Frjáls verslun - 01.03.2011, Blaðsíða 13
FRJÁLS VERSLUN 3.tbl.2011 13
fyrst & frEmst
S
igrún Lilja Guð jóns
dóttir lauk stúdents
prófi af viðskipta
og hagfræðibraut
og hóf síðan vinnu í
fjölskyldufyrir tækinu Tanna þar
sem hún vann í nokkur ár. Þá
hefur hún sótt ýmis nám skeið
og er með diplóma í fjöl miðla
fræði frá Háskóla Íslands.
Hún fór ung að hanna og
sauma á sig föt og prófaði fyrir
nokkr um árum að hanna á
sig skó og tösku. Hún fékk þá
hug mynd í kjölfarið að stofna
fyrirtæki í kringum framleiðslu á
skóm og fylgihlutum úr leðri.
„Ég vildi hafa yfirbygging una
litla og prófa vöruna á mark
aðnum áður en ég færi út í
frek ari skuldbindingar. Þetta var
árið 2007 og á þeim tíma var
þrýst ingur á mig að taka lán en
mér fannst það ekki spennandi
kostur. Einhverra hluta vegna
vildi ég sem betur fer fara þá
leið að skuldsetja mig ekki heldur
leyfa fyrirtækinu að byggja sig
upp sjálft en frá byrjun hef ég
tekið lítið utanaðkomandi fjár
magn. Ég setti mína peninga í
þetta, við höfum reynt að passa
upp á í hvað er eytt, reynt að
vera útsjónarsöm í fjármálum
og það hefur hjálpað til. Ég
er tiltölulega nýfarin að vera á
launum og það má segja að
þetta sé í raun nýfarið að verða
alvörufyrirtæki.“
Undirbjó sig vel
Sigrún Lilja byrjaði á að fara
í verkefnið Brautargengi hjá
Impru hjá Nýsköpunarmiðstöð
Íslands. Um er að ræða nám
skeið fyrir konur sem vilja m.a.
hrinda viðskiptahugmynd í
fram kvæmd. „Það hjálpaði mér
að byggja upp sjálfstraustið
og þora að taka af skarið. Ég
er búin að komast að því að
maður þarf ekki að vita alla
leiðina hvernig maður ætlar að
fara að hlutunum; það mikilvæg
asta er að vera með ákveðin
markmið.“
Sigrún Lilja ákvað strax að
framleiðslan yrði líka seld á
erl endum markaði. „Ástæðurnar
fyrir því eru tvær. Ég leyfi mér að
hugsa stórt og er draumóramann
eskja og þegar framleitt er
erlendis þarf magnið að vera
fyrir hendi. Íslenski markaðurinn
er því miður mjög lítill og hann
dugar ekki í slíkt. Ég fór í verk
efni hjá Útflutningsráði sem
heitir Útflutningsaukning og
hag vöxtur. Þar fær maður til liðs
við sig ráðgjafa og nemendur í
meist aranámi í alþjóðaviðskipt
um við Háskóla Íslands. Við
unnum saman að því að gera
útflutningsáætlun og skoðuðum
markaði. Þetta hjálpaði mér
líka. Ég var ekkert að tvínóna
við hlutina og ári eftir að ég
stofnaði Gyðju var ég komin til
Los Angeles og farin á fyrstu
vörusýninguna.“
Yfirstíganlegar hindranir
Þær hafa verið nokkrar hindran
irnar á leiðinni og stundum
hefur Sigrún Lilja verið við það
að gefast upp. „Ég hef reynt
að temja mér að líta ekki á
þetta sem hindranir heldur sem
verkefni sem þarf að leysa. Mér
finnst nánast hvaða hindrun sem
er vera yfirstíganleg. Fyrsta
hind r unin var að finna góðan
framleiðanda. Það var erfitt því
ég vildi framleiða í litlu magni,
mjög góða vöru og fyrir eðlilegar
upp hæðir. Það reyndist mér erfi ð
ast að yfirstíga og það tók mig tvö
ár. Fylgihlutirnir eru framleiddir í
Kína og nú er ég að skoða fleiri
staði fyrir framleiðsluna. Ég tók
eitt skref í einu og hélt áfram.“
Það hafði líka mikið að segja
þegar leikkonan Aníta Briem fór
að ganga í skóm og vera með
fylgihluti frá Gyðju, m.a. á rauða
dreglinum. Erlendur dreifingar
aðili Gyðju komst í samband við
stílista Paris Hilton og í kjöl
farið fór hún að nota vörur frá
fyrirtækinu. Á meðal fleiri frægra
kvenna sem eiga vörur frá Gyðju
má nefna Carmen Electra og
Beyoncé.
Þrautseigja og metnaður
Gyðja er með dreifingaraðila í
Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakk
landi og SuðurAfríku. Búið er að
opna söluskrifstofu í Miami en
þar eru tveir starfsmenn í fullu
starfi og nokkrir verktakar. Hér á
landi eru tveir starfsmenn í fullu
starfi auk fjármálastjóra og von
er á nýjum starfsmanni í vor.
„Ég hef yfirbygginguna ennþá
eins litla og hægt er til að halda
föstum kostnaði í lágmarki.“
Sigrún Lilja segir að mikill
á hugi sé fyrir ilmvatninu í
Evrópu og þar sé líka verið
að herja á markaði. „Fókusinn
hefur alltaf verið á Bandaríkin
vegna þess að við tókum þá
stefnu í byrjun. Það er erfitt að
komast inn á þann markað en
við teljum að möguleikar okkar
þar séu góðir.“ Sigrún Lilja segir
að draumur inn sé að Gyðja verði
alþjóð legt, stórt og þekkt lífsstíls
merki í framtíðinni og hún segist
ætla að vinna hörðum höndum
að því.
Sigrúnu Lilju bauðst að skrifa
kafla í bókinni The Next Big
Thing sem kom út fyrir stuttu
og komst á metsölulista hjá
amazon.com sólarhring eftir að
hún fór í sölu. Í bókinni er m.a.
fjallað um hvað hægt er að gera
í núverandi efnahagsástandi til
að fyrirtæki plumi sig en þeim
sem stóðu að útgáfu bókarinn
ar fannst áhugavert að Sigrún
Lilja skyldi ekki taka nein lán í
byrjun og hvernig henni hefur
tekist að halda yfirbyggingunni
á fyrirtækinu lítilli.
„Allt svona hefur jákvæð áhrif í
för með sér bæði fyrir Gyðju og
mig sjálfa. Ég geri ráð fyrir að
þetta muni hjálpa mér að auka
trúverðugleika minn og hjálpa
mér að koma fyrirtækinu á fram
færi í Bandaríkjunum.“
Hún segir nauðsynlegt að hafa
þrautseigju og vera metnaða r
fullur við uppbyggingu og rekstur
fyrirtækis. „Þetta er blóð, sviti
og tár, því verður ekki logið, en
ég hef haft þessa ástríðu sem
hefur komið mér á þann stað
sem ég er á í dag.“
Eitt skref í einu
Gyðja Collection:
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir stofnaði Gyðja
Collect ion árið 2007 en fyrirtækið framleiðir skó,
fylgihluti og ilm vatn. Í dag er fyrirtækið komið með
dreifingaraðila víða um heim og kvikmyndastjörnur
hafa skartað hönnun inni á rauða dreglinum.
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir. „Fókusinn hefur alltaf verið á Bandaríkin vegna þess
að við tókum þá stefnu í byrjun. Það er erfitt að komast inn á þann markað en
við teljum að möguleikar okkar þar séu góðir.“