Frjáls verslun - 01.03.2015, Qupperneq 90
90 FRJÁLS VERSLUN 3 tbl. 2015
2. Val á þátttakendum
• Það getur verið kostnaðar
samt ef ekki tekst vel til
með val á þátttakendum.
Mjög góður sölumaður þarf
t.d. ekki endilega að verða
góður stjórnandi.
• Það þarf að íhuga hvaða
starfsmenn eru með
yfirburðahæfni, sýna af
burða frammistöðu og hafa
möguleika á að vaxa innan
fyrirtækisins.
• Skoða hvaða starfsmenn
vinna best samkvæmt
gildum fyrirtækisins.
• Skynsamlegt er að skoða
hvort hætta er á að mikil
væg þekking tapist vegna
núverandi samsetn ingar
starfsmannahóps eða
vegna aldurs.
• Við val á framtíðarstjórn
anda er mikilvægt að skoða
hvort hann hefur ánægju
af því að sjá aðra vaxa í
kringum sig, hefur leiðtoga
hæfileika, jákvæð áhrif á
aðra og nær árangri.
• Starfsmenn sem eru valdir
í starfsþróunarverkefni
verða að fá svigrúm til að
læra og þróast í starfi og
þurfa því stuðning frá sínum
næsta yfirmanni. Oftast
eru þátttakendur tilnefndir
í verkefnið, annaðhvort af
stjórnendum eða samstarfs
mönnum.
• Í flestum fyrirtækjum fá
starfs menn ekki greitt
aukalega fyrir að taka þátt
í starfsþróunarverkefni.
Þjálfunin getur verið kostn
aðarsöm og er yfirleitt litið
á tækifæri til þátttöku sem
umbun í starfi og möguleika
á starfsþróun síðar meir
innan fyrirtækisins.
3. Viðtal við þátttakendur
• Ekki er óalgengt að þátt
takendur fari í formlegt
ráðningarviðtal áður en
endanlegt val á þátttak
endum fer fram og oft er
þeim falið að leysa ein
hvers konar verkefni.
• Í viðtali við þátttakendur
er rýnt í hvaða þekkingu,
færni eða viðhorf starfs
maðurinn þarf að efla
til að ná árangri í starfi.
Farið er yfir hvort skortir
þekkingu á fyrirtækinu og
starfsemi þess, á hvaða
hátt þekking og hæfileik
ar geta nýst betur, hvaða
möguleika starfsmaður
sér til starfsþróunar
innan fyrirtækisins og
hvert framtíðarmarkmið
viðkomandi í starfi innan
fyrirtækisins er.
• Starfsþróunarmöguleikar
skoðaðir þ.e. á starfs
þróun í eigin starfi,
starfsauðgun eða starfs
víkkun.
4. starfsþróunaráætlun útbúin
• Áætlun útbúin til tólf til
átján mánaða.
• Áætlunin er klæðskera
saumuð að viðkomandi
starfsmanni og getur
falið í sér formlega
þjálfun, fræðslu, sjálfs
nám, markþjálfun, hitta
starfsþjálfa (mentor), inn
an eða utan fyrirtæksins,
starfaskipti milli deilda,
nám á neti o.fl.
• Í flestum fyrirtækjum eru
það mannauðsdeildir sem
bera ábyrgð á skipulagn
ingu og utanumhaldi
starfsþróunarverkefna.
• Það er árangursríkt að
stjórnendur innan fyrir
tækisins taki þátt í þjálfun
starfsmanna og taki að
sér hlutverk starfsþjálfa á
þessu tímabili.
• Huga þarf að því að
efla tengslanet þátttak
enda og þekkingu þeirra á
fyrirtækinu.
Rannsóknir sýna að formleg starfsþróunarverkefni auka árang ur fyrirtækja og ánægju
starfsmanna. Sjálfstraust
starfsmanna og hæfni eykst,
þekking þeirra á rekstri og
starfsemi fyrirtækisins eykst og
tengslanet eflist. Með öflugum
starfsþróunar verkefnum aukast
líkurnar á því að þú eigir góðan
liðsauka á varamannabekknum
þegar á þarf að halda.
Áætlunin er klæðskera
saumuð að viðkomandi
starfsmanni og getur falið
í sér formlega þjálfun,
fræðslu, sjálfsnám,
markþjálfun, hitta starfs
þjálfa (mentor), innan
eða utan fyrirtæksins,
starfaskipti milli deilda,
nám á neti o.fl.
Fyrirtæki með ánægða
starfsmenn ná því gjarn
an betri rekstrarárangri
en fyrirtæki þar sem
starfsleiði er ríkjandi.
Vinnan er stór hluti af lífi þínu og til að njóta starfsánægju
þarftu að takast á við ögrandi hluti sem eru þér einhvers virði.
Eina leiðin til að ná slíkum árangri er að vinna af eldmóði og
hafa gaman af því sem þú fæst við. Ef þú hefur ekki fundið starf
sem skilar þér vellíðan haltu þá áfram að leita að því. Engar
málamiðlanir í þeim efnum. Láttu hjartað ráða og þá veistu um
leið hvenær rétta starfið rekur á fjörur þínar.
– Steve Jobs
stjórnun