Þjóðlíf - 01.12.1990, Side 54

Þjóðlíf - 01.12.1990, Side 54
MENNING ÁTTATÍU OG ÁnA ÁRA ÁSTARSÖGUHÖFUNDUR Blá augu og biksvört hempa, skáldsaga eftir Tryggva Emilsson Út er komin bókin „Blá augu og biksvört hempa“ eftir Tryggva Emilsson og er þetta fyrsta skáldsaga hans. Vaka Helga- fell dreifir bókinni. Tryggvi, sem nú er 88 ára hefur áður gefið út endurminning- ar sínar í þremur bindum; Fátækt fólk sem kom út árið 1976, Baráttan um brauðið frá 1977 og Fyrir sunnan frá 1979. Síðar kom út sagnasafnið Kona sjómannsins árið 1981 og fyrir tveimur árum ættfræðiritið Sjómenn og sauða- bændur þar sem ættir foreldra hans eru raktar. Að auki hafa tvær ljóðabækur komið út eftir hann, Rímuð ljóð frá 1967 og Ljóðmæli frá 1971. vær fyrstnefndu bækurnar, þ.e. Fá- tækt fólk og Baráttan um brauðið, voru á sínum tíma tilnefndar af Islands hálfu til bókmenntaverðlauna Norður- landaráðs og voru settar upp í leikbúning eftir Böðvar Guðmundsson hjá Leikfé- lagi Akureyrar síðastliðið vor við metað- sókn. Blá augu og biksvört hempa byggir á raunsæum atburðum er áttu sér fyrir- myndir úr raunveruleikanum. Allflestar persónur í sögunni eiga sér hliðstæður úr veruleikanum þó svo að nöfnum þeirra hafi verið breytt. Fjallar sagan um fátæk- an prest sem giftist ríkri sýslumannsdótt- ur, en fórnar síðar bæði auði og hempu fyrir unga umkomulausa stúlku sem hann verður ástfanginn af. Hún verður þunguð og deyr stuttu eftir fæðingu barnsins. Presturinn flytur með nýfæddan son sinn til Reykjavíkur þar sem þeir búa saman meðal fátæks alþýðufólks. Sagan lýsir aðbúnaði og kjörum hinnar vinnandi stéttar og því óréttlæti sem hún þurfti að þola líkt og í endurminningum Tryggva. Kemur misréttið vel fram í frá- sögninni af því þegar unga stúlkan er send eins og hver önnur skepna á prestssetrið til að þjóna ríku sýslumannsdótturinni: „Þessi unglingsstúlka sem maddaman tók til sín hét Eygló. Hún var yngst vinnu- hjúa á kirkjustaðnum og hafði alist upp á mölinni á vegum sýslumannsins og þar með hreppsins og var svo lítilla manna að maddaman leit á hana sem eign þeirra feðgina af sömu mynt og hver önnur hús- dýr.“ Síðar segir í þessari sömu frásögn: „Ekki þótti maddömunni taka því að nefna það við prestinn þó hún léti sækja stelpuskjátu í kauptúnið ráðskonunni til handarauka og aldrei sá hann þessa vinnu- Tryggvi Emilsson. Blá augu og biksvört hempa byggir á raunsæum atburðum er áttu sér fyrirmyndir úr raunveruleikanum. konu staðarins nema hálfbogna undir þungum eldiviðarpokum ellegar við vatnsburð og þá í strigapilsi yst fata.“ Og ennfremur segir í lýsingu á stúlk- unni: „Fermingunni fylgdi sú umbreytni að vinnuálag jókst um allan helming, engin frístund var gefin. Hún vann við þvotta og hreingerningar, þar á milli í fiskverkunar- húsinu eða þá við ræstingar í húsum fisk- verkunarstöðvarinnar þar sem allt var á sífelldu kafi í óþverra vegna illrar um- gengni." TRYGGVI EMILSSON Tryggvi situr enn við skriftir þrátt fyrir háan aldur. Hann byrjaði reyndar ekki að skrifa fyrr en um sjötugt þegar langri starfsævi lauk. I viðtali sem birtist við Tryggva í Þjóðlífi fyrir þremur árum í tilefni af 85 ára afmæli hans segir hann m.a. frá forsögu þess hvers vegna hann ákvað að setjast að skriftum á elliár- um, þ.e. að heilsunni hafi farið að hraka og því ekki auðvelt fyrir mann sem unnið hefur baki brotnu allt sitt líf að setjast snögglega í helgan stein. „Að skrifa bækur án kunnáttu hafði lengi blundað í hugarfylgsnunum og nú dró ég fram allt það sem gat orðið mér að ævisöguefni. Minni þakka ég föður mín- um sem kunni bækur og lausavísur utan- bókar, og ömmu minni, móður hans sem gat þulið upp úr sér stólræður þegar hún kom úr kirkju, orðrétt. En þrátt fyrir gott minni þá var það aldrei óskeikult og því tíndi ég allt til sem til var af skrifuðum orðum allt frá því að ég, tólf ára tók til við að skrifa minnisbækur á umbúðapappír með illa ydduðum blýant. Þetta var ólæsi- legt öðrum en þeim sem hafði geymt krot- ið af eðlishvöt og haldið upp á þetta ásamt samanbörðum bögum allt frá æskuárun- um. Þarna fólust frásagnir af hálfgleymdu lífshlaupi fram um fermingu og varð mér næ^tum að gullum sem fyrrum voru geymd í handraðanum,“ sagði Tryggvi meðal annars í viðtali þessu. bókinni Blá augu og biksvört hempa er því að finna frásagnir samtíðar- og samverkamanna Tryggva sem hann hefur annað hvort skrifað hjá sér á blöð eða bakvið eyrað. Spanna þær hálfrar aldar sögu öreiga þessa lands, baráttu þeirra og örlög. Fátæku fólki sem hann kynntist af eigin raun, fólki sem barðist áfram til að eiga fyrir brauði. 0 54 ÞJÓÐLÍF
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.