Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2010, Side 65

Frjáls verslun - 01.02.2010, Side 65
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 1 0 65 þá líka að oftar en ekki fylgir hamingjan ekki í kjölfar áfanga, árang- urs eða sigra af slíku tagi. Eins klisjukennt og það hljómar þá býr hamingjan innra með okkur og við getum með nokkuð einföldum hætti aukið hana. Þeir sem það vilja ættu að lesa þessa bók og gera æfingarnar sem í henni eru. Í því neikvæða umhverfi sem við búum við í dag er nauðsynlegt að sporna við fótum og leita leiða til að snúa neikvæðninni í jákvæðni, án þess þó að missa sjónar á vandamálunum eða firra sig ábyrgð. Það er einmitt það sem höfundi tekst vel að leiðbeina lesandanum með. Bókin ætti því að vera skyldulesning innan fyrirtækja til að auka starfsánægju og afköst starfsmanna og um leið auka hamingj- una innan veggja heimilanna í landinu. Bókin á því sérstaklega mikið erindi á Íslandi í dag eða eins og höfundur segir sjálfur: „Erfiðir tímar geta sundrað okkur en þeir geta líka gert okkur sterkari. Rannsóknir í jákvæðri sálfræði og tengdum greinum hafa sýnt fram á hvernig hægt er að komast í gegnum slík tímabil og rísa upp úr þeim sterkari en fyrr. Von mín er að mér takist að kynna sem flestum rannsóknirnar, tólin og tækin sem gera sem flestum kleift að nýta sér þau til að sigrast á erfiðum aðstæðