Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2012, Síða 68

Frjáls verslun - 01.10.2012, Síða 68
68 FRJÁLS VERSLUN 11. 2012 Útgáfurisi verður til En víkjum aftur að útgáfuferlinum. Eftir stofn un Forlagsins var Jóhann Páll aftur orð inn eigin herra í eigin útgáfufélagi. Fyrsta árið gekk mjög vel, nánast ævintýralega sem var vísir að því sem koma skyldi en félagið hefur skilað hagnaði frá upp hafi eins og áður sagði. Strax árið 2001 varð Egill framkvæm- dastjóri hins nýja fyrirtækis og samstarf þeirra feðga varð enn nánara. Mál þróuðust á besta veg. Segja má að þeir feðgar hafi staðið með pálmann í hönd un um þegar JPV útgáfa og bókahluti Eddu sameinuðust haustið 2007 undir merkjum Forlagsins. Það sem eftir var af Iðunni fylgdi með. Jóhann Páll hafði þar með lokað hringnum varðandi litla For- lagið sem hann stofnaði árið 1984. „Þetta átti upphaflega að vera bara lítið og þægilegt. Reksturinn átti að duga til að framfleyta fjölskyldunni og gefa út höf unda sem fylgt höfðu föður mínum í áratugi en þetta hefur vaxið miklu meira en við ráðgerðum og jafnvel vildum,“ segir Egill. Þessi niðurstaða er ekki sjálfgefin því að á síðasta áratug hafa fjársterkir aðilar komið inn á markaðinn og stórar samein- ingar átt sér stað. En baráttunni var ekki lokið, nú þurfti að huga að öðrum málum. Samkeppniseftir- litið taldi fyrirtækið svo stórt að fylgjast yrði sérstaklega með því. Í byrjun árs 2008 setti Samkeppniseftirlitið Forlaginu hátt í þrjátíu skilyrði í kjölfar samrunans. Forlagið neyddist til að gangast undir sátt um tuttugu og eitt tölusett skilyrði fremur en að þurfa að slíta fyrirtækin í sundur sem hefði verið ógerningur enda búið að renna þeim saman á þeim tímapunkti. Meðal annars samþykkti Forlagið að selja frá sér tiltekin útgáfuréttindi, þ.e. réttindi til að gefa út tilteknar bækur og ritsöfn, ásamt birgðum af bókum og ritsöfnum, í því skyni að draga úr markaðsstyrk Forlagsins gagn- vart keppinautum í bókaútgáfu, eins og sagði í tilkynningu eftirlitsins frá þeim tíma. Glímunni við samkeppnisyfirvöld var ekki lokið því að í júlímánuði á síðasta ári komst Samkeppniseftir- litið að þeirri niðurstöðu að Forlagið hefði brotið gegn þessum skilyrðum. Fólust brot- in í því að Forlagið braut gegn banni við að birta smásöluverð bóka og banni við að veita bóksölum afslætti sem fælu í sér óeðli- lega mismunun Forlagsins á milli þeirra. Áf rýjunarnefnd samkeppnismála staðfesti síðan þessa niðurstöðu en feðgarnir hafa vísað málinu til dómstóla. Jóhann Páll segir að líklega búi fáar greinar við minni aðgangshindranir en útgáfustarfsemi. Það sjáist af þeim fjölda titla sem gefnir eru út á hverju ári af einstaklingum eða minni forlögum. „Það komast allir að þessum mark aði. Við höfðum aldrei áhyggjur eigenDur forlagsins Eignarhald forlagsins er til þess að gera einfalt. Jóhann Páll og fjöl skylda eiga 50% á móti Máli og menningu Bókmenntafélagi, sem er sjálfseignarstofnun. Megnið af eignarhlut fjölskyldunnar er vistað í Eignarhaldsfélaginu Randver sem á 42,5%. Árni Einarsson frá Máli og menningu Bókmenntafélagi gegnir stjórnarformennsku. aðrir í stjórn eru Halldór Guðmundson, forstjóri Hörpu, Margrét Jónsdóttir Njarðvík, MBa og aðstoðarprófessor við HR, Þórunn Sigurðardóttir, formaður uNiCEf á Íslandi, Pétur Blöndal blaðamaður og feðgarnir Jóhann Páll og Egill Örn. Til fróðleiks má geta þess að Eignarhaldsfélagið Randver er skírt í höfuðið á kettinum Randver sem gengur alltaf undir nafninu stjórnar formaður og býr í fyrirtækinu. Fjölskyldufyrirtæki forlagið er fjölskyldufyrirtæki, um það þarf ekki að efast. auk þeirra Jóhanns Páls og Egils starfa þar að jafnaði sjö aðrir fjölskyldumeðlimir. Guðrún Sigfúsdóttir, kona Jóhanns, er ritstjóri. Þórhildur Garðarsdóttir, kona Egils, er fjármálastjóri. Sif Jóhannsdóttir, dóttir Jóhanns, er verk efnastjóri útgáfusviðs. Yngsti sonurinn, Valdimar Jóhannsson, starfar á skrifstofunni. Í bókhaldinu má síðan finna aðalheiði Sigurðardóttur, tengdamóður Egils. Þá starfar Ásgeir Már, bróðir Jóhanns, við sölustörf. Útgáfan forlagið gefur út bækur undir merkjum JPV, Máls og menningar, Vöku-Helga- fells og iðunnar og rekur auk þess metnaðarfulla kortaútgáfu. Þá er Heims - kringla háskólaútgáfa einnig innan þeirra vébanda. Það er misjafnt hve margir titlar eru gefnir út á ári. Á undanförnum tveimur til þremur árum hafa komið út á milli 115 og 140 titlar á ári undir merkjum forlagsins. Á þessu ári eru frumútgáfur útgáfufélagsins rúmlega 130, en því til viðbótar er nokkuð um endurútgáfur og rafbókaútgáfu, sem í sumum tilfellum er líka endurútgáfa. Til saman burðar má nefna að í Bókatíðindum var getið um 800 bókartitla, ekki þó allt nýjar útgáfur. Dreifing milli útgáfumerkja er líka misjöfn, það fer einfaldlega eftir því hvernig útgáfan raðast hverju sinni. að sögn Egils hefur ekki verið mikil aðgreining milli merkja. flestar bókanna koma út undir merkjum JPV útgáfu og Máls og menningar, en einnig kemur nokkur fjöldi út undir merkjum Vöku-Helgafells, svo sem bækur metsöluhöfundarins arnaldar indriðasonar. Hlutverk hvers útgáfumerkis fyrir sig er ekki sérstaklega afmarkað, utan þess að heldur er horft til iðunnar þegar kemur að útgáfu á myndasögum. Á sama hátt er horft til til Vöku-Helgafells þegar bækur um lífsstíl og áhugamál eru annars vegar – en það er þó ekki algilt. Korta- og kortabókaútgáfa hefur frá upphafi einnig verið veigamikill þáttur í útgáfu forlagsins og kemur á hverju ári út fjöldi nýrra sérkorta auk kortabóka. Menn ársins
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.