Þjóðlíf - 01.12.1990, Side 79
MENNING
KÓNGULÓARVEFURINN
Joseph Roth er orðinn einn vinsœlasti rithöfundur Þýskalands hálfri öld eftir
dauða sinn. Sagan um bjórkjallarauppreisnina í Munchen 1923, sem kom út
áður en hún var gerð!
EINAR HEIMISSON ÞÝSKALANDI
Ein þekktasta kvikmynd seinni ára hér í
Þýskalandi er óefað kvikmynd Berhards
Wickis „Das Spinnennetz“ eða „Kóngu-
lóarvefurinn", sem frumsýnd var hér í
landi í fyrra. Hún er gerð eftir sam-
nefndri skáldsögu Josephs Roths, sem
upphaflega kom út árið 1923 og var flest-
um gleymd uns kvikmynd Wickis gerði
hana fræga.
Sagan Kóngulóarvefurinn þykir ein-
hver merkasti vitnisburður um þjóð-
félagsveruleika Weimarlýðveldisins og
hrun þess. Hún lýsir aðdragandanum að
því þegar Hitler og Ludendorff gerðu þá
frægu uppreisn, sem kennd er við bjór-
kjallara, í Miinchen í nóvember 1923.
Samband bókmennta og kvikmynda
hefur löngum verið viðkvæmt og raunar
hefur samspili þessara tveggja tjáningar-
forma verið líkt við flókið systkinasam-
band. Stundum er sagt um bók að hún sé
eins og kvikmynd og þess jafnframt getið
að það vanti eitthvað í þá sömu bók, - því
bókin eigi sér ávallt önnur lögmál en kvik-
myndin. En það er samt sem áður stað-
reynd að stundum hafa kvikmyndir verið
lífgjafi bóka og tryggt höfundum þeirra
hylli, sem þeir nutu ekki fyrir. Svo er
einmitt um gleymdan rithöfund, sem nú
hefur hlotið mikla athygli í Þýskalandi,
Joseph Roth.
Þann 7. október árið 1923 hóf dagblaðið
Arbeiterzeitung í Vín að prenta kafla úr
skáldsögu, sem hafði óvenjuríka skírskot-
un í atburði samtímans. Þetta tiltekna
dagblað var gefið út af jafnaðarmönnum
og ef til vill hafði hinn skýri boðskapur
verksins úrslitaáhrif á að það var tekið til
útgáfu. Höfundur hennar var óþekktur,
hafði aldrei sent frá sér neitt bókmennta-
verk. En tengsl þessarar stuttu skáldsögu
við veruleikann voru ótrúleg; eins og sagt
var um aðra bók, sem kom út um sama
leyti í Þýskalandi þá var Kóngulóarvefur-
inn hrein og klár skýrsla um sannleikann.
Síðasti kafli Kóngulóarvefsins birtist í
Arbeiterzeitung 6. nóvember 1923.
Tveimur dögum síðar, 8. nóvember 1923,
gerðu Hitler og Ludendorff þá uppreisn í
Munchen, sem kennd var við bjórkjallara.
Og það er einmitt aðdragandi þessarar
uppreisnar, sem er kjarni bókarinnar.
Uppreisn hægriöfgamanna gegn lýðræðis-
þjóðfélaginu unga í Þýskalandi. Sögusvið
Joseph Roth
skrifaði sög-
una árið
1923.
bókarinnar er reyndar ekki Múnchen
heldur Berlín og þeir Hitler og Luden-
dorff koma þar lítið við sögu í eigin per-
sónu. Hins vegar er vefurinn sá sami,
kóngulóarvefur spunninn af hægriöfga-
mönnum, sem vilja seilast til valda í
Þýskalandi og skynja veikleika stjórnkerf-
isins og ólgu þjóðfélagsins.
ðalpersóna Kóngulóarvefsins er
Theodor nokkur Lohse, fyrrum her-
maður í fyrri heimsstyrjöldinni og tákn
þáverandi vonbrigða og niðurlægingar
þýskrar þjóðar. Lohse kemst fljótlega í
samband við neðanjarðarhreyfingu hægri-
manna, hann gengur erinda hennar, flæk-
ist inn í flókna atburði og starfar jafnvel
um tíma sem flugumaður í hópi kommún-
ista. Lohse er tækifærissinni: Til að öðlast
frama innan hersins skirrist hann ekki við
að hafa mök við samkynhneigða yfir-
menn, hann á í ástarsambandi við ríka og
fagra gyðingakonu, fjöldamargar götu-
drósir og launráða kommúnistakonu því
Theodor Lohse sækist eftir skjóli í hinu
kvenlega og hinu móðurlega þess á milli,
sem hann vinnur að því sem óðast að öðl-
ast frama í þjóðfélaginu og jafna þær mis-
gjörðir, sem það og raunar heimurinn all-
ur, hefur valdið honum á umliðnum ár-
um.
Það sem mönnum þykir nú um stundir
merkilegast við Kóngulóarvefinn er þessi
persónusköpun, þessi tiltekni Theodor
Lohse. Hann er holdgervingur nasis-
mans, tækifærismennskunnar, hann
stendur sem slíkur sem tákn fyrir afar
marga Þjóðverja á árunum milli 1920 og
1930. Sumir hafa líkt Theodor Lohse við
Himmler: Þarna hafi persóna valdamanns
í Hitlers-Þýskalandi verið dregin upp heil-
um áratug fyrir þess dag. Og hvernig
skáldið Joseph Roth fór að því að draga
upp slíka mynd svo snemma er undrum
líkast.
Joseph Roth var fæddur árið 1894, hann
lagði stund á heimspeki og bókmennta-
fræði við háskólana í Vín og Lemberg en
varð síðan hermaður í fyrri heimsstyrjöld-
inni. Eftir stríðið starfaði hann sem blaða-
maður í Vín og Berlín og frá árinu 1923 til
1932 hjá Frankfurter Allgemeine. Hann
flýði land eftir valdatöku nasista 1933 og
bjó til dauðadags 1939 í París. Hann féll í
gleymskunnar dá, verk hans, þeirra á
meðal skáldsögur eins og Hægri og vinstri
eða Rechts und Links og Radetzky-mars-
inn voru ekki gefin út og fáum kunn.
Kvikmynd Bernards Wickis, þar sem
frægasti leikari landsins Klaus
Maria Brandauer lék eitt af aðalhlutverk-
unum, hefur hins vegar vakið slíka athygli
hér í Þýskalandi að Joseph Roth er orðinn
að víðlesnum og viðurkenndum höfundi.
Þó eru verk hans knöpp og afar ólík því,
sem viðurkenndast er í þýskum bók-
menntaheimi nú um stundir. Kóngulóar-
vefurinn er það sem kalla mætti einföld
saga en hins vegar borin uppi af náðargáfu
sagnameistarans, þeim hæfileika að geta
sagt sögu þar sem persónum er stanslaust
ögrað, þar sem atburðirnir sjálfir eru
burðarafl verksins en ekki sjálfskrufning
persóna.
Sagt hefur verið um Kóngulóarvefinn
að hann sé í rauninni orðinn að meiru en
aðeins skáldskap: nú á tímum sé hægt að
vitna í verkið eins og hverja aðra sam-
tímaheimild. Skáldið, sem lést í einsemd í
París fyrir hálfri öld, er orðið eitt af þeim
skáldum, sem hvað helst höfða til þýskra
lesenda þetta haustið og eru hvað mest
áberandi í bókaverslunum.
Joseph Roth hefur snúið aftur. ()
ÞJÓÐLÍF 79