Frjáls verslun - 01.03.2015, Síða 94
94 FRJÁLS VERSLUN 3 tbl. 2015
kVikMyndir
Fyrr á þessu ári fékk Meryl Streep sína 19. óskarstilnefningu og bætti þar með eigið
met í tilnefningum og er aldrei að vita nema við bætist ein eða jafnvel tvær tilnefn-
ingar á næsta ári því aldrei þessu vant eru tvær kvikmyndir frumsýndar sem skarta
Meryl Streep. Önnur er Ricki and The Flash, þar sem hún er í aðalhlutverki, og hin
er Suffragette, þar sem hún er í aukahlutverki sem kvenréttindakonan Emmeline
Pankhurst.
Rafmögnuð Meryl Streep
TexTi: HilMar karlSSon
Y
firleitt lætur Meryl
Streep sér nægja að
leika í einni kvikmynd
á ári, sem er ágæt
staða fyrir aðrar leikkonur á
henn ar aldri þar sem vitað er að
yfirleitt eru henni boðin kröfuhörð
kvenhlutverk á undan öðrum svo
það er engin furða að hún skuli
alltaf vera í úrvalskvikmyndum
og í fjölbreyttum hlutverkum þar
sem miklir leikhæfileikar hennar
nýtast vel.
Ekki er hægt að hugsa sér
ólíkari hlutverk en rokksöngkon
una og gítarleikarann Ricki
Randazzo í Ricki and The Flash
og kvenréttindakonuna Emmel
ine Pankhurst sem var leiðtogi
breskra kvenna þegar þær gerðu
uppreisn gegn karlaveldinu
snemma á síðustu öld. Ekki þarf
að efast um að Meryl Streep á
eftir að gera báðum hlutverkum
góð skil. Streep er fín söngkona,
eins og hún sannaði í Mama Mia,
og bætir nú við gítarleiknum.
Og sem bresk kvenréttinda
kona hlýtur það að koma henni
til góða að hafa leikið Margaret
Thatcher í The Iron Lady, en fyrir
það hlutverk fékk hún sín þriðju
óskarsverðlaun.
Engum þarf að koma á óvart
að einn helsti styrkur Streep er
hversu vel hún fer með ólíkan
málhreim í enskri tungu og engin
tilviljun að mörg hennar þekktustu
hlutverk eru byggð á raunveru
legum persónum. Minnst hefur
verið á Margaret Thatcher og
bæta má við Juliu Child, Ethel
Rosenberg, Karen Silkwood,
Karen Blixen, Robertu Guasppari,
Lyndy Chamberlain, Susan Or
lean og nú Emmeline Pankhurst.
Að ná að leika allar þessar konur
nánast fullkomlega krefst mikillar
vinnu og Meryl Streep er orðlögð
fyrir vinnusemi og mikinn undir
búning.
bEst En Ekki launahæst
Metið sem Meryl Streep á í óskars
tilnefningum verður sjálf sagt aldrei
slegið en þótt hún sé með flestar
tilnefningar leikara á hún langt í
land með að ná tónskáldinu John
Williams í til nefningum en hann er
með 45 tilnefningar á bakinu. Svo
á hún enn eftir að jafna Katherine
Hepburn í fjölda óskarsverðlauna;
hún hlaut fern alls en Streep hefur
hlotið þrenn. Það er þó að öllum
líkindum tímaspursmál hvenær
Meryl Streep jafnar metið.
Engum þarf að koma á óvart
að hvar sem borið er niður þegar
velja á bestu og áhrifamestu kvik
myndaleikkonur allra tíma trónir
Meryl Streep á toppnum á öllum
listum. Hvað varðar tekjuhæstu
leikkonurnar þá er Streep langt á
eftir þeim tekjuhæstu enda setur
hún engar launakröfur þegar
hún velur hlutverk, tekur því sem
henni er boðið, sem eru samt
eng ar smáupphæðir. Talið er
að hún hafi í tekjur rúmar þrjár
milljónir dollara á ári þegar búið
er að borga skatta og annan
kostnað, sem er dágóð upphæð
fyrir hana og fjölskyldu hennar,
sem samanstendur af eiginmanni
hennar, myndlistarmanninum
Don Gummer, og fjórum börnum,
einum syni og þremur dætrum,
sem öll eru farin að vinna fyrir
sér. Eru tvær eldri dætur hennar,
Mamie og Grace, leikkonur sem
hafa gert það gott á síðustu árum.
Meryl Streep er dugleg að
styðja við góð málefni, má þar
nefna samtök sem stuðla að meiri
þátt töku kvenna í atvinnulífinu,
söfn sem halda á lofti störfum
kvenna, rannsóknir sem stuðla að
framförum í lyfjum gegn eyðni og
húsaskjóli fyrir heimilislausa.
mæðgur lEika saman
Af þeim tveimur kvikmyndum
með Meryl Streep sem frumsýnd
ar verða á árinu verður Ricki and
the Flash frumsýnd á undan. Þar
leikur Streep enn eina persónu
sem bætist við fjölbreytileika í
hlutverkavali og að auki fær hún
tækifæri til að leika á móti elstu
dóttur sinni, Mamie Gummer,
sem þegar hefur getið sér gott orð í
Ricki and the Flash. Meryl
Streep í hlutverki rokksöngkon
unnar Ricki Randazzo.
Barack Obama Bandaríkjaforseti
veitir Meryl Streep Presidential
Medal of Freedom við hátíðlega
athöfn í Hvíta húsinu í fyrra.
Meryl Streep ásamt dætrum sínum þremur. Myndin er tekin fyrir
einum tíu árum þegar Streep var að taka á móti einni af fjölmörg
um viðurkenningum sem hún hefur fengið í gegnum tíðina.