Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2012, Page 70

Frjáls verslun - 01.10.2012, Page 70
70 FRJÁLS VERSLUN 11. 2012 Við óskum þér gleði og hamingju um hátíðirnar Þakkir fyrir samskiptin á árinu Hlustaðu á nýtt og notalegt jólalag með Sigurði Guðmundssyni, Sigríði Thorlacius og Memfismafíunni, við texta Braga Valdimars Skúlasonar, á jol.siminn.is. Ég mat það svo að það hefði aldrei verið gerð alvörutilraun til þess. Jú, vissu- lega hafði verið til kiljuklúbbur en eigi að síður hafði þetta aldrei verið gert eins og tíðkaðist erlendis, að gefa út nokkrar bækur í einu og setja þær í sérstaka sölu- standa. Við ákváðum strax á öðru ári að gera alvöru tilraun með þetta og gáfum út kiljur og kynntum það rækilega. Um leið lögðum við áherslu á að vera með þessar bækur í sölu þar sem fólk var á ferðinni, jafnt í stórmörkuðum og bókaverslunum. Til raunin lukkaðist samstundis og kiljan er komin til að vera í íslenskri bókaútgáfu.“ Það er líklega ekki í anda jólanna að tala um að minnka vægi þeirra en fyrir bókaútgáfu er það mikilvægt. Egill segir að það hafi alla tíð verið markmið þeirra að auka jafnvægi í rekstrinum og þurfa ekki að leggja allt undir varðandi bóksöl- una um jólin. Það var ekki eingöngu gert með því að hefja sölu á kiljum. Einnig var ráðist í dýrari verkefni og er þar skemmst að minnast bókaflokksins Ísland í aldanna rás, sem hefur verið flaggskip útgáfunnar um langt skeið. Jóhann Páll segir að þar hafi þeir verið komnir með verk sem ljóst var að myndi halda áfram að seljast eftir jólavertíðina. Sama eigi við um orðabækur og alfræðibækur. Það er hins vegar vitað að verk af slíkri stærðargráðu geta riðið bókaútgáfu að fullu. Jóhann Páll játar að verkum sem þessum fylgi talsverð áhætta og hafi reynd ar alltaf gert. Hann rifjar upp í því sambandi þegar Valdimar faðir hans hóf útgáfu á Öldinni okkar, verki sem á þeim tíma skapaði talsverða áhættu fyrir Iðunni. „Faðir minn sagði mér gjarna sögu af því þegar hann fór allt að því skjálfandi inn í Bókabúð Lárusar Blöndals á Skólavörðustígnum daginn sem fyrsta bindið kom út til að sjá hvort einhverjar bækur hefðu selst því að útgáfan gat riðið fyrirtækinu að fullu. Þvílíkur léttir sem það var þegar hann tók eftir því að bækurnar voru farnar að seljast. Ísland í aldanna rás tónar við þessi verk og þar lögðum við mikið undir sem heppnaðist vel.“ vAndi Að tryggjA fjölbreytileikA Að bókaútgáfu er sótt úr ýmsum áttum. Smekkur fólks getur tekið margvíslegum breytingum en líklega er þó erfiðast að eiga við þær breytingar sem tæknin eða breyttir viðskiptahættir valda. Skiptir þá litlu hvort átt er við rafbækur eða hreinlega breyttar söluvenjur. Jóhann Páll segir að horfa verði á sölu bóka heildstætt. Því sé áhyggjuefni ef sala þeirra breytist og verði einsleitari. Hann rifjar upp þá umræðu sem hafi átt sér stað í Frakklandi um sölu bóka þar sem stjórnvöld óttast að nýtt fyrirkomulag geti leitt af sér fátæklegri bókaútgáfu. Því telji menn sérstaka ástæðu til að vernda bókabúðina sem slíka, hún ein geti tryggt þann fjölbreytileika sem sé nauðsynlegur í bókaútgáfu. Þar var verð á bókum gefið frjálst en ríkisstjórnin kaus að setja lög sem takmörkuðu þann afslátt sem mátti veita af nýjum bókum. Þeir litu á bókabúðir sem mikilvægar menn ingarstofnanir í þorpum og bæjum Frakk lands og þær myndu einfaldlega leggj ast af ef stórmarkaðirnir hæfu sölu þeirra og gæfu mikinn afslátt. Þá ætti bókabúðin ekki möguleika og myndi þar af leiðandi leggjast af og menningar- legum fjölbreytileika Frakklands myndi hraka að sama skapi,“ bætir Egill við. Engum dylst að þeir feðgar færa þetta ástand yfir á Ísland. Jóhann Páll segist reyndar hafa átt von á því að þetta myndi gerast hraðar hér en raun varð á. En hverra hagsmunir eru það sem hér er tekist á um? Menn ársins Flutningur iðunnar á Bræðraborgarstíg 16 fagnað. Hannes Pétursson skáld, Valdimar Jóhanns- son, bókaútgefandi og faðir Jóhanns Páls, og Kristján Eldjárn forseti. Svipmynd frá samkvæmi sem haldið var vegna útkomu jólabóka iðunnar 1980. talið frá vinstri: Jóhann Páll Valdimarsson, Njörður Njarðvík rithöfundur, Valdimar Jóhannsson og Rannveig Ágústsdóttir, þáverandi framkvæmdastjóri Rithöfundasambands Íslands.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.