Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2012, Side 50

Frjáls verslun - 01.10.2012, Side 50
50 FRJÁLS VERSLUN 11. 2012 sögu. Nýlega var sagt frá því í fréttum að lán þýskra banka til Suður-Evrópu væru lítill hluti af vanda bankanna. Þýsku bank - arnir hefðu lánað margfalt hærri upp hæðir til smíða á flutningaskipum en til jaðar- ríkjanna á evrusvæðinu. Farskipin eru veð sett fyrir lánunum en verð skipanna hefur lækkað vegna offramboðs og kreppu og veðin eru nú neðan sjávarlínu, ef marka má fréttina. Ég hef óljósa hugmynd um það að bankar í norðrinu standi almennt verr en gefið hefur verið í skyn. Nú streyma einnig nýjar fréttir frá Frakklandi um að hagkerfi lands ins sé í vanda vegna hallarekstrar og vegna þess að helstu atvinnuvegir eru ekki samkeppnishæfir alþjóðlega. François Hollande, nýkjörinn forseti, hefur lofað því að nota ekki „gömlu íhaldsúrræðin“ til að leysa vandann. Annar jafnaðarmaður, François Mitterrand, lofaði því sama þegar hann tók við forsetaembætti í Frakklandi árið 1981. Mitterrand reyndi meðal annars að útrýma atvinnuleysi með því að fjölga opinberum starfsmönnum, hækka laun, stytta vinnuvikuna, lengja sumarleyfin og hækka skatta. Kreppan dýpkaði og Mitterrand lærði sína lexíu og það mun Holl ande einnig gera, en það tekur tíma. Ég sé ekkert athugavert við það að gengi evrunnar lækki gagnvart öðrum gjald miðl - um, ef svo ber við. Mesti vandi Frakka og margra annarra þjóða á evrusvæðinu er samkeppnishæfni en til að breyta henni þarf pólitískan vilja og samstöðu meðal þjóðarinnar og þessi samstaða og vilji eru oft ekki fyrir hendi. Sérð þú fyrir þér að Grikkir og jafn vel Spánverjar séu á leiðinni út úr evru- samstarfinu og telurðu að björg unar- sjóðurinn dugi t.d. Ítölum og Spán- verjum? Ég svaraði þessari spurningu hér í Frjálsri verslun haustið 2011 og sagðist ekki eiga von á því að Grikkir hættu í evru sam starf- inu. Þá spáðu margir sérfræðingar því að það væri spurning um vikur en ekki mán uði að Grikkir hættu að nota evruna. Ég er á sömu skoðun um Spánverja, þeir munu hanga í evrunni. Ástæðan er fyrst og fremst ótti ráðamanna í Evrópusambandinu við að útganga Grikkja eða Spánverja úr myntsamstarfinu kunni að skapa hættu - legan glundroða á öllu svæðinu. Ef björg- unar sjóðurinn dugar ekki verður gripið til annarra ráða svo sem peningaprentunar. Framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins, hin franska Christine Lagarde, segir að enn séu verstu hliðar efna- hagsþrenginga í Evrópu ekki komnar fram, þar sem áhrif af miklum niðurskurði opinberra útgjalda muni til skamms tíma dýpka vandamál ríkja í álfunni. Það muni reyna á heimsálfuna, en aðgerðirnar séu nauðsynlegar til lengri tíma litið. – Hvernig metur þú þjóðfélagsástandið í Evrópu – sem þegar er heitur pottur sem kraumar í – ef enn á eftir að harðna verulega á dalnum? Ég sagði áðan að engin einföld lausn á efnhagsvandanum í Evrópu blasir við vegna þess að uppsafnaðar skuldir takmarka úrræðin sem koma til greina. Ef einnig er rétt að víða þurfi að auka sveigjanleika á vinnumarkaði og breyta lagaramma fyrir- tækja svo að þau geti keppt við erlenda framleiðendur taka slíkar aðgerðir nokkur ár og eru oft mjög óvinsælar. Ég vona að Evrópa rétti fljótlega úr kútnum og öfga- hópum vaxi ekki ásmegin. Innan Evrópusambandsins hefur verið mikið rætt um að stíga skrefið frá ríkja- sambandi til sambandsríkisins Evrópu sem setti fjárlög fyrir allt svæðið. – Sérð þú fyrir þér að þetta skref verði stigið á næstu árum? Ég hef grun um að þróun í átt að sam bands- ríki verði hægfara. Oft er sagt að Bretar standi gegn aukinni miðstýringu í Evrópu - sambandinu, sem er rétt, en ég álít að Við þurfum að endurskoða stöðu Íslands í umheiminum. Mig dreymir um að Ísland verði eins konar nýtt Hong Kong með öfluga samvinnu í efna- hagsmálum við Norðurlöndin og Grænland, við Evrópusambandið og Bandaríkin og við rísandi ríki í þriðja heiminum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.