Frjáls verslun - 01.10.2012, Blaðsíða 52
52 FRJÁLS VERSLUN 11. 2012
að stjórnvöld hafa yljað sjávarútvegnum
undir uggum, svo að um munar, undanfarin
misseri án þess að hafa haft sérstaka heimild
til þess í sjálfri stjórnarskránni. Stjórnvöld
taka nú ákvarðanir um smæstu atriði, svo
sem að veiðiréttindi eru skert ef bátur notar
vélar til að beita línu.
Í nýja frumvarpinu hafa stjórnmálamenn
stjórnar skrárvarin réttindi til að mið-
stýra nýtingu náttúruauðlinda, ef þeir svo
kjósa, en það virðist vera vilji núver andi
stjórnvalda. Þess vegna tel ég að eignar -
réttarkaflar frumvarpsins séu hættulegir.
Það verður að takmarka aðgang stjórnmála -
manna að náttúruauðlindum okkar. Loks
boðar frumvarpið róttækar breytingar á
stjórn kerfi landins á fjölmörgum sviðum.
Ég leyfi mér að fullyrða að ekki nokkur sála
hefur minnsta grun um það hvernig nýja
kerfið mundi virka, enda hefur engin tilraun
verið gerð til að meta afleiðingarnar.
Mín fyrstu viðbrögð eru þau að kerfis-
breyt ingin geti sett stjórnkerfið í hnút –
Ameríkumenn nota orðið „gridlock“ um
slík vandamál. Sem sé, á þessu stigi frum -
varpsins er mannréttindakaflinn vaðall, það
sem sagt er um eignarrétt býður hættunni
heim og alger óvissa ríkir um afleiðingar af
boðuðum breytingum á stjórnkerfinu.
uM árið 2013 oG
nÝJA MynT á ÍslAndi
Árið 2013 verður kosningaár á Íslandi.
Hvað er brýnasta verkefni nýrrar ríkis-
stjórnar í efnahagsmálum?
Erfiðar ákvarðanir bíða nýrrar ríkisstjórnar
en þær lúta að fjármagnshöftunum, mynt-
málum, umhverfi atvinnulífsins, siðvæðingu
og fjölmörgu öðru. Fjármagnshöftin hafa
eitrað út frá sér og virðast vera að festast
í sessi. Því hefur verið haldið fram að við
hefðum átt að taka skellinn strax og hefta
ekki fjármagnsflutninga til og frá landinu.
Ég held þó að enginn viti með vissu hvar
sú leið hefði endað. Það er mikilvægt fyrir
útflutningsgreinarnar að losna undan
höftunum og ég vona að þau líði smám
saman burt, þegjandi og hljóðalaust – en
það er óskhyggja en ekki spá.
Við munum búa við krónuna næstu árin,
vænti ég. Það hefur ýmsa alkunna kosti að
taka upp heimsmynt svo sem evruna, en
einnig fylgja því vandamál og hættur. Ef
íslenska hagkerfið er ekki í takt við leið-
andi hagkerfi í slíku myntsamstarfi get ur
skapast sambærilegur vandi og nú ríður
yfir Grikkland. Ég óttast sérstaklega slæmar
afleiðingar af verðbólguvæntingum og
óstýrilæti Íslendinga, ef við tökum upp
alþjóðlega mynt. Í Þýskalandi, til dæmis,
er verð á vöru og þjónustu stöðugt eða
það hækkar eftir langt hlé um 1-3 prósent.
Á Íslandi, svo sem á þessu ári, hækka
einkaaðilar taxta sína hiklaust um 20-25
prósent og sama gildir um opinbera þjón-
ustu. Almenn laun fylgja á eftir. Ef við
notum erlenda mynt og slíkar hækkanir
eiga sér stað mundi fljótlega kom að því
að útflutningur okkar væri ekki lengur
samkeppnishæfur og kreppa riði yfir. Til
að setja hagkerfið aftur í gang væri nauð -
synlegt að lækka verðlagið í landinu.
Jafnvel þótt almennt samkomulag væri
um lækkun verðlags vill enginn verða
fyrstur til að lækka sín laun og taxta.
Atvinnu leysi mundi þá breiðast út og ef
til vill missti fjórðungur eða þriðjungur
launþega vinnuna – eins og við höfum séð
gerast í Grikklandi og á Spáni. Að liðnum
nokkrum misserum mundu atvinnulausir
bugast og launin lækka uns jafnvægi væri
náð. Og menn mundu sennilega læra sína
lexíu og hugsa upp frá því eins og Þjóð -
verjar um verðlagsmál. En þetta ferli er
hræðilegt og oft gróðrarstía fyrir pólitískar
öfgahreyfingar.
