Frjáls verslun - 01.10.2012, Síða 143
FRJÁLS VERSLUN 11. 2012 143
Ár Baltasars
Kormáks
Það efast enginn um að Baltasar Kormákur er sá íslenski kvikmyndamaður
sem stendur upp úr á síðasta ári. Ekki aðeins á hann bestu íslensku kvik-
myndina, Djúpið, heldur sló hann í gegn með Hollywoodstórmynd sinni
Contraband, sem náði miklum vinsældum út um allan heim og gerði það
að verkum að stórstjarnan Mark Wahlberg, sem lék aðalhlutverkið í mynd-
inni og framleiddi, fékk mikla trú á Baltasar og lét í hendurnar á honum
enn stærra verkefni, að leikstýra sér og Denzel Washington í 2 Guns,
sannkallaðri Hollywoodstórmynd. Tökur eru búnar og eftirvinnsla hafin
og verður 2 Guns frumsýnd í ágúst á næsta ári. Ljóst er því að Baltasar
Kormákur verður ekki minna í sviðsljósinu á komandi ári.
S
amstarf
Wahl bergs
og Baltasars
heldur áfram
og er Baltasar
að fara að
leikstýra sjónvarpsmyndinni
The Missionary, þar sem
Mark Wahlberg er meðal
framleiðenda, en Wahlberg
er, meðfram því að vera
einn vinsælasti leikarinn í
Hollywood, framleiðandi
kvikmynda og sjónvarps
efnis sem hefur gert hann
að einum ríkasta leikaranum
í Hollywood. The Missionary
er það sem Hollywood kallar
„pilot“, en slík mynd, sem
er í fullri lengd, er forveri
sjónvarpssería. Stundum er
það aðeins forverinn sem
stendur uppi ef illa tekst til
en oftast kemur í kjölfarið
sjónvarpssería, allt fer eftir
viðtökum fyrstu myndarinn
ar. Það að Wahlberg skuli
treysta Baltasar fyrir slíkri
mynd segir nokkuð til um
traustið, en þess má geta
að Mark Wahlberg er einn
aðalframleiðenda Boardwalk
Empire og hver var það svo
sem leikstýrði „pilot“ þeirrar
seríu, jú, sjálfur Martin
Scorsese.
Þegar tökum er lokið á
The Missionary, sem gerist í
kaldastríðinu í AusturBerlín,
er það von Baltasars að
hann geti farið í kvikmynd
sína Everest, sem hlýtur að
vera metnaðarfyllsta verk
efni hans hingað til. Myndin
verður byggð á örlagarík
um atburðum þegar átta
manns létust á hæsta fjalli
heims árið 1996, atburðum
sem Jon Krakauer skrifaði
eftirminnilega um í bók sem
komið hefur út á íslensku
undir heitinu Á fjalli lífs og
dauða. Kvikmynd Baltasars
mun samt ekki byggð á
bók inni.
Undanfarið hefur Baltasar
verið að fylgja Djúpinu
eft ir í Bandaríkjunum en
hún kemur til greina þegar
tilkynntar verða tilnefningar
á bestu erlendu kvikmynd
inni til óskarsverðlauna og
í þeirri kynningu er Mark
Wahlberg betri en enginn.
Hann safnaði vinum sínum
í kvikmyndageiranum sam
an á sýningu á Djúpinu
og í nýlegu viðtali sagðist
Baltasar vera búinn að fá
nokkur tilboð í kjölfar sýning
arinnar og liggja á borðinu
m.a. tilboð frá Warner
Brothers og framleiðendum
Sherlock Holmesseríunnar.
Þrátt fyrir freistandi tilboðin
í Hollywood hefur Baltasar
ekki gleymt þeim verkefnum
sem hann er með á sinni
könnu hér á Íslandi. Enn er
í farvatninu víkingamyndin
sem áætlað er að gera hér á
landi þar sem í brennidepli
eru víkingarnir sem komu
með írska þræla til landsins.
Þá hefur Baltasar keypt
rétt inn á að kvikmynda
Sjálf stætt fólk eftir Halldór
Laxness og alltaf stendur til
að kvikmynda Grafarþögn
eftir bók Arnalds Indriða
sonar, en Mýrin er tvímæla
laust ein besta kvikmyndin
sem Baltasar Kormákur
hefur leikstýrt hingað til. Af
allri þessari upptalningu má
ráða að leikarinn Baltasar
Kormákur sé kominn í langt
frí, en upprunalega er Balt
asar lærður leikari og gerði
garðinn frægan á árum áður,
m.a. í stórum hlutverkum
á sviði Þjóðleikhússins þar
sem hann hefur einnig leik
stýrt þekktum leikritum.
Kvikmyndir sem Baltasar
Kormákur leikstýrir:
101 reykjavík (2000)
hafið (2002)
a little trip to heaven (2005)
mýrin (2006)
Brúðguminn (2008)
inhale (2010)
Contraband (2012)
Djúpið (2012)
2 guns (2013)
the missionary (2013)
Leikstjóri ársins
TexTi: HilMAr KArlsson