Þjóðlíf - 01.12.1990, Page 58

Þjóðlíf - 01.12.1990, Page 58
MENNING HUÓMSVEITARSTJÓRINN VIRTI Kurt Masur er eitt af táknum byltingarinnar í Austur-Þýskalandi. Þykir stjórna Schumann og Mendelssohn betur en aðrir EINAR HEIMISSON ÞÝSKALANDI Síðastliðið haust var hann í hringiðu átakanna í Austur-Þýskalandi. Aðal- stjórnandi Gewandhaushljómsveitar- innar í Leipzig. Kurt Masur átti góð tengsl við fyrrum valdhafa í Austur- Þýskalandi og þau tengsl notaði hann til hins ýtrasta í fyrrahaust. Hann varð nokkurs konar sáttasemjari milli stjórn- valda og almennings: Stjórnaði til dæmis fyrstu hringborðsumræðunum í Leipzig. En þrátt fyrir fyrri tengsl sín við valdhafana núir enginn Kurt Masur þeim um nasir. Hann er orðinn að nokkurs konar tákni fyrir atburð- ina í Austur-Þýskalandi á síðasta ári. Jafnaðar- menn vildu fá hann í þingframboð í vetur en tókst ekki; líkast til hefði niðurstaða þeirra orðið betri ef þeim hefði tekist það. Kurt Masur er tákn húmanískrar afstöðu til má- lefna líðandi stundu: Afstöðu sem byggir á raunsæi og list hins mögulega. Hann er núna einn af fáum þýskum hljómsveitarstjórum, sem vekja athygli og njóta álits. Sextíu og tveggja ára. Hefur komið víða við. Stjórnað nánast hvers konar tónlist; óperum og óratoríum og öllu þar á milli. Hann segist sprottinn úr hinni klassísku tónlistarhefð, sem á sér rætur í austur- hluta Þýskalands. Það voru slóðir Bachs. Slóðir Mendelssohns. Slóðir Schumanns. Leipzig, Dresden, Weimar, Halle, Zwickau: borgir, sem eru grónar inn í tónlistarsöguna. Masur kallar sig „Gewandhauskapellmeister" í klassískum stíl. Hann byggir á hefðinni. Og þó þykir orðið „Kapellmeister" ekki sérlega fínt á þýsku: „Kapellmeister" er handverks- maður, þjónn einhvers fursta eða kóngs, maður, sem framleiðir tónlist eftir pönt- un. Nema sá, sem er „Gewandhauskap- ellmeister“. Og Kurt Masur er „Gewand- hauskapellmeister". Og nýjustu upptökur hans eru einmitt af tónlist Mendelssohns og Schumanns, hinna austur-þýsku meistara. Masur þyk- ir hafa Mendelssohn betur á sínu valdi en flestir aðrir. Mendelssohn þykir stundum væminn. Heims- maður, flatur, grunnur. Ekki mikið tónskáld. Masur er ekki sammála: „Við er- um alltaf að rannsaka Mendelssohn í Lei- pzig. Alltaf að komast að einhverju nýju. Þeir, sem spila Mendelssohn án þess að rannsaka hann fyrst gera hann grunnan. En hann var ekki grunnur. Hann var bar- áttumaður. Og ótrúlega hugmyndarík- ur“. Og í London er Masur að hljóðrita Schumann. Schumann bjó um tíma í Lei- pzig eins og Mendelssohn. Þeir voru vinir. Barn Schumanns var nefnt Felix eftir Mendelssohn. Vorsinfónían undir stjórn Masurs var að koma út í Þýskalandi. Ein- stök upptaka: Masur virðist ekki síðri í London en Leipzig. Schumann var manísk-depressífur. Tónlist hans er full af geðrænum and- stæðum, algleymi tilfinningahit- ans. Masur er hins vegar tákn yfirvegunarinnar. En hann leggur áherslu á að það megi aldrei fletja tónlist Schu- manns út: Andstæðurnar verði að vera til staðar. Og þær eru til staðar í túlkun Masurs. Hann sannar betur en margir aðrir stjórnendur að það er hægt að sameina ann- ars vegar skarp- skyggni fræði- mannsins, stranga heimildarýni, heilindi gagn- vart verkum tónskáldsins og hins vegar tilfinninga- hita hins túlk- andi listamanns. Og það er þess vegna sem menn hlusta þessa dagana á Vorsinfón- íu Schumanns í flutningi Masurs, þetta tónverk hins örgeðja listamanns, sem orð- ið hefur kveikja að skáldsögum, kvik- myndum, óteljandi listaverkum. Og Vorsinfónían nær til Zwickau, fæð- ingarborgar Schumanns eins og á aðra staði: Það var borg Trabant-verk- smiðjanna, Zwickau var helguð Trabant en ekki Schumann. Núna er það breytt. Masur og Schumann hafa tekið við af fé- laga Trabant. I sjónvarpsmyndinni um Zwickau freyddu tónar Schumanns ljúf- lega gegnum haustbirtu grámyglunnar í hinu yfirgefna vígi kommúnismans. 0 58 ÞJÓÐLÍF
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.