Frjáls verslun - 01.03.2015, Blaðsíða 10
10 FRJÁLS VERSLUN 3 tbl. 2015
Fyrirtækið hafði árið 2007 selt
alla sína útgáfu nema Disneyút
gáfuna og áskriftarleiðirnar.
Vildi á stærri markað
Jón Axel segir að fyrstu árin hafi
farið í að reyna að ná sjó og
jafnvægi í rekstri félagsins þar
sem það var tiltölulega illa farið
fjárhagslega eftir hrunið.
„Helstu kröfuhafar félagsins voru
erlendir auk nokkurra ís lenskra
kröfuhafa; þar á meðal skilanefnd
ir sem voru alls ekki hjálplegar
þann ig að það var fyrsta áhlaupið.
Þau tækifæri sem ég sá
tengd ust Disney en um 60%
af tekjum félagsins tengdust
áskrift um tengdum Disney, sem
er gríðarlega þekkt vörumerki.
Ég sá að félagið gæti náð jafn
vægi í tengslum við það. Ég
hafði þó innst inni augastað á
því markmiði að komast á stærri
markað – hvort sem það væri við
sölu á útgáfu eða varningi; ég
vildi að minnsta kosti vinna meira
með Disneyvörumerkið. Það var
undirliggjandi stefna.“
15-20 bækur á
Bandaríkjamarkað
EDDA USA, systurfélag Eddu,
gaf í fyrra út þrjár bækur sem
eru seldar í Bandaríkjunum
og mun gefa út 1520 bækur
á þessu ári. „Bækurnar eru
nán ast að öllu leyti unnar hér á
Íslandi, annað hvort af starfsfólki
okkar eða verktökum eða hvort
tveggja. Þetta eru a.m.k. flestallt
Íslendingar.
Við höfum aðgang að gríðar
lega stórum gagnabanka með
fyrirfram mótuðu Disneyumhverfi
sem við getum sótt og notað í
bækurnar okkar. Við förum eftir
mjög ströngum gæðastaðli
og vinnureglum um hvernig
megi nota allt það efni sem
við höfum aðgang að. Texti,
mynda taka og samsetning
er síðan á okkar ábyrgð.“
Á meðal bóka sem verið
er að vinna að og munu
koma út í Bandaríkjun
um eru Frozenbækur,
Star Warsbækur og
bók um nýju Disney
prinsess una, Mohönu.
Disneypartíbók og Fro
zenafmælisveislubók
koma út í vor. „Disney
partíbókin verður
tæplega 200 blaðsíður
með nánast öllum
Disneykarakterun
um; þar verður lögð
áhersla á hvernig
útbúa á veislu með
Disneyþema.“ Þá
er verið að vinna að
hrekkjavökubók.
„Við erum líka að vinna að
DreamWorksbókum sem koma
út í haust auk þess sem við erum
að vinna efni undir fleiri vöru
merkjum sem ekki er mögulegt
að segja frá sem stendur.“
Frozenhárbókin, sem kom út
á Íslandi fyrir jólin í fyrra, kallast
einfaldlega Hairstyles á ensku
og kom einnig út í Bandaríkjun
um. „Hún kemur jafnframt út á
næstunni á Norðurlöndunum, í
Þýskalandi, Austurríki og Rúss
landi.“
Jón Axel segir að bókunum
hafi verið tekið vel í Bandaríkjun
um. „Við dreifðum og seldum á
annað hundrað þúsund bækur á
sex vikum og erum mjög ánægð
með þann árangur. Það þykir
mjög gott fyrir fyrirtæki sem er
ekki stærra en Edda.“
Góðir hluthafar
Segja má að Jón Axel sé þátt tak
andi í spennandi Disney ævin
týri.
„Mér finnst bara gaman að
skapa. Þetta er í rauninni sniðið
fyrir mig að því leyti að það
er gríðarlega mikið verið að
skapa á hverjum einasta degi.
Mér finnst skemmtilegast að
vinna í umhverfi þar sem er mikil
dýnamík, þar sem tækifærin eru
mörg og möguleikarnir miklir.
Þetta þýðir að ég get stækkað
reynsluheim minn mikið.
Það er mjög krefjandi að
fara að vinna með Disney og
sambærilegum Hollywoodætt
uðum fyrirtækjum vegna þess
að það reynir mikið á þolinmæð
ina; þetta tekur langan tíma og
Disney velur sér samstarfsaðila
af mikilli natni. Maður hleypur
ekkert upp í fangið á þeim.
Þetta þýðir líka að sjónarhornið
verður stærra; tengslanetið
stækkar og tækifærin aukast.
Því fylgja líka viðskiptaleg
tækifæri að vinna vöruna fyrir
fleiri markaði en bara þann
íslenska. Vaxtarmöguleikar á
Íslandi eru takmarkaðir; útgáfa
er mjög erfið hér þar sem hún
er mikið happdrætti. Tiltölu
lega fáar bækur seljast t.d. í yfir
10.000 eintökum á ári. Banda
ríski markaðurinn er allt öðruvísi.
Samvinnan við Disney og stóru
vörumerkin hjálpar til við að fá
annað sjónarhorn á hlutina – sjá
hvaða tækifæri skapast við það
að vera á öðrum mörkuðum. Ég
er svo heppinn að ég er með
góða og trausta hluthafa með
mér sem vinna virkilega vel í því
að styrkja fyrirtækið, eru þolin
Þessir vönduðu rammar skera
sig úr vegna nákvæmninnar
sem lögð hefur verið í efnisval
og framleiðslu. Sérstök fram-
leiðsluaðferð var þróuð fyrir
Gira Esprit línóleum-multiplex
línuna. Aðferðin felur í sér
mörg vinnsluþrep undir
stöðugu gæðaeftirliti sem gera
rammana einstaklega fíngerða
og sterkbyggða í senn.
Verðlaun:
Sigurvegari Iconic Awards 2014,
Plus X Award í flokknum fyrir
bestu vöru ársins 2014,
Plus X Award fyrir mikil gæði,
hönnun og eiginleika 2014
www.gira.is
Hreinar línur,
náttúruleg efni
Gira Esprit
Línóleum-multiplex
Í Gira Esprit línóleum-multiplex
sameinast í fyrsta sinn í einni
rofalínu tvö náttúruleg efni
sem fullkomna hvort annað:
Línóleum og multiplex eru úr
endurnýjanlegum hráefnum
og eru jafnframt sterkbyggð,
fjölhæf og sívinsæl meðal
arkitekta og hönnuða. Rammar
í sex spennandi litum bjóða
upp á svigrúm fyrir margs
konar samsetningar. Gira Esprit
línóleum-multiplex er tilvalin
fyrir hönnunarhugmyndir þar
sem óskað er eftir hreinum
línum og náttúrulegum efnum.
Rammar í sex
spennandi litum:
Steingrátt
Ljósgrátt
Ljósbrúnt
Dökkbrúnt
Blátt
Rautt Vö
ru
h
ö
n
n
u
n
:
H
ö
n
n
u
n
ar
te
ym
i G
ir
a
/ s
ch
m
it
z
V
is
u
el
le
K
o
m
m
u
n
ik
at
io
n
h
g
sc
h
m
it
z.
d
e
S. Guðjónsson
Smiðjuvegur 3 200 Kópavogur
Sími: 5 20 - 45 00 www.gira.is
2014-11-27-Esprit-Multiplex-Isländisch-SCHUKO-210x297_pp.indd 1 27.11.14 15:40
Útgáfa