Við þurfum einnig að endurskoða stöðu
Íslands í umheiminum. Mig dreymir um
að Ísland verði eins konar nýtt Hong Kong
með öfluga samvinnu í efnahagsmálum við
Norðurlöndin og Grænland, við Evrópu -
sambandið og Bandaríkin og við rísandi
ríki í þriðja heiminum. Það þarf stjórnvisku
og aga ef slíkt dæmi á að ganga upp og
hvort tveggja er af skornum skammti
hér lendis. Sumir af félögum mínum hafa
haldið því fram að skortur á stjórnvisku og
aga séu sterk rök fyrir því að Ísland gangi í
Evrópusambandið. Reynsla jaðarþjóðanna
í sambandinu undanfarið bendir þó til þess
að Brussel flytji ekki út stjórnvisku og aga í
miklu magni.
uM ÞÖGGun ÞeirrA seM sTÝrA
uMrÆðunni
Ég var í Berlín í leyfi frá Háskóla Íslands
haustið 2008, þegar íslensku bankarnir þrír
hrundu. Ég skrifaði þá grein í Morgunblaðið
og sagðist óttast félagslegar og pólitískar
afleiðingar hrunsins meira en fjármálalegu
afleiðingarnar. Sem betur fer var þessi ótti
minn ástæðulaus, hér hafa ekki risið upp
voldugar pólitískar öfgahreyfingar. En eðli
svokallaðrar umræðu hefur versnað, margir
hafa sýnt sínar verstu hliðar og eiturský
neðan úr dýpstu holræsum netheima hvílir
yfir landinu. Hvar sem ég kem kvarta
nær allir meira undan eitraðri umræðu en
efnahagsvandanum. Fólk hefur dregið sig
í hlé, forðast það að tjá skoðanir sínar til
að losna við svívirðingastraum úr munni
þeirra sem að mestu ráða umræðunni. Jafnt
prófessorar sem æðstu ráðamenn ríkis ins
reyna að þagga niður gagnrýni með ógeð-
felldum persónulegum svívirðingum. Mál
er að linni.
„Efnahagsbati er
yfir leitt háður því að
útflutningsgreinar
kreppuríkja séu vel
reknar og geti keppt
á erlendum mörk-
uðum.“
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.eimskip.is
eimskip færir þér óskir
um gleðilegt nýtt ár
Eimskipafélag Íslands er stór vinnustaður með starfsemi um allan
heim. Fyrirtækið hefur verið mikilvægur hlekkur í atvinnulífi Íslendinga
í tæp 100 ár með flutningastarfsemi á ýmsum sviðum. Eimskip leitast
við að leggja samfélaginu lið á margvíslegan hátt. Það er gert meðal
annars með framlagi til forvarna, uppbyggingar margs konar
íþróttastarfsemi, stuðningi til lista-, menningar- og góðgerðamála.
Leiðir Eimskips og landsmanna hafa því legið saman á ölmörgum
sviðum á liðnu ári og þakkar félagið landsmönnum af alhug ánægjuleg
samskipti á árinu sem er að líða.
Fimleikasamband Íslands, styrktaraðili.
Fjölskylduhjálp Íslands, styrktaraðili.
Golfsamband Íslands, aðalstyrktaraðili
golfs á Íslandi.
Eimskip hefur gefið öllum
grunnskólabörnum
reiðhjólahjálma síðan árið 2004.
Landsbjörg, Slysavarnaskóli sjómanna,
styrktaraðili.
Mæðrastyrksnefnd, styrktaraðili.
Rauði kross Íslands. Eimskip leggur
fatasöfnun RKÍ lið með því að flytja
fatnað með Flytjanda af landsbyggðinni
til Reykjavíkur og áfram út til
Alþjóðaskrifstofu Rauða krossins.
Sjóminjasafnið, einn helsti styrktaraðili
þess.
Skátasamband Íslands, styrktaraðili.
Skógrækt ríkisins (starfsemin í Brynjudal).
Vesturport, einn helsti styrktaraðili.
Eimskipafélagið leggur ölmörgum aðilum lið,
þar á meðal þessum:
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
efnaHagsMáL
Samkvæmt norskri athugun er framleiðni í íslenskum sjávarútvegi helmingi meiri en í Noregi.
Góð lífskjör á Íslandi eru háð góðu skipulagi í sjávarútvegi. Í flestum öðrum löndum er sjá-
varútvegurinn lágtekjugrein og alls ekki driffjöður hagkerfisins.