Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2010, Page 47

Frjáls verslun - 01.02.2010, Page 47
F R J Á L S V E R S L U N • 2 T B L . 2 0 1 0 47 n æ r m y n d a F G u ð B j Ö r G u m a t t H í a s d ó t t u r Guðbjörg er ekkja eftir Sigurð Einarsson, forstjóra Ísfé- lagsins í Vestmannaeyjum og þá tengdadóttir Einars „ríka“ Sigurðssonar, eins frægasta útgerðarmanns á Íslandi. Við lát manns síns árið 2000 fór Guðbjög frá kennarapúltinu og að stjórn fyrirtækisins, óundirbúin að því er virtist. Þeir sem best þekkja til segja að svo hafi ekki verið því hún hafi ætíð fylgst náið með því sem var að gerast í fyrirtækjunum. Glitnisbréfin Það var þó í hruni íslensku bankanna haustið 2008 sem nafn Guðbjargar Matthíasdóttur komst á allra varir. Auðvitað vissu flestir um hana áður; höfðu heyrt ríku Eyjakon- unnar getið, en með hruninu lenti hún um tíma í hringiðu umræðunnar – en þar vill hún síst af öllu vera. Það var salan á Glitnisbréfunum „korteri fyrir hrun“ eins og það heitir, sem vakti athygli og fjölmiðlar hafa fjallað tals- vert um. Bréfin voru seld síðasta virka dag áður en þau urðu verðlaus 6. október 2008. Þótt þessi viðskipti hafi verið rakin ítarlega í fjölmiðlum virðast engin eftirmál sjáanleg. Það er óumdeilt að Guðbjörg hafði rétt til að innleysa þessi bréf einmitt á þeim tíma sem það var gert. Það var bundið í kaupsamningi við FL Group þegar það félag keypti hlut hennar í Tryggingamiðstöðinni og greiddi fyrir að hluta með bréfum í Glitni. arfurinn frá einari „ríka“ Guðbjörg ávaxtar það fé sem upphaflega varð til í umsvifa- miklum og fjölþættum rekstri Einars „ríka“ Sigurðssonar, tengdaföður hennar. Einar var frá því á stríðsárunum síðari meðal umsvifamestu útgerðarmanna landsins, eigandi Hrað- frystistöðvanna í Eyjum og í Reykjavík og fleiri frystihúsa og skipa; einn stofnenda Sölumiðstöðvar Hraðfrystihúsanna og á meðal stofnenda Tryggingamiðstöðvarinnar. Árið 1991 var Hraðfrystistöðin sameinuð Ísfélagi Vest- mannaeyja undir nafni Ísfélagsins. Bergur Huginn var raunar inni í því dæmi til að byrja með en Magnús Kristinsson dró sig út úr því með hluta af útgerðinni. Við útgerðarþáttinn bættist svo Hraðfrystistöð Þórs- hafnar með skipum árið 2007, en inni í þeim pakka er einnig fiskimjölsverksmiðja og frystihús á Þórshöfn – sem og eign í fiskmarkaðnum á staðnum. Ísfélag Vestmannaeyja er bakbeinið í umsvifum Guðbjargar en stærstu hluti eigna hennar er hins vegar í fjárfestingarfélaginu Kristni. Ísfélag Vestmannaeyja er með tvö nótaskip í smíðum í Chile en þau skip voru í fréttum nýlega vegna jarðskjalftans mikla þar í landi. Hér skrifar hún undir samning um smíði skipanna.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.