Frjáls verslun - 01.02.2011, Blaðsíða 44
44 FRJÁLS VERSLUN 1.tbl.2011
Björn hefur vakið mikla athygli fyrir árangur sinn við stjórnun Landspítalans. Með samhentu átaki starfsmanna hefur tekist að skera niður
um 3,4 milljarða króna og herða á öllum
rekstri sjúkrahússins sem skilaði rekstrar
afgangi á síðasta ári. Það sem meira er um
vert; þetta hefur verið gert í sátt og samlyndi
við starfsmenn og samfélagið í heild.
Í erindi Björns á hátíðinni kom fram að breyt
ingarnar voru unnar eftir að yfir 1.800 starfs
menn sjúkrahússins sátu fundi og komu í
fram haldinu með tillögur um sparnað og nýjar
áherslur í rekstrinum. Fyrir vikið urðu starfs
menn irnir virkari þátttakendur í breyting unum
og betur meðvitaðir um markmið og stefnu.
Björn sagði að margir héldu að spítali
væri eins og hvert annað fyrirtæki eða iðn
aður og það ætti að vera hægt að taka til
í rekstrinum líkt og í öðrum fyrirtækjum. Það
hlyti að vera tiltölulega lítið mál og hægt að fá
viðskiptafræð inga og aðra til að sinna því.
„Ég tel að við höfum sýnt fram á að málið
er aðeins flóknara en svo,“ sagði Björn í
erindi sínu. „Hver sjúklingur sem kemur
inn um dyrnar hjá okkur á LSH getur haft
þrettán þúsund og sex hundruð mismunandi
sjúkdóms greiningar. Þessir einstaklingar geta
lent í fjögur þúsund mismunandi inngrip um
auk þess sem skráð eru sex þúsund mis mun
andi lyf. Þá spyr maður: Er einfalt mál að reka
spítala?“
Að sögn Björns stendur 1% sjúklinga
Land spítalans fyrir um 30% af kostnaði hans
og um 5% af dýrustu sjúklingunum bera um
60% af kostnaðinum. Hann sagði að í raun
og veru hefði verið byrjað að draga saman á
sjúkrahúsinu árið 2004. Það var dregið sam
an um 1,5% árið 2008 og um 79% á ári árin
2009 og 2001. Til að ná þessu hefði þurft að
fara í mjög harkalegar aðgerðir.
„Árið 2009 var skipuritinu breytt og við dreifð
um stýringunni. Við fækkuðum stjórnend um í
fyrirtækinu úr 370 niður í 180. Við lögðum mikla
áherslu á innkaupastjórnun og vörustjórnun
því gengisfall krónunnar fór mjög illa með
okkur á þessum tíma. Í lok árs 2009 vorum
við í mjög alvarlegri fjárhagsstöðu og þá
var ákveðið að fara í niðurskurð með því að
fækka starfsfólki og setja verulegar hömlur á
yfirvinnu. Við skulduðum einn og hálfan millj
arð gjaldfallinn á dráttarvöxtum, en aðrar
heilbrigðisstofnanir skulduðu okkur um átta
hundruð milljónir, svo segja má að þessar
heilbrigðisstofnanir hafi notað okkur sem
nokkurs konar banka með yfirdrátt.
Við drógum úr yfirvinnu, minnkuðum erlend
an ferðakostnað, skárum sumarafleysingar
niður um helming og drógum úr lyfjakostn
aði. Þá setti framkvæmdastjórnin sér það
markmið að fækka blóð og myndgreiningar
rannsóknum um 10%, svo blóðugt sem það
var, og ég var úthrópaður sem „vitleysing
ur“ fyrir það. Við fækkuðum starfsfólki og
rúmum sem eru opin allan sólarhringinn og
opnuðum dagdeildir í staðinn; þ.e. ákváðum
að veita þjónustuna á þeim tíma sem er
ódýr ast að veita hana.“
Björn sagði einnig frá ákvörðun um að breyta
neikvæðri umræðu, sem hafði verið á sjúkra
húsinu, í jákvæða og það hefði verið gert með
því að hafa allar ákvarðanir og um ræður uppi
á borðinu.
„Ég setti mér það sem reglu að skrifa pistil
til starfsmannanna á hverjum föstudegi og
upplýsa þá um gang mála og hvað væri eftst
á baugi. Áhersla mín var á forgangsröðun,
að hafa ferlið nógu einfalt og fylgja því eftir
sem verið væri að gera.“
Hann sagðist hafa byrjað á því að efna til
funda með starfsfólkinu, útskýra stöðuna, og
reyna að koma fólki fyrir sjónir að fjármálin
væru á ábyrgð allra og allir gætu hjálpað til,
hversu lítið eða stórt sem verkefnið væri.
„Um leið fórum við í stefnumótum þar sem
við skoðuðum umhverfið og fengum aðstoð
frá ýmsum aðilum. Þessir fundir urðu alls
sextíu og tveir og þið getið ekki ímyndað
ykkur hvað við vorum ánægðir þegar þeir
voru búnir! Þrátt fyrir að ekki væri um skyldu
mætingu að ræða komu yfir átján hundruð
starfsmenn á þessa fundi og þetta skilaði
okkur þrjú þúsund og fjögur hundruð tillög
Landspítali í skugga niðurskurðar
Björn Zoëga, forstjóri Landspítala – háskólasjúkrahúss:
Björn Zoëga, forstjóri LSH, sem hlaut verðlaun Stjórnvísi í flokki
fjármálastjórnunar, flutti erindi um breytingastjórnun á hátíðinni og
nefndist erindi hans: Breytingar! Landspítali í skugga niðurskurðar.
Björn Zoëga, forstjóri Landspítala – háskólasjúkrahúss.