Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2011, Side 55

Frjáls verslun - 01.03.2011, Side 55
FRJÁLS VERSLUN 3.tbl.2011 55 Benja er ekki fylgiskona kynjakvóta sem slíkra. Hún segir á hinn bóginn að reynsla Dana af almennum tilmælum sjórnvalda til fyrirtækja um að auka hluta kvenna í stjórn­ um sé slæm. Eigendur félaganna hlusti ekki á tilmælin. „Tilmæli af þessu tagi hafa í besta falli eng in áhrif, hugsanlega eru þau til ills,“ segir Benja og styður kvótalög sem aðferð til að koma þróun af stað. En kvótalög eru ekki markmið í sjálfu sér að hennar mati. spurning um pólitík Mari Teigen leggur með sama hætti áherslu á að kvótalög séu pólitík. Þau byggist á pólitískum vilja til að auka hlut kvenna vegna þess að það virðist ekki gerast með frjálsum ákvörðunum eigenda hlutafélag­ anna. Grundvallarspurning í þessum fræðum er þó: Af hverju mega eigendur hlutafé­ laga ekki ráða því sjálfir hverja þeir setja í stjórn? Og hin eðlilega regla er að sæti í stjórn ráðist af eignarhlutföllum í félaginu en ekki af kyni. Svarið liggur í stefnu stjórnvalda um að auka hlut kvenna. Það má líka snúa spurningunni við og spyrja: Af hverju láta eigendur félag­ anna þessa stjórnarstefnu yfir sig ganga? Í Noregi féllust hlutafjáreigndur á kvótalögin mög lunarlítið. Norsk samtök atvinnulífsins – NHO – lýstu sig í „prinsippinu á móti“ eins og það hét en unnu engu að síður að framgangi kvótalaganna í reynd. aðstæður í noregi sérstakar „Meðal annarra þjóða, sem hafa tekið upp norsku kvótalögin, gleymist oft að að stæður voru og eru sérstakar í Noregi,“ segir Mari Teigen. „Þess vegna gekk fram ­ kvæmd laganna snurðulaust fyrir sig þar. Andstaðan gæti verið miklu sterkari í öðr ­ um löndum.“ Með hinum sérstöku aðstæðum í Noregi á Mari við að þegar umræðan um lögin stóð sem hæst var verið að hlutafélaga­ væða mörg ríkisfyrirtæki. Þar hafði hlutur kvenna verið stór. Vilji var til að þessi hlutur héldist þótt félögin væru skráð í kauphöll og að eitt skyldi yfir öll félög í kauphöllinni ganga. Norska ríkið er langstærsti eigandi hlutafjár í Noregi og því einfaldara þar en í öðrum nálægum löndum að koma á kynja kvóta. „Þetta eru sérstakar aðstæður sem skýra bæði af hverju Norðmenn voru fyrstir til að koma á kynjakvóta og að framkvæmdin sætti ekki umtalsverðri andstöðu,“ segir Mari og við þetta bættist að kynjakvótar voru þá þegar komnir á við val á frambjóð­ endum stjórnmálaflokkanna. nær allir forstjórar karlar En hver er svo reynsla Norðmanna af kvóta lögunum? Jú, hlutur kvenna í kjörn­ um stjórnum hlutafélaga, annarra en einka hlutafélaga, er um það bil 40%. Það var markmiðið. Vonin var að hlutur kvenna í atvinnulíf­ inu myndi aukast að sama skapi. Það hefur ekki gerst. Konum hefur ekki fjölgað í æðstu stjórnunarstöðum. Mari segir að núna séu karlar 98% for­ stjóra í þeim 500 hlutafélögum sem kvóta­ lögin ná til – hlutur kvenna er 2% eins og var. Og hlutur kvenna í starfandi stjórnum þessara félaga er 10%, aðeins lakari en áður og lakari en á Íslandi. „Þetta eru vonbrigði og ég hef ekki á reið­ um höndum skýringu á af hverju áhrifin utan kjörinna stjórna eru svo lítil,“ segir Mari. „Hugsanlega eru vænlegir kven­ stjórn endur enn í stöðum millistjórnenda og eiga eftir að vinna sig upp. Þær eru í það minnsta ekki komar á toppinn þrátt fyrir kvótalög.“ konur verða að berjast Benja Stig segir að það sé kvenna að taka næsta skref. Þær verði sjálfar að berjast um toppstöðurnar og hætta að halda sig til hlés. „Konur hika við að takast á við erfið verkefni, karlar eru hiklausari óháð hæfi­ leikum og getu,“ segir Benja. „Ákveðnar konur eru kallaðar „frekjur“ en ákveðnir karlar „miklir stjórnendur“. Þessu þurfa konur sjálfar að breyta.“ Mari segir að kvótalögin hafi þó haft áhrif á rekstur fyrirtækjanna þótt áhrifin á æðstu stjórn þeirra hafi ekki komið fram. Því var spáð að kjörnar stjórnir myndu glata þýðingu sinni með kvótalögunum; að stjórnin yrði að máttlausum kjafta­ klúbbi en eigendur hlutafjár tryggðu áhrif sín gegnum forstjóra og deildarstjóra í fyrirtækinu. Því var líka spáð að félögin yrðu afskráð til að sleppa við kvótalögin. Þessar hrakspár hafa ekki ræst. Rannsóknir sýna einnig að starfið í stjórn­ unum er orðið faglegra og markvissara en áður. Þar er rætt um stefnu félagsins og um ímynd fyrirtækisins. Umræður um mikilvægar ákvarðanir eru ítarlegri en áður og allt fært til bókar. Eftir stendur þó sú þversögn að konur stjórn um hlutafélaga hafa ekki náð að koma konum í æðstu stjórnunarstöður fyrir ­ tækja nna. kynjakvótar Benja Stig Fagerland: „Tilmæli af þessu tagi hafa í besta falli engin áhrif, hugs­ anlega eru þau til ills.“ Áhrifin önnur en ætlast var til Benja Stig Fagerland undirbýr konur fyrir stjórnar­ setu og fyrirtækin fyrir kvennastjórn. Dr. Mari Teigen hefur rannskað áhrif norsku lag­ anna um kynjakvóta. Dr. Mari Teigen: „Meðal annarra þjóða, sem hafa tekið upp norsku kvótalögin, gleymist oft að aðstæður voru og eru sérstak­ ar í Noregi.“

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.