Þjóðlíf - 01.12.1990, Side 96
eru til húsa að Tryggvagötu 10. I því hús-
næði eru skrifstofur Plús Film og mynd-
ver þar sem aðstaða er til upptöku, vinnslu
og frágangs á sjónvarpsþáttum, auglýsing-
um og myndböndum á Betacam kerfínu.
Plús Film var stofnað haustið 1986 um
sama leyti og Stöð 2 hugðist fara í loftið.
Unnið var myrkranna á milli við að safna
sjónvarpsefni fyrir nýfæddu sjónvarps-
stöðina og þar átti Plús Film drjúgan þátt
að máli. Plús Film sá um framleiðslu
fyrstu innlendu þáttana sem stöðin lét
gera. Þegar upp er staðið hefur Plús Film
framleitt hátt á þriðja hundrað þátta fyrir
sjónvarp, nær eingöngu fyrir Ríkissjón-
varpið síðastliðin tvö ár. Plús Film hefur
einnig gert töluvert af auglýsingum og
tónlistarmyndböndum. „Samkeppnin í
kvikmyndaiðnaðinum fer stöðugt vaxandi
og getum unnið fyllilega úr því efni sem
við tökum og skilað af okkur tilbúnu til
útsendingar", sagði Sigurður.
Helsti starfsvettvangur Þumals hefur
verið gerð heimilda- og fréttaþátta en
einnig hefur fyrirtækið séð um kynningu
dagskrár Utvarps og Sjónvarps um árabil.
Um fréttaþætti og myndir sem Þumall
hefur framleitt sagði Karl: „Við hjá Þumli
höfum einbeitt okkur að gerð fréttatengds
efnis og má þar nefna sem dæmi þátt um
verkfall BSRB ’84 og heimildarmyndina
um Grænhöfðaeyjar sem við unnum að
árin ’86-’87. Einnig höfum við unnið
fréttaþætti fyrir sjónvarpsstöðvar í Þýska-
landi og fleiri lönd í Evrópu.“
Auk Sigurðar og Karls hjá Þumli sér
Kristjana Rósmundsdóttir um rekstur og
bókhald fyrirtækisins og Friðgeir Axfjörð
starfar sem klippari og tæknistjóri Þum-
als. Um fjölda starfsmanna sagði Kristj-
ana; „Það telst kannski skrítið að í fyrir-
tæki af þessari stærð séu svona fáir starfs-
menn en hlutirnir ganga samt fljótt og vel
fyrir sig. Að sjálfsögðu höfum við þann
kost að kalla í lausafólk til aðstoðar við stór
verkefni."
Um framtíðaráform Þumals sagði Karl:
„Við erum núna að fara í gang með fram-
leiðslu á fréttaþáttum fyrir erlendar sjón-
varpsstöðvar en þjónusta okkar í alhliða
kvikmyndagerð stendur ávallt til boða
fyrir landann einnig."
Eigandi og framkvæmdastjóri Plús
Film er Sveinn M. Sveinsson en hann,
ásamt föstum starfsmönnum þeim Jóni
Karli Helgasyni kvikmyndatökumanni,
Gunnari Jóhannssyni tæknistjóra og
Friðriki Erni Jónssyni skrifstofustjóra
Ólafur Rögnvaldsson og Þorbjörn Á. Erlingsson í Klappfilm við iðju sína.
íslendingar í Portúgal. Sveinn og Jón Karl íPlús Film ásamt fvlgdarliði.
og fleiri bætast í hópinn. Undirboð eru
grimm og afföll ör eins
og vera ber á frjálsum markaði. Með
harðnandi samkeppni eykst þáttur mark-
aðsöflunar í íslenskri kvikmyndagerð. Við
hjá Plús Film höfum lagt land undir fót í
efnisleit og selt sjónvarpsstöðvunum til-
búna þætti utan úr heimi. I því skyni ferð-
uðumst við til Indlands, Norður Portúgal,
Spánar, Frakklands og víðar, söfnuðum
efni og unnum úr“, segir Sveinn.
Sem dæmi um spennandi verkefni
framundan sagði Sveinn: „Plús Film er að
jafnaði með 7 -10 verkefni í vinnslu og má
sem dæmi nefna þætti á undirbúningsstigi
frá Yakutsiu héruðum Rússlands. Hópur
íslenskra listamanna er að undirbúa ferð
þangað í júní á næsta ári og hyggjumst við
Plús Film menn slást í förina og gera fjóra
þætti um ferðina, menningu, land og
þjóð.“
Stöðu Plús Film í dag taldi Sveinn
nokkuð góða og vaxandi notkun og eftir-
spurn á fræðslu efni á myndböndum sönn-
un fyrir tilverurétti fyrirtækis síns og
annasamri framtíð.
Um horfur kvikmyndagerðar á Islandi
sagði Sveinn: „Fáir verða feitir á íslenskri
kvikmyndagerð í dag og er fjársvelti og
vanmat þjóðarleiðtoga á þessari grein þar
helst til skýringa. Þetta er dýr list, og ekki
allt list, en sögulegt og menningarlegt
gildi kvikmyndarinnar er mjög vanmetið.
íslenskir kvikmyndagerðámenn hafa
sannað ágæti sitt á alþjóðavettvangi og
landamæri iðnaðarins víkka stöðugt.
Framtíð iðnfyrirtækja á þessu sviði tel ég
nokkuð bjarta, en annað er að segja um
íslenska kvikmyndagerð er snýr að gerð
alvöru kvikmynda, en þar er frekar
dekkra framundan.“ ()
96 ÞJÓÐLÍF