Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2011, Page 10

Frjáls verslun - 01.03.2011, Page 10
10 FRJÁLS VERSLUN 3.tbl.2011 Jómfrúin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is Fundir - Móttökur - Veisluþjónusta Jó úin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is Fundir - Móttökur - Veisluþjónusta Jómfrúin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is fyrst & fremst N ý stjórn Stjórnvísi var kjörin á aðal­ fundi félagsins á dögunum. Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar, var kjörinn nýr formaður félagsins til eins árs og tók hann við af Mar­ gréti Reynisdóttur sem gegnt hefur formennskunni sl. tvö ár. Stjórnvísi er stærsta stjórnun­ arfélag á Íslandi með yfir ellefu hundruð félagsmenn sem koma frá á þriðja hundrað fyrirtækja. Það er áhugamannafélag í eigu félagsmanna og starfar ekki með fjárhagslegan ágóða í huga. Félagið er opið öllum ein staklingum og fyrirtækjum sem hafa áhuga á stjórnun – og vilja fylgjast með nýjustu stefn um og straumum í stjórnun hverju sinni. Félagið er tuttugu og fimm ára á þessu ári og hét áður Gæðastjórnunarfélag Ís lands. Kjarnastarfið fer fram í nítján faghópum um stjórnun. Mikill kraftur var í félaginu á síðasta ári. Það hélt átta ráðstefn­ ur og fluttu 135 fyrirlesarar er indi á ráðstefnum og fundum fag ­ hópa og voru gestir yfir 2.600 talsins. Eftirfarandi eru í nýrri stjórn Stjórnvísi: Jón G. Hauks­ son formaður, Einar Skúli Haf­ berg, Guðmundur S. Pétursson, Hrefna Briem, Sigríður Þrúður Stefánsdóttir, Einars S. Einars­ son og Teitur Guðmundsson. Varamenn í stjórn eru Agnes Gunnarsdóttir og Fjóla María Ágústsdóttir. Framkvæmdastjóri Stjórnvísi er Gunnhildur Arnardóttir. Vel á fimmta tug fyrirtækja bauð félögum í Stjórnvísi að halda fundi hjá sér og tók á móti um 2.400 gestum sem sóttu þessi fyrir tæki heim vegna fyrir lestra. Ný stjórn Stjórnvísi Stjórnvísi er stærsta stjórnunarfélag á Íslandi með yfir ellefu hundruð félagsmenn sem koma frá á þriðja hundrað fyrirtækja. Myndir: Geir Ólafsson Ný stjórn Stjórnvísi ásamt varamönnum: Teitur Guðmundsson, Hrefna Briem, Einar Skúli Hafberg, Agnes Gunnarsdóttir, Guðmundur S. Pétursson, Sigríður Þrúður Stefánsdóttir, Jón G. Hauksson, Fjóla María Ágústsdóttir og Einar S. Einarsson. Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmda stjóri Stjórnvísi. Jón G. Hauksson, nýr formaður Stjórnvísi. Stjórnvísi er stærsta stjórn un arfélag á Ís landi með yfir ell efu hund ruð félags menn. Sérlausnir bmvalla.is BM Vallá hefur verið í fararbroddi í framleiðslu fyrir íslenskan byggingavörumarkað í 65 ár. BM Vallá er þekkingar- og þjónustufyrirtæki með áratuga reynslu Þegar velja á byggingaraðferðir og efni í mannvirki sem standast eiga tímans tönn verður steypa oftast fyrir valinu. Hún þolir mikið álag og tryggir traustan grunn. Byggingarefni frá BM Vallá eru sérhönnuð fyrir íslenskar aðstæður og búin til úr íslensku hráefni. Mikil reynsla og sérþekking innan fyrirtækisins skipar því í fremstu röð framleiðslufyrirtækja í byggingariðnaði á Íslandi. BM Vallá framleiddi alla hefðbundna steypu og svarta steypu í tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu, samtals um 55.000 rúmmetra. Auk þess eru í byggingunni múrefni, flotefni, hellur og sérhannaður boltagrautur fyrir bergfestur frá fyrirtækinu. Steypuframleiðslan hjá BM Vallá er ISO 9001 gæðavottuð. Ekki slá af kröfum þínum, veldu gæði og endingu. BM Vallá ehf Bíldshöfða 7 110 Reykjavík Sími: 412 5000 Fax: 412 5001 sala@bmvalla.is fyrir sérstakar aðstæður PIPA R \ TBW A • SÍA • 111155

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.