Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2015, Qupperneq 89

Frjáls verslun - 01.03.2015, Qupperneq 89
FRJÁLS VERSLUN 3 tbl. 2015 89 sér gjarnan sjálfir til hreyfings ef tækifæri til starfsþróunar eru ekki sýnileg á vinnustaðnum. Þannig getur það líka verið mikil hvatn­ ing fyrir efnilega millistjórnendur og sérfræðinga að sjá tækifæri til vaxtar og starfsþróunar innan fyrirtækisins. Það er alls ekki sjálfgefið að mannauðurinn ávaxtist í daglegri vinnu starfsmanna. Ef ekki er hugað að þessum þætti sérstak­ lega er alls ekki víst að til verði heppilegir arftakar þegar á þarf að halda. Það ætti þess vegna að vera markmið hjá öllum fyrirtækjum sem vilja standa vel að vígi að huga vel að arftaka­ og starfs­ þróunaráætlunum. Með því móti geta þau ævinlega haft á að skipa hæfum einstaklingum sem eru tilbúnir að takast á við ný verkefni og störf á hverjum tíma ef lykilmenn hverfa á braut. mikilvægasta auðlindin Þótt mörgum finnist stundum vanta að hugur fylgi máli þá er ekki ofsögum sagt að mann­ auðurinn er ein mikilvægasta auðlindin og eitt helsta sam­ keppnisvopnið í hinu kvika og síbreytilega umhverfi sem við búum við í viðskiptalífinu. En þrátt fyrir að mannauðurinn búi yfir mikilli þekkingu og hæfni er alls ekki sjálfgefið að unnt sé að virkja það til árangurs. Til að svo megi verða þurfa að koma til bæði hvatning og réttar aðstæður. Starfsþróunaráætlanir og starfs ­ þróunarverkefni eru verk færi sem geta, ef vel er að staðið, virkað mjög hvetjandi og jafn ­ framt skapað kjöraðstæður til efl ingar og vaxtar fyrir efnilegt starfsfólk. Þátttaka í starfsþró­ unarverkefnum getur stuðlað að jákvæðum viðhorfum og hugs­ unarhætti starfsfólks og um leið aukið afkastagetu og framleiðni. Ánægðir starfsmenn eru fúsir til þess að leggja harðar að sér í þágu fyrirtækisins og skapa gott andrúmsloft og starfsanda. Markviss beiting verkfæra sem stuðla að ánægju og gleði bygg ir undir starfshvatningu og starfs­ þróun. Það er þekkt staðreynd að ánægðir starfsmenn eru áhuga samari en óánægðir starfs­ menn. Fyrirtæki með ánægða starfsmenn ná því gjarnan betri rekstrarárangri en fyrirtæki þar sem starfsleiði er ríkjandi. Þess­ ari staðreynd ættu stjórnendur að taka mið af við skilgreiningu á starfsmannastefnu fyrirtækisins. Til að geta skipulagt markviss­ ar aðgerðir til að efla fólk í starfi þurfa stjórnendur að vita hvaða atriði efla og hvaða atriði skyggja á ánægju hvers og eins í starfi. Lítil starfsánægja getur orsakað mikla starfsmannaveltu hjá fyrir­ tækinu sem ekki aðeins þýðir það að mikilvæg þekking og reynsla getur tapast heldur getur það líka verið mjög kostnaðarsamt. Með því að veita starfsmönnum umboð til að taka sjálfstæðar ákvarðanir í starfi, sem geta leitt til hagræðingar hjá fyrirtækinu eða bættrar þjónustu, næst betri árangur. Ef vel tekst til stendur fyrirtækið sterkara eftir og er með ánægðari starfsmenn. starfsÞróunarvErkEfni Starfsþróunarverkefni miðast við að samstilla og fá þarfir, hæfni og markmið starfsmanna til þess að falla að framtíðartækifærum sem fyrirtækið getur veitt. Slík verkefni eru skipulögð með það fyrir augum að auka líkur á því að fyrirtækið hafi á að skipa rétt­ um einstaklingum, á réttum stað, á réttum tíma. Markviss stjórnun starfsþróunar gerir í raun kleift og tryggir að mannauðurinn sé nýttur á skilvirkan hátt. Helsta áskorunin við skipu­ lagða starfsþróun er að skilgreina markmið með verkefninu og for­ sendur fyrir vali á þátttakendum. Þá reynir m.a. á að fyrirtækið hafi góðar upplýsingar um og yfirsýn yfir hæfni og frammistöðu starfsmanna. Algengt er að skilgreina starfs þróunarverkefni á þrjá vegu: 1. starfsþróun í núverandi starfi. Þar sem mark­ miðið er að auka hæfni og ábyrgð í núverandi starfi og auka þannig ánægju og ábyrgð starfsmanns. 2. Starfsvíkkun. Þessi aðferð er stundum kölluð lárétt endurhönnun í starfi. Hún gengur út á að auka fjölbreytni starfsins með því að bæta við tengdum verkefnum á sama stigi. 3. starfsauðgun. Þessi aðferð er svonefnd lóðrétt endurhönnun í starfi. Markmiðið er þá að gefa einstaklingnum meira sjálfstæði og ákvörðunar­ vald yfir skipulagningu, framkvæmd og eftirliti á eigin vinnu. Starfið verður flóknara og gerir meiri krö­ fur til starfsmannsins og með tímanum verður hann hæfari til að takast á við meira krefjandi verkefni. Það eru einkum fjórir þættir sem huga þarf sérstaklega vel að við skipulagningu starfsþró­ unarverkefna. Í fyrsta lagi að skilgreina skýr markmið með verkefninu. Í öðru lagi að vanda val á þátttakendum. Í þriðja lagi að vanda til viðtala við þátttak­ endur sem tekin eru við upphaf verkefnisins. Í fjórða lagi að út­ búin sé skýr starfsþróunaráætlun til næstu tólf til átján mánaða. 1. Markmið starfsþróunar- verkefnis: • Markmið starfsþróunar­ verkefnis ætti að tengjast stefnu fyrirtækisins. • Verkefni þarf að tengj­ ast því hver lykilhæfni fyrirtækisins er og hvernig henni verður viðhaldið. • Mikilvægt er að svara spurningum eins og hvort tilgangurinn með verkefninu sé að finna framtíðarstjórnendur eða arftaka í almenn störf. • Jafnframt að íhuga hver er æskileg breidd innan fyrirtækisins m.t.t. bak­ grunns starfsmanna. Hve margar konur eru í skipuriti fyrirtækisins? Hver er aldursdreifing stjórnenda? Hvernig er menntun og meðalaldur stjórnenda? Allt þetta gæti haft áhrif á val á þátttakendum. Við val á framtíðarstjórn­ anda er mikilvægt að skoða hvort hann hefur ánægju af því að sjá aðra vaxa í kringum sig, hefur leiðtogahæfileika, jákvæð áhrif á aðra og nær árangri.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.