Frjáls verslun - 01.03.2015, Síða 23
FRJÁLS VERSLUN 3 tbl. 2015 23
Þ
ó að sumir myndu
gera hvað sem er fyrir
frægð ina þá er kannski
langsótt að frægðin
geti falist í að vera fyrsta konan
sem flytur aðalræðu á stórri
ráðstefnu. Þetta var þó stað
reyndin þegar hin sádiarabíska
Lubna Suliman Olayan hóf upp
raust sína á Jeddah Economic
Forum fyrir áratug. Ósagt er látið
hver skutlaði henni á ráðstefn
una. Lubna er framkvæmdastjóri
Olyan Financing en starfsemi
fyrirtækisins og dótturfyrirtækja
er með afbrigðum fjölþætt og
spannar margar atvinnugreinar.
Rætur fyrirtækisins, sem faðir
hennar stofnaði, eru olíubornar
ef svo má að orði komast og
skyldi engan undra. En svo rúll
aði boltinn í margar áttir. Fjöldi
fyrirtækja innan samstæðunnar
skiptir tugum, flest í fullri eigu
fyrirtækisins en önnur rekin í
samstarfi við önnur fyrirtæki.
Nefna má framleiðslu á vörum
Coca Colafyrirtækisins, en fyrir
tilstilli Olyan Financing gátu
Sádar aftur handleikið flöskuna
sem hinn sænski Samuelson frá
VesturGotlandi hannaði upp
haflega. Mendelez, Schindler,
ColgatePalmolive, Cummins,
Atlas Copco og KimberlyClark
eru einnig fyrirtæki sem eiga í
samstarfi við Olyanfyrirtækið.
Rekið er öflugt fasteignafélag
sem m.a. reisti fyrstu stóru
verslunarmiðstöðina í Sádi
Arabíu og fjárfestingararmur
samstæðunnar einbeitir sér að
fjárfestum í skráðum sádiara b
ískum fyrirtækjum. Önnur félög
hafa nýtt sér krafta Lubnu en hún
hefur t.d. setið í stjórnum eða
ráðgjafarráðum hjá Rolls Royce,
Citigroup og breska markaðs
og auglýsingafyrirtækinu WPP.
En Lubna er að mörgu leyti fyrst
og fremst frumkvöðull. Árið 2010
var hún valin frumkvöðull ársins
hjá Cornellháskóla. Stundum
verður upphefðin að koma að
utan.“
Á grænu ljósi í Sádi-arabíu
Loftur ÓLafSSon
sjóðstjóri hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum
ERLENDI FORSTJÓRINN
„Fjöldi fyrirtækja innan
samstæðunnar skiptir
tugum, flest í fullri eigu
fyrirtækisins en önnur
rekin í samstarfi við
önnur fyrirtæki.“
H
vernig má það vera
að stærsta leigubíla
fyrirtæki heims,
Uber, á enga bíla og
stærsti smásali heims, Alibaba,
á engan lager? Og hvernig má
það vera að flestar gistinætur
ferðalanga í heiminum eru
skráðar hjá félagi sem á engar
fasteignir, Airbnb, og vinsælasti
fjölmiðill heims, Facebook,
skrifar ekkert efni sjálfur? Það
mætti halda að við værum farin
að selja norðurljósin.“
Guðrún Högnadóttir segir að
þessi nýju markaðstorg sem
spretta upp í okkar rafræna
vel tengda heimi byggist á
einstöku líkani viðskipta þar
sem gagnkvæmt traust er hinn
nýi gjaldmiðill, upplýsingar
eru forsenda ákvörðunartöku
og nýting á auðlindum drífur
framboð og eftirspurn. Hún
bendir á að deilihagkerfið hafi
þeg ar breytt heiminum og muni
bylta því hvernig fólk skiptist á
vöru, þjónustu og þekkingu til
framtíðar.
„Líkt og örlánahugmyndafræð
in einfaldaði aðgang að fjár
magni hafa „örþjónustumiðlar“
sprottið upp víða og einfaldað
líf okkar. Vanti fólk aðstoð við
að setja saman IKEAborðið
finnur það hjálparhönd á Task
Rabbit, það finnur gæslu fyrir
hvutta í fríinu á góðu heimili hjá
DogVacay, „Dogtastic Home
Away From Home“, og hægt
er að stofna sína eigin skyn
diskilaboðasjónvarpsstöð t.d.
með Snapchat.“
Guðrún segir að mögulegur
hagur deilihagkerfisins fyrir
samfélagið felist í betri nýtingu
á aðföngum, auknum hagvexti
og velferð með því að hvetja til
neyslu, aukinnar framleiðni og
nýsköpunar.
„Deilihagkerfið býður upp
á milliliðalaus viðskipti, lægri
kostn að, einfaldleika, fjölbreyti
leika og eykur gagnkvæman
hag seljenda og kaupenda.
Mikilvægt er að hið opinbera
nýti sömu gildi hagkvæmni,
einfaldleika og sjálfbærni í að
hanna ramma eftirlits og skatta
umgjarðar til að þjóna vexti á
sameiginlegri vegferð okkar.“
Sótt fram án eigna
guðrÚn HÖgnadÓttir
framkvæmdastjóri FranklinCovey
ÁRANGUR OG FORYSTA
„Vanti fólk aðstoð við að
setja saman IKEAborðið
finnur það hjálparhönd
á TaskRabbit, það finnur
gæslu fyrir hvutta í
fríinu á góðu heimili hjá
DogVacay.“