Frjáls verslun - 01.03.2011, Blaðsíða 82
82 FRJÁLS VERSLUN 3.tbl.2011
stærstu steypur íslandssög-
unnar litu dagsins ljós
Þar sem tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa er að nokkru leyti und ir
sjávarmáli þurfti að sérhanna lausnir við bygginguna. Að sögn Hilm-
ars Ágústssonar framkvæmdastjóra þróaði BM Vallá sérstakan bolta-
graut til að festa niður akkeri ofan í bergið undir sjávarmáli.
Akkerin eru notuð til að halda Hörp unni niðri svo hús ið fljóti ekki upp. Við
fram leiddum einnig alla steyp
una í tónlistarhúsið og auk þess
er í byggingunni múr, flotefni
og svört steypa frá fyrirtækinu.
Í steypuframleiðsl unni voru
ítrekað slegin fram leiðslumet
og stærstu steypur Íslandssög
unnar litu þar dagsins ljós.“
Steypa fyrir séríslenskar
aðstæður
Hilmar segir steinsteypuna
vera byggingarefni Íslendinga,
hún hafi verið bylting í húsagerð
hér á landi og hafi mun meiri
þýðingu fyrir Ís lendinga en flest
ar aðrar þjóð ir. Íslenska veður
farið sé of harkalegt fyrir flest
byggingarefni: „Þess vegna
þurfa þeir sem framleiða fyrir
íslenskan markað að gera vöru
sína sérstaklega veðurþolna,
annars skemmist hún og moln
ar niður á stuttum tíma. Það
krefst mikillar sérfræðiþekk
ingar og reynslu að framleiða
fyrir þær aðstæður sem eru á
Íslandi, ef vanda skal til verka.
BM Vallá stendur nú vel þrátt
fyrir erfitt árferði. Til að mæta
breyttu viðskiptaumhverfi
hefur aukin áhersla verið lögð
á vöruþróun og útflutning á
nýjum vörum í gegnum er
l enda samstarfsaðila. Sú vinna
gengur vel og er þegar farin að
skila góðum árangri. Við erum
þjónustu og þekkingarfyrirtæki
sem leggur aukna áherslu á
vöru þróun og útflutning.“
Bjartsýnn fyrir hönd Hörpunnar
Hilmar segir flest benda til þess
að á árinu 2011 sé botninum
náð í íslenskum byggingar iðn
aði, spurning sé helst hversu
hröð umskiptin verði. Framund
an á næstu árum sé töluverð
uppbygging og fjárfesting.
„Við hjá BM Vallá höfum ein
sett okkur að nýta tímann vel,
bæta tækni og verklag, auka
vöruþróun og útflutning og
skipuleggja okkur fyrir átökin
framundan. Við erum bjartsýn
á framtíðina, bæði hjá okkur
og Hörpunni,“ segir Hilmar að
lokum.
Hilmar segir stein
steypuna vera bygg
ingarefni Íslendinga.
Hilmar Ágústsson, framkvæmda
stjóri BM Vallár.
Helgason ehf.
BM Vallá þróar nýjungar fyrir Hörpuna
Stefán Ari Helgason, framkvæmdastjóri steinsmiðjunnar S. Helgason: „Fyrirtækið okkar framleiddi
gólfflísar í Hörpuna en þær eru
unnar úr íslensku blágrýti, nánar
tiltekið stuðlabergi. Hráefnið
kem ur allt austan úr Hrepphól
um í Hrunamannahreppi. Í
öðrum verkum höfum við einnig
unnið með erlendar steinteg
undir sem oftast eru þá granít
og marmari sem fluttar eru inn
m.a. frá Miðjarðarhafslöndum,
Norðurlöndum og Kína.“
Mikil lyftistöng fyrir
menningarlífið
Hvernig hefur vinnan gengið?
„Vinna við verkið hefur gengið
mjög vel enda hefur S. Helgason
mikla reynslu af framleiðslu á
flísum úr íslensku grjóti. Félagið
hefur unnið stór verk í fram
leiðslu á flísum, t.d. Flugstöð
Leifs Eiríkssonar, þótt ekkert
jafnist á við þetta verkefni. Þetta
verk var að okkar mati mjög
áhugavert enda áberandi og
merkileg bygging.“
Sérðu Hörpuna slá í gegn?
„Harpan mun án efa slá í
gegn. Enda þessi aðstaða mikil
lyftistöng fyrir bæði menningar
líf okkar og ekki síður fyrir
ferðaþjónustuna.“
„Fyrirtækið okk ar
framleiddi gólfflísar
í Hörpuna.“
Hráefnið austan úr Hrunamannahreppi
Fyrirtækið S. Helgason var stofnað árið 1953 og því byggt á gömlum og traustum grunni.
Starfsemin felst í rekstri á steinsmiðju til almennra steinsmiðjuverka. Með hvaða hætti kemur
S. Helgason að Hörpunni?
S. Helgason ehf.
Stefán Ari Helgason
framkvæmda stjóri.