Frjáls verslun - 01.10.2012, Page 123
FRJÁLS VERSLUN 11. 2012 123
bækur og viðkvæm skjöl, efni
sem hing að til hefur verið
mjög erfitt að skanna inn með
góðu móti án þess að skemma
frumgögnin. Þá komu nokkrar
nýjar útgáfur af CoreData-hug-
búnaðarlausnum okkar, sem
hafa vakið mikla athygli.“
ný vefsíða um áramót
Á hvað leggur fyrirtækið áherslu
í auglýsingum og kynningum?
„Sem nýsköpunarfyrirtæki
höfum við lagt allt kapp á að
þróa og fullkomna þær vörur
og þjónustu sem við viljum
geta boðið viðskiptavinum
okk ar og verið svo heppin
með að ánægðir viðskiptavinir
eru yfirleitt besta auglýsingin.
Við höfum þó gert átak í
kynningar málum nú í haust og
erum komin með nýtt efni þar
sem vörur okkar og þjónustu-
framboð fær að njóta sín og svo
fer ný vefsíða í loftið nú um
áramótin.“
Uppfyllir fyrirtækið lög um
kynja hlutfall í stjórn fyrirtækis-
ins?
„Já, 60% konur og 40% karl-
menn.“
Hver er jafnréttisstefna
Gagna vörslunnar?
„Að gæta sem mests jafnréttis
á sem flestum sviðum þegar
það á við.“
efling atvinnulífs á
Suðurnesjum
Hefur fyrirtækið komið sér upp
ákveðnu gildismati til að starfa
eftir?
„Gagnavarslan hefur lagt
mikla áherslu á samfélagslega
ábyrgð og lagt sitt af mörkum
eins og kostur er. Bæði með
styrkjum og einnig með því
að leggja sig fram við að efla
atvinnu lífið á Suðurnesjum
en þar er mesta atvinnuleysi
lands ins. Því miður hefur vantað
skiln ing stjórnvalda vegna þess.“
Að vera með besta fólkið í
liðinu
Hver er stefnan í starfsmanna-
málum Gagnavörslunnar?
„Að vera með besta fólkið í
liðinu, fólk sem hefur mikinn
metnað og vill hoppa hærra
í dag en í gær. Við leggjum
einnig mikla áherslu á að vera
fjölskylduvænt fyrirtæki og að
fólkinu okkar líði vel í vinn-
unni.“
Hvers vegna ættu viðskipta-
vinir að velja þitt fyrirtæki?
„Vegna þess að við leggjum
metnað okkar í að vinna með
viðskiptavinum að aukinni
hagvæmni í þeirra rekstri auk
þess sem við viljum að það sé
einnig gaman að vinna með
okkur.“
„Við fögnuðum
fimm ára afmæli
nú í lok árs, sem er
mikilvægur áfangi
hjá nýsköp unar
fyrir tæki. Einn ig
breyttum við fyrir
tækinu í hf. úr ehf.
og skráðum hluta
bréfin hjá Verð bréfa
skráningu Íslands.“
Á myndinni er stjórnendateymi Gagnavörslunnar í réttri röð frá vinstri: Laufey Ása Bjarnadóttir, Arnþór ingi Hinriksson, Brynja Guðmundsdóttir, Hannes
Pétursson, Sigurborg Gunnarsdóttir, Jónas Sigurðsson og Björn ingólfsson. Á myndina vantar Gunnhildi Manfreðsdóttur.