yrði lengsta innstungusnúra í heimi og myndi að sumra mati færa Íslendingum mikilvæga gjaldeyrisuppsprettu. Hvort sem verðlag á rafmagni í Evrópu er fimm, tíu eða tuttugu sinnum hærra en hér á innanlandsmarkaði myndi líklega borga sig að selja. Þetta yrði hins vegar stærsta framkvæmd Íslandssögunnar ef af verður, líklega tvöföld Kárahnjúkavirkjun. FiSkur árSiNS Makríllinn er án efa fiskur ársins og það annað árið í röð. Það fer vel á því enda er hann farinn að hrygna við strendur lands ­ ins. Hann hefur fært þjóðarbúinu mikil væg ­ ar gjaldeyristekjur en um leið hefur hann skapað mikla aukavinnu hjá utanríkisráðu ­ neytinu. Ef marka má Össur Skarphéðins­ son utanríkisráðherra hefur stór hluti af tíma utanríkisráðuneytisins farið í að róa þjóðir Evrópu vegna makrílsins. Veiðin á hon um herfur skilað þjóðarbúinu hátt í 30 millj arða í aukið aflaverðmæti undanfarin ár. kíNverji árSiNS Hér er skiljanlega úr stórum hópi að velja en við Íslendingar hljótum að vera sammála um að Huang Nubo sé Kínverji ársins. Áhugi hans á að byggja hótel í íslenskri auðn hefur komið af stað miklu róti meðal þjóðarinnar. Í stuttu máli má segja að heimamenn vilji leyfa honum þetta en aðrir ekki. Um leið hafa margir Íslendingar gerst sérfræðingar í erlendri fjárfestingu. Deiluefnið er eldfimt og ekki verður séð á þessari stundu hvort Nubo verður að ætlun sinni. AFmæliSbArN árSiNS Kringlan hefur verið fjölsóttasti verslunarstaður Íslendinga í aldar­ fjórðung en hún fagnaði 25 ára afmæli sínu 13. ágúst. Frá því Kringl an var opnuð árið 1987 hafa tæplega 125 milljónir gesta lagt leið sína þangað og tekur hún við rúmlega fimm milljónum gesta árlega. Allt þetta gerir Kringluna að vinsælasta afmælisbarni ársins. annáLL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.