Frjáls verslun - 01.10.2012, Qupperneq 59
FRJÁLS VERSLUN 11. 2012 59
Yfir helmingur Íslendinga er kominn með snjall síma. Á heimsvísu eru 1.166.000.000 snjall sím
ar í notkun. Androidstýrikerfið frá
Google er með tæpan helming
eða 559 milljón stykki, 48%, og
stækkar ört, enda margir framleið
endur sem nota stýrikerfið, eins
og Samsung, Lenovo, LG, HTC
og Sony. Næst kemur iOS frá
Apple, með 217 milljón síma,
19%. Þar á eftir er Symbian frá
Nokia með 213 milljón snjallsíma,
18%. Blackberry er með 109 millj
ónir síma, 9%. Önnur stýrikerfi,
eins og Bada og Windows, eru
langt þar á eftir.
Android stækkar ört. Á síðasta
ársfjórðungi var hlutdeild notenda
70 prósent. Einn framleiðandi,
Sam sung, er með helminginn af
þeim 120 milljón Androidsímum
sem þá seldust. Næst, og langt á
eftir, kom Apple með 15 prósent,
eða 26 milljónir seldra símtækja.
Blackberry var með 7,4 milljónir
og Nokia með 6,7 milljónir Win
dows og Symbiansnjallsíma.
Með snjallsímabyltingunni eru
símar og spjaldtölvur, sem nota
snjallsímaforrit, að bylta netinu.
Netið er að ganga í gegnum meiri
breytingar, bæði á notkun og
um hverfi, en nokkru sinni áður.
Fyrirtæki eins og Facebook og
Google, sem lifa á auglýsingum
sem birtast okkur þegar við
vöfr um á tölvu á netinu, eru í
vand ræðum. Hvernig er hægt
að koma auglýsingu fyrir á far
síma skjá?
Microsoft, sem hefur átt tölvu
markaðinn frá upphafi, með
95 prósent markaðshlutdeild á
stýrikerfunum, veit ekki sitt rjúk
andi ráð nú þegar spjaldtölvur
og snjallsímar seljast eins og
heitar lummur. Á sama tíma er
samdráttur í sölu á venjulegum
PCtölvum. Microsoft
hef ur því þróað
nýtt snjallsíma
stýrikerfi;
Windows 8,
og ætlar sér
að koma sterk
ur inn í sam
vinnu við Nokia.
Það er lífsspursmál
fyrir þessa tvo risa
að vel takist til á
næsta ári.
Nýju símarnir, sérstak
lega Nokia 920, hafa
fengið frábæra dóma og
sambærilega við þá sem
Apple og Samsung hafa
fengið. En er það nóg? Verður
2013 ár Android og Samsung?
Á snjallsímamarkaðnum ríkir
grimm barátta sem getur breytt
öllu á svipstundu detti fyrirtækin
niður á rétta hugmynd nú eða
ranga. Fyrir því fann Apple svo
sannarlega þegar nýr iPhone
5 var kynntur í lok september,
með nýju stýrikerfi og nýju korti.
Síðan þá hefur fjórðungur af
markaðsvirði fyrirtækisins fokið,
eins og raunar allir yfirmenn
korta deildarinnar. Flopp árs ins?
Já.
Þóranna Jónsdóttir telur að það sem hafi staðið upp úr á árinu sé afar áhugaverð skýrsla Mc
Kinseyráðgjafarfyrirtækisins þar
sem bent var á að Íslendingar
þyrftu að leggja aukna áherslu á
raunverulega verðmætasköpun.
„Það þarf að huga betur að
langtímamarkmiðum og ekki síst
menntun til að komast upp úr
lægðinni og byggja undir lang
tímahagvöxt.
Það er alveg ótrúlegt að á þess
um síðustu fjórum árum frá hruni
þá hefur, þvert á ráðleggingar
þjóða sem hafa lent í svipuðum
aðstæðum eins og til dæmis Írar
og Finnar, verið skorið niður til
menntamála frekar en að bæta
í, sem er eina rétta leiðin til að
koma í veg fyrir langtímakreppu.
Í skýrslunni er m.a. bent á nauð
syn þess að byggja upp næga
þekk ingu til að skapa raunveruleg
verðmæti. Þarna tel ég sérstak
lega að okkur vanti fleira fólk sem
hefur góðan grunn í tækni og
raun greinum. Það þarf að huga
vel að þessu á öllum stigum skóla
kerfisins til þess að við getum
komið okkur áfram.
Ég vona að þessi skýrsla veki
bæði atvinnulíf og stjórnvöld til
umhugsunar. Við þurfum að fara
að hugsa til lengri tíma ef við ætl
um ekki að gera sömu mistökin
aft ur og aftur.“
Raunveruleg verðmæti og langtímahugsun
dR. ÞóRAnnA jónSdóTTIR
– framkvæmdastjóri rekstrar og stjórnunar hjá Háskólanum í Reykjavík
PÁll STeFÁnSSon
– ljósmyndari
STJÓRNUNAR-
HÆTTIR
GRÆJUR
Helmingur Íslendinga
með snjallsíma
BÆTTU SMÁ DENVER Í LÍF ÞITT
Verð frá 44.900 kr.
Þessi ferð gefur frá 2.700 til 8.100 Vildarpunkta aðra leiðina.
+ Bókaðu núna á icelandair.is