Þjóðlíf - 01.12.1990, Page 66

Þjóðlíf - 01.12.1990, Page 66
KVIKMYNDIR JÓLAMYNDIRNAR KRISTÓFER DIGNUS PÉTURSSON Skammdegi, él og slydda. Nenni ekki að vera heima, ekkert í sjónvarpinu og ekk- ert í ísskápnum. Hvað á ég að gera? Bíó! Jólamyndirnar! Eg skoða bíósíðuna í dagblaði og missi allan mátt. Hvaða mynd á ég að fara á? Þær eru svo margar! Og sagan endurtekur sig. essi litla dæmisaga endar vel, sögu- hetjan gefst ekki upp og leitar nánari upplýsinga um jólamyndirnar í Reykjavík 1990 í fréttatímaritinu Þjóðlífi, gerir upp hug sinn á hvaða mynd skuli fara og situr núna örugg í hlýjum bíósal og lætur sér líða vel. Og ef þú, lesandi góður, lítur í kring um þig þegar þú ferð á einhverja eftirtalinna mynda þá sérðu kannski hetjuna okkar. Jafnvel við hliðina á þér. áskólabíó verður með tvær myndir til sýninga um jólin og eru þær mjög ólíkar. Fyrsta ber að nefna myndina sem „strákurinn okkar“, Sigurjón Sighvats- son ásamt félögum sínum í Propaganda Films framleiddi, „Wild at Heart“. Myndin vann gullpálmann í Cannes og hefur af mörgum gagnrýnendum víðs veg- ar um heim verið talin besta mynd ársins. Leikstjórinn sérvitri David Lynch stýrir hér frábærum hópi leikara í mjög sérstakri mynd. Aðalhlutverkin eru í höndum Nicolas Cage („Raising Arizona“) og Laura Dern („Blátt Flauel“) en með aukahlutverk fara Willem Dafoe („Plat- oon“) og ástkona Lynch, Isabella Ros- sellini („Blátt Flauel“). Lynch bregður ekki útaf vananum og býður áhorfandan- um nasasjón af stórfurðulegri ef ekki af- brigðilegri heimsmynd sinni þar sem ekk- ert er sem sýnist og allt gerist. „Wild at Heart“ er víst býsna gróf en allir sannir íslendingar láta það ekkert á sig fá og mæta á myndina, hún er þó næstum ís- lensk. Önnur mynd sem Háskólabíó sýnir er táningasmellurinn „Teenage Mutant Ninja Turtles“ eða í lauslegri þýðingu: „Táninga stökkbreyttu austrænuhuldu- bardagalista skjaldbökurnar“. Það er lítt þekkt sjálfstætt fyrirtæki, Goiden Har- vest, sem framleiddi þessa mynd sem fjall- ar um fjórar talandi risaskjaldbökur, sem slá Bruce Lee ekki við, og samskipti þeirra við blaðakonu, sem leikin er af Jud- ith Hoag. Hún tekur þátt í baráttu skjald- bakanna og leiðtoga þeirra, sem er risa rotta, við fólskulegt táninga glæpagengi sem stjórnað er af illri veru. Hljómar eins og teiknimynd? Myndin er byggð á teikni- myndaseríu og það var Jim Henson heit- inn sem gaf þessum verum líf svo að úr yrði stórskemmtileg ævintýramynd fyrir alla fjölskylduna. Það má til gamans geta að myndin kostaði aðeins um 14 milljónir dollara en hefur nú tekið inn 130 milljónir og er þar af leiðandi vinsælasta kvikmynd frá sjálfstæðu fyrirtæki allra tíma. augarásbíó sýnir myndirnar „Problem Child“ og „Pump up the Volume“. „Problem Child“ er grínmynd og fjallar um lítinn munaðarlausan dreng- hnokka sem er tekinn inn í opinn faðm hjóna sem ekki geta átt börn. Það sem þau vita ekki er að þessum litla freknótta STJÖRNUR Bíóhöllin: Tveir í stuði (My Blue Heaven) Vonbrigði *l/2 Snögg skipti (Quick Change) Skemmtilegt tríó **l/2 Ungu byssubófarnir (Young Guns 11) Gott afþreyingarefni ** Bíóborgin: Óvinir — Ástarsaga (Enemies - a Love Story) Mjög góð. Frábært handrit, Lena Olin einstök ***l/2 Góðir gæjar (Good fellas) Leikstjórinn Scorcese einn sá besti í dag, stórkostleg tónlistarnotkun og nýstárleg myndataka ***l/2 Háskólabíó: Draugar (Ghost) Allra sæmilegasta afþreying, en ekkert meira **l/2 Ruglukollar (Crazy People) Óttaleg vitleysa *l/2 Laugarásbíó Chicago Jói og sýningarstelpan Alvöruþrungin og kemur skemmtilega á óvart *** Regnboginn Sigur andans (Triumph of the Spirit) Vel leikin og sannfærandi—, nauðsyn- leg mynd *** Sögur að handan Slöpp, á varla heima nema á myndbandi *l/2 Dignus 66 ÞJÓÐLÍF
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.