Frjáls verslun - 01.03.2011, Síða 79
FRJÁLS VERSLUN 3.tbl.2011 79
www.efla. is • Í S L A N D • D U B A I • F R A K K L A N D • N O R E G U R • P Ó L L A N D • R Ú S S L A N D • T Y R K L A N D
Hönnunar- og framkvæmdaeftirlit við
byggingu Hörpunnar var í umsjá EFLU.
EFLA verkfræðistofa
stillir saman strengi
Hver salur í Hörpu er algjör
lega sjálfstæð hljómeining, að
sögn tónlistarstjórans. „Á milli
tveggja alveg samliggjandi sala
eru tvöfaldar dyr með algjörri
hljóðeinangrun á milli. Þótt
rokkband sé með tónleika í
öðrum salnum og sólógítartón
leikar í hinum á ekkert að heyr
ast á milli. Sérstök hönnun gerir
það einnig að verkum að ekkert
mun heyrast í stórum flugvél
um sem fljúga yfir húsið.“
Með gleðitár í augum
Steinunn Birna segir það skilj
anlegt að gleðitár hafi sést í
augum margra hljóðfæraleik
aranna úr Sinfóníuhljómsveit
Íslands þegar þeir komu til að
skoða framtíðarhúsakynni sín.
„Að spila í Háskólabíói er einna
líkast því að reyna að syngja
með bundið fyrir munninn. Við
teljum okkur vera liðtæka menn
ingarþjóð en helstu menningar
stofnanir okkar hafa þurft að
spila og syngja í bíóhúsum með
mjög misjöfnum hljómburði.
Það er mörgum óskiljanlegt að
þær skuli ekki hafa gefist upp
fyrir löngu. En kannski hefur
þetta verið ákveðin herðing og
Sinfóníuhljóm sveitin hugsan
lega orðið betri fyrir vikið. Við
vitum að góður hljóðfæraleik
ari getur spilað vel á slæmt
hljóðfæri ef hann hefur í sér
neistann og það hefur Sinfóníu
hljómsveitin svo sann arlega.“
Íslenska óperan, sem hefur
haft aðsetur í Gamla bíói, mun
einnig flytja í Hörpu þótt húsið
hafi ekki verið hannað með
óperuflutning í huga. „Nútíma
tækni býður upp á möguleika
til að gera hlutina þannig að
vel fari þótt Harpa búi ekki að
öllu leyti yfir kjöraðstæðum til
óperuflutnings. Það er okk
ar verkefni að leysa og það
munum við líka gera,“ segir
Steinunn Birna.
Bókaðir hafa verið á þriðja
hundrað tónlistarviðburðir í
Hörpu út þetta ár og á annað
hundrað ráðstefnur og aðrir
viðburðir. „Það er búið að bóka
ráðstefnur fram á árið 2015 og
tónlistarviðburði langt fram á
næsta ár þannig að við höfum
ástæðu til að vera bjartsýn.“
Steinunn Birna segir að þótt
eðlilegt sé að svona stórfram
kvæmdir eins og bygging
tónlistar og ráðstefnuhúss
ins séu umdeildar megi ekki
gleyma tækifærunum. „Það
er gott að umræðan sé virk en
það er ekki bara hægt að tala
um kostnað. Þetta eru gríðarleg
verðmæti fyrir þjóðina í svo
mörgum skilningi. Það er ekki
bara fjárhagslegi ávinning ur
inn sem verður strax til með
starfseminni sem þarna verður
og þeim mikla áhuga sem fólk
hefur á húsinu, heldur líka
menningarverðmætin sem eru
ómetanleg til fjár.“
Aukin ferðamennska
Hún bendir á að hjá öðrum
þjóðum sem reist hafi svona
hús hafi ferðamennskan aukist
í heildina og sérstaklega mikið
að vetri til þar sem um menn
ingartengda ferðaþjónustu sé
að ræða. „Fólk er hrætt um að
við tökum frá því alla viðburði
og ráðstefnur en það má ekki
gleyma því að við erum að
stækka kökuna til muna og það
verður öllum til hagsbóta. Við
vitum að hluti af þeim alþjóð
legu ráðstefnum, sem búnar eru
að bóka sig hjá okkur, myndi
annars ekki koma til landsins.
Það hafa ýmsir aðilar þá vinn
u reglu að ráðstefna á þeirra
vegum verði að vera í þar til
gerðum ráðstefnuhúsum. Þetta
er mikilvægt að hafa í huga.
Auðvitað skilur maður ótta
fólks við að Harpa taki starf
semi frá öðrum en það verða
áfram tónleikar og ráðstefnur
annars staðar og það sama gild
ir um veitingastaði og veislur.
Eftirspurnin mun aukast, bæði
innanlands og að utan, og allir
njóta góðs af.“
„Að spila í Háskóla
bíói er einna líkast því
að reyna að syngja
með bundið fyrir
munninn. “