Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2015, Blaðsíða 12

Frjáls verslun - 01.03.2015, Blaðsíða 12
12 FRJÁLS VERSLUN 3 tbl. 2015 móðir og gefa mér ákveðið rými til að vinna þessa vinnu 100%. Þeir fylgjast mjög vel með öllum þáttum starfseminnar og taka þátt í verkefninu af miklum eld­ móði. Það er gott að hafa traust bakland og stuðning og ekki síst þekkingarbrunn til að leita í á sviði alþjóðaviðskipta.“ EDDA USA og EDDA EUROPE Jón Axel er mikið á ferðinni og fer reglulega til Bandaríkjanna. „Markaðssvæði okkar er náttúr­ lega í Bandaríkjunum og ég þarf þess vegna að vera mikið þar. Þá eru þar margir að vinna fyrir okkur; við erum t.d. í samvinnu við stórt dreifingarfyrirtæki, markaðsfyrirtæki og sölumenn. Ég fer út nánast í hverjum mánuði til að fylgja þessu eftir, hitta kaupendur eða undirbúa sýningar.“ Jón Axel segir að markmiðið hvað varðar Bandaríkjamarkað sé að EDDA USA verði innan fárra ára einn af fimm stærstu leyfishöfum Disney á sviði útgáfu – og fyrirtækið verði arðbærast af þessum fimm. „Við ætlum að gera það með því að framleiða vörurnar hérna heima; við sjáum að við getum framleitt meira efni á skemmri tíma á hagkvæmari hátt en keppinautar okkar. Það er það sem við stefnum á. Fyrst við erum komin af stað er alls ekki útilokað að við lít­ um til fleiri markaðssvæða og Evrópa stendur okkur nærri þannig að hver veit nema það opnist tækifæri þar líka í náinni framtíð. Að minnsta kosti er það áhugavert út frá þeirri stað reynd að það eykur hagræði okkar að vera á fleiri en einu markaðs­ svæði og dregur mikið úr hlutfalli fasts kostnaðar.“ Um 260 milljóna króna velta Hverjir ætlu draumarnir séu svo varðandi samvinnuna við Disney? „Disney er náttúrlega einn draum ur frá upphafi til enda. Auðvitað er draumurinn sá að geta skapað sér skemmtilegt viðurværi, vinna með frábæru fólki og náttúrlega geta skilað hluthöfunum arði af fjárfestingu sinni. Það er kannski stóra málið. Svo er það draumastarf að geta unnið með skemmti­ legan leir á hverjum einasta degi og vera alltaf í nýju umhverfi. Mér leiðist að vera á sama staðnum mjög lengi þann ig að það er náttúrlega mjög skemmtilegt og spennandi að geta verið í nýjum verkefnum og á hverjum degi skapað eitthvað og byggt eitthvað upp úr engu.“ Jón Axel segir að velta EDDU útgáfu sé á milli tvö og þrjú hundruð milljónir króna en ekki sé tímabært að gefa upplýsing­ ar um önnur fyrirtæki að svo stöddu. Fyrsta flokks vara Disney­heimurinn er óþrjótandi uppspretta af skemmtilegum við­ fangsefnum. „Disney er í raun og veru lof orð um mikil gæði og það er alltaf hægt að treysta Disney­vöru ­ merk inu. Það fylgir því öryggi, það fylgir því gleði og það fylgir því í raun og veru vissa um að varan sé í lagi, alveg sama hvaða vara það er – hvort sem það eru bækur0, kvikmyndir, skemmtun eða leikföng. Allt sem fólk fær og upplifir undir nafni Disney er alltaf fyrsta flokks. Takmark mitt er að við munum framleiða vöru sem stendur undir þessu loforði. Það er kannski aðalatriðið – að fá að vera í hópi sem er með svona gríðarlega sterka ásýnd eins og Disney. Það er náttúrlega mikill heiður að fá að vinna að verkefn um undir þessu vörumerki. Maður fer ekkert hærra en það. Þetta tekst heldur ekki nema að þessu komi fagfólk úr öllum áttum og ég er svo lánsamur að allt í kringum mig er samstarfsfólk hjá Eddu og Eddu USA sem hefur áratuga reynslu í framleiðslu bóka sem þessara og án þessara fagmanna gengi þetta aldrei. Það á stærstan hlutann af því að þetta verkefni er komið á flug; útgáfustjórar, hönnuður, ljósmyndarar, markaðsfólk og allir aðrir. Þetta er teymisvinna og samstarfsfólk mitt lætur ekk ert stoppa sig og við erum rétt að byrja.“ Jón Axel er í lokin spurður persónulegrar spurningar: Hver er uppáhalds Disney­fígúran? „Það er Andrés Önd,“ segir hann ákveðinn og hlær. „Hann er svolítið skemmtilegur. Hann er náttúrlega mjög sérlundaður og þrjóskur og hann á það til að vera fúll og skapmikill en í enda dags er hann mjög góðhjartaður, blíður og skemmtilegur karakter. Hann er mikill og góður vinur minn.“ Stytta af Andrési Önd stendur keik á skrifborði Jóns Axels. Hann er þar í sparifötunum; það er ekkert annað. Með bláa húfu og bleika og rauða slaufu. Nettari afgreiðsla HP RP2 kassakerfislausnin Intel® Quad Core™J2900 Pentium® J2A63AV Fyrirferðalítill vinnuþjarkur HP RP2 kassakerfið er traust og áreiðanleg lausn sem uppfyllir ströngustu kröfur og er hönnuð fyrir langtímanotkun. Meiri sveigjanleiki Stilltu skjáinn eins og þér hentar best hvað varðar hæð, snúning og sjónarhorn og veldu þá aukahluti sem hæfa þínum rekstri. Kynntu þér RP2 kassakerfalausnina nánar á www.ok.is/rp2/ OPIN KERFI | HÖFÐABAKKA 9 | 110 REYKJAVÍK | SÍMI 570 1000 | OK@OK.IS Sérfræðingar þér við hlið Allar nánari upplýsingar á www.ok.is. Intel, merki Intel, Intel Inside, Intel Inside merkið, Intel Atom og Intel Atom Inside eru vörumerki Intel Corporation í Bandaríkjunum og/eða öðrum löndum. frá kr. 9.900 á mánuði* EIGÐU eða LEIGÐU *Verð getur breyst miðað við mismunandi útfærslur. Útgáfa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.