Frjáls verslun - 01.10.2012, Síða 125
FRJÁLS VERSLUN 11. 2012 125
hve stórkostlegum árangri
hefur verið náð hér á landi í
nýt ingu hreinna orkugjafa – og
ríf umst í staðinn um það hvað á
að nýta og hvað á ekki að nýta í
þrætu bókarstíl.“
Fyllsta jafnréttis gætt
Mannvit veitir öfluga þjón ustu
og lausnir á sviði verkfræði
og tækni með áherslu á græna
orku og iðnað á Íslandi, í öðr-
um Evrópulöndum og víðar.
„Mannvit stefnir að því á næstu
árum að viðhalda öflugri starf-
semi á Íslandi og auka til muna
vinnu í erlendum verkefnum
sem byggjast á reynslu og
þekk ingu okkar hér heima, til
dæmis í orkumálum. Auk þess
horfum við til olíuvinnslu og
ýmissa annarra nýrra tækifæra
á norðurslóðum og einnig til
aukinnar þátttöku í verkefnum
tengdum sjávarútvegi.“
Tvær konur og fimm karlar
eru í stjórn fyrirtækisins, tvær
konur og einn karl í varastjórn
og í framkvæmdastjórn eru tvær
konur og sex karlar. Eyjólf ur seg-
ir að fyrirtækið muni upp fylla
lög um kynj ahlutfall í stjórn
þegar lögin taka gildi.
„Það er stefna Mannvits að
gæta fyllsta jafnréttis þannig
að allir starfsmenn njóti sömu
tækifæra og sérhver sé metinn
að verðleikum. Þessi stefna
er m.a. höfð að leiðarljósi við
ráðningu nýliða, tilfærslu milli
starfa og aðgang að símenntun
jafnframt því sem sömu laun
eru greidd fyrir sambærileg
störf. Þá hefur kvenstjórnend-
um fjölgað hjá fyrirtækinu og
gegna nú fjórar konur starfi
sviðsstjóra. Konum fer jafnt og
þétt fjölgandi í röðum starfsfólks
og eru nú um 25% starfsmanna
Mannvits. Ástæðan er m.a. sú að
konur sækja í seinni tíð í auknum
mæli í tæknimenntun.“
vistvænar lausnir
Eyjólfur segir að Mannvit leit-
ist við að vera til fyrirmyndar
í umhverfismálum. Starfsfólk
leiti umhverfisvænna leiða í
aðföngum og þjónustu og sé
hvatt til að vinna með lausnir
sem stuðli að góðri nýtingu
auðlinda, minni úrgangi,
heil næmu umhverfi og bættri
um hverfisvitund.
„Starfsfólk okkar leitast við
að benda viðskiptavinum á
vistvænar lausnir þar sem
þess er kostur við hönnun og
ráð gjöf og við leggjum áherslu
á að starfsmenn hafi yfir að
ráða kunnáttu til að framfylgja
umhverfisstefnu fyrirtækis-
ins. Mannvit fylgist með
skilgreind um, þýðingarmiklum
um hverfisþáttum til að meta
árang ur umhverfisstarfsins og
setur sér mælanleg markmið
sem eru endurskoðuð árlega
í þeim tilgangi að stöðugar
umbætur eigi sér stað.
Fyrirtækið hefur jafnframt sett
sér samgöngustefnu sem miðar
að því að sýna samfélagslega
ábyrgð og uppfylla ferðaþörf
starfs manna Mannvits á hag-
kvæman og vistvænan hátt en
Mann vit var fyrst fyrirtækja á
Íslandi til að bjóða starfsfólki
styrki ef það gengur, hjólar,
deilir bíl eða nýtir sér almenn-
ings samgöngur á leiðinni í og
úr vinnu.“
Eyjólfur segir að öll starfsemi
Mannvits á Íslandi sé vottuð
sam kvæmt alþjóðlegum gæða-,
umhverfis- og öryggisstjórn-
unar stöðlum. En hvers vegna
ættu við skipta vinir að velja
Mann vit? „Félagið er alþjóðlegt
ráðgjafar fyrirtæki sem veitir
þjón ustu á sviði verkfræði,
stjórnunar, rekstrar- og EPCM-
verkefna stjórnunar og er hið
stærsta sinnar tegundar á
Ís landi. Um 400 sérfræðingar
með breiðan þekkingargrunn
starfa hjá okk ur og dóttur -
fyri r tækjum okkar og við getum
því leyst marg þætt verkefni á
einum stað.“
„Ef við horfum til
landanna í kringum
okkur þá líta menn
á það sem umhverf
is mál að hverfa frá
því að kynda með
olíu, gasi eða kolum
yfir í að nýta græna
orku til húshitunar á
borð við jarðvarma
eða orku fallvatna.“
Framkvæmdastjórn Mannvits: Efri röð frá vinstri: Sigurhjörtur Sigfússon, Skapti Valsson, tryggvi Jónsson og Haukur Óskarsson.
Neðri röð frá vinstri: Sigurður St. Arnalds, Drífa Sigurðardóttir, Áslaug thelma Einarsdóttir og Eyjólfur Árni Rafnsson.