Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2015, Síða 6

Frjáls verslun - 01.03.2015, Síða 6
6 FRJÁLS VERSLUN 3 tbl. 2015 Í flóknu umhverfi leynast tækifæri Að ná markmiðum í flóknu og síbreytilegu umhverfi kallar á einbeitingu og aðlögunarhæfni. Við einföldum leiðina og gerum þér kleift að ná markmiðum þínum. kpmg.is Kröfuspjöld um tugprósenta launahækkanir á línuna eru í raun krafan: Ég vil hafa það verra! Ég vil hafa það verra Þ að er eflaust stemning í því að fægja gömlu góðu kröfuspjöldin. En það er þyngra en tárum taki að boðuð séu stór felld verkföll á vinnumarkaði til að ná fram kröfunni um að hafa það fjár ­ hagslega verra. Þjóðfélagið skaðast allt en barnafólk með lágar tekjur fer verst út úr verð ­ bólgu. Í engu öðru vestrænu ríki dettur mönnum í hug að fara fram á tuga prósenta launahækkanir yfir línuna vitandi vits að verðbólgan tekur þær strax til baka – hvað þá þegar stór hluti heimila landsins er með verð tryggð lán. Við Íslendingar erum ágætlega mennt­ uð þjóð en lærum hins vegar seint á formúluna um víxl verkun launa og verðlags. Hún er sagan endalausa. Í Þýskalandi og flestum ríkjum Evrópu er þjóðarsátt um að hafa ekki verðbólgu. Þar eru laun hækkuð í takt við hagvöxt – aukna verðmætasköpun – og einblínt á kaup mátt ráðstöfunartekna. Þetta eru engin ný tíðindi heldur gömul vitræn tugga í umræðunni um efna hags­ mál. Hún heyrist en það er ekki hlustað. Eftir stöðug ­ leika undanfarinna ára á vinnumarkaði, sögulega lága verðbólgu, umtalsverðan aukinn kaupmátt ráð stöf unar ­ tekna og stórfellda niðurfærslu hins opinbera á skuld um margra heimila telur launþegahreyfingin ástæðu til að boða til allsherjarverkfalls sem skaðar stöðug leikann. Fyrrverandi ríkisstjórnarflokkar ala á úlfúð í þeirri einu von að komast sem fyrst í stólana aftur og helstu foringjar launþegahreyfingarinnar ræða um óstöðug­ leikann sem náttúrulögmál tengt krónunni fremur en afleið ingu af hegðun og ákvörðunum. Launþegahreyfingin segist fara fram með þá stefnu sem ríkið hafi markað í viðræðum sínum við lækna og kennara og nefnir tuga prósenta launahækkun. Í lækna ­ deilunni virtist breið samstaða um það í samfélaginu að laga þyrfti kjör lækna sérstaklega og stöðva flótta þeirra til útlanda. Núna er komið á daginn að þessi mikla sam staða var hjóm eitt; einungis sett fram í fréttatímum almanna­ tengla til að brjóta ísinn fyrir aðra til að koma í kjölfarið á sömu nótum. Í ritstjórnargreinum Frjálsrar verslunar hefur margoft verið varað við ofurlaunum stjórnenda vegna þess að þau eru afleit fyrirmynd. Vandinn er sá að það hefur engin áhrif á þjóðarbúið og atvinnulífið þótt 400 for ­ stjórar hefðu 15 milljónir á mánuði. En því miður hefur það verulegar fjárhagslegar afleiðingar þegar allur fjöldinn fær tugprósenta launahækkanir og vísar til hárra launa stjórnenda. Svona er þetta í reynd, hversu ósanngjarnt sem það kann að vera. Hvernig á annars að svara launamanninum sem segir: Þið viljið ekki hækka við mig launin og haldið því fram að þá fari allt til fjand ans. Reynið sjálfir að lifa af 300 þúsund krónum á mánuði! Þessu er ekki auðvelt að svara í orði en í amstri dagsins er svarið miskunnarlaust; afleiðingin er minni kaupmáttur og atvinnuleysi. Samanburður á prósentu­ hækkunum launa ýtir sömuleiðis oft undir reiði almennra launþega. Stjórnandi með tvær milljónir á mánuði, sem fær 10% launahækkun, fær 200 þúsund krónur á meðan sá með 300 þúsundin fær 30 þúsund krónur. Í kröfugöngu BHM, Bandalags háskólamanna, stóð á einu spjaldinu að meta ætti menntun til launa. Það hljómar ágætlega á spjaldi en raunveruleikinn er sá að vinnumarkaðir líkt og aðrir markaðir ráðast af fram ­ boði og eftirspurn. Þegar fólk fer í nám er það að fjárfesta í kunnáttu til að standa betur að vígi á vinnu ­ markaði. Það hefur hins vegar enga vissu eftir fimm ára háskólanám um að fá störf og laun við sitt hæfi – og að vinnuveitandinn sé tilbúinn að greiða laun sem standi straum af öllum námskostnaðinum. Það getur þess vegna staðið uppi atvinnulaust og byrjað að vinna við allt annað en það menntaði sig til. Auðvitað ætti öll menntun að skila sér í launaumslagið en það gerist engan veginn sjálfvirkt. Framleiðni er mikið í umræðunni. Hún stendur fyrir verðmætasköpun á mann. Ef enginn vill til dæmis kaupa fréttir er ekki um mikla framleiðni í þeirri grein að ræða. Fréttastofa sem framleiðir lítið af verðmætu efni á hvern starfsmann skilar ekki mikilli framleiðni. Helstu sjónvarpsstöðvar um allan heim kvarta undan því að ungt fólk sé að hverfa frá hefðbundnu sjónvarpi og nemi sannleikann í gegnum hljóð og mynd á netinu – og telji að það eigi að fá allar fréttir ókeypis og helst líka kvikmyndir og tónlist. Þetta hefur orðið til þess að fram ­ leiðni stórstjarna í tónlistinni er miklu minni en áður og koma tekjur tónlistarmanna núna helst í gegnum tónleika. Komin er fram kynslóð ungs fólks á Íslandi sem segir að hún „eigi að fá“ hærri laun fyrir styttri vinnudag alveg eins og þekkist annars staðar á Norðurlöndunum. Vandinn við þessa kröfu er sá að aðeins aukin framleiðni og verðmætasköpun getur staðið undir henni. Það sem ræður mestu um framleiðni atvinnu greina og fyrirtækja eru frjáls markaðsöfl sem ákveða hvað sé framleitt, hvernig og fyrir hverja. Í kommúnískum hagkerfum var mikið framleitt, sam ­ kvæmt fimm ára áætlunum, af vörum sem enginn vildi kaupa. Mikið var unnið og stritað en framleiðni og verð ­ mætasköpun var lítil. Berlínarmúrinn féll að innan verðu vegna lítillar framleiðni og fátæktar í Austur­Evrópu. Vinnumarkaðurinn er brothættur og spenntur. Fyrirmyndir, framleiðni og launamunur er í umræðunni. Af litlum neista verður oft mikið bál. Því miður lærum við aldrei og tekst ekki að feta leið nágrannaþjóða og hugsa um kaupmáttinn frekar en krónutölur. Kröfuspjöldin sem núna eru dregin fram, fægð eða máluð upp á nýtt með kröfu um tugprósenta launa hækk ­ un á alla línuna eru í raun krafan: Ég vil hafa það verra! Jón G. Hauksson leiðari
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.