Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2011, Blaðsíða 10

Frjáls verslun - 01.02.2011, Blaðsíða 10
10 FRJÁLS VERSLUN 1.tbl.2011 HARpAN er tíguleg við höfnina og þar verður fyrsti tónninn sleginn bráðlega. Þetta er lang þráð tónlistar- hús fyrir unnendur óperu söngs og fagurra tóna – sem og fyrir ráðstefnur og kynningar. Í Hörpunni verður glæsilegur veitingastaður. E n Harpan kostar sitt og um það hefur verið skrifað og þrefað; 27,5 milljarða króna fullkláruð. Það er mikið fé á erfiðum tímum. Upphaflega var ráðgert að Harpan kostaði 12,5 milljarða króna – en það var á verðlagi ársins 2004. Kostnaðurinn fyrir hrunið í október 2008 var kominn í um 10 milljarða hjá fyrrverandi eigendum sem stofnuðu til verksins; þ.e. gamla Landsbankanum og Nýsi. Það var úr vöndu að ráða eftir hrun. Framkvæmdir stöðvuðust. Átti að láta verkið standa hálfkarað í áratugi á einum fjölfarnasta reit landsins í miðbæ höfuðborgarinnar eða klára það? Seinni kosturinn var valinn. Það mun kosta núverandi eigendur Hörpu 17,5 milljarða króna að klára húsið samkvæmt núverandi byggingaráætlun. Núverandi eigendur greiða fjárfestingu sína niður á 35 árum en þá verður húsið komið að fullu í þeirra eign. Þeir munu ekki greiða til rekstrar hússins. Austurhöfn hf. á Hörpu. Eigendur Austurhafnar eru ríkið með 54% og Reykjavíkurborg 46%. Ríkið er því meirihlutaeigandi. Eina eign Austurhafnar hf. eru hlutabréf í Portusi sem er með tvö dótturfélög; fasteignafélag sem byggir og á húsið og rekstr ar­ félag sem rekur það. Systurfélag Portusar er Situs. Það á lóðirnar á svæðinu í kringum Hörpu þar sem m.a. er gert ráð fyrir byggingu hótels. Áætlað er að tekjur Hörpu af tónlistar­ og ráðstefnuhaldi á fyrsta heila rekstrarárinu 2012 verði 636 milljónir króna. Á því ári er reiknað með 750 þúsund gestum í húsið. Skipting­ in er áætluð svona: Ráðstefnu­ og fundagestir verði 52.000, tón leikagestir 196.000, veislugestir 55.000, erlendir ferðamenn 275.000 og Íslendingar í öðrum erindum um 172.000. Opnunartónleikarnir í Hörpu verða þrennir tónleikar Sinfóníu­ hljómsveitar Íslands 4., 5,. og 6. maí undir stjórn Vladimirs Ashkenazys. Þegar eru bókaðir 230 tónleikar út þetta ár og 82 ráðstefnur. Þá hafa 35 annars konar viðburðir verið bókaðir í húsinu. Bygging Hörpu hófst í september 2006 en stöðvaðist í október 2008 þegar fyrri eigendur, gamli Landsbankinn og Nýsir, til­ kynntu að þeir gætu ekki staðið við skuldbindingar sínar. Framkvæmdir hófust aftur í mars 2009 af hálfu Austurhafnar. Harpan kostar sitt en hún er bæjarprýði. TexTi: Jón G. Hauksson Myndir: Geir ólafsson Harpa? Hvað kostar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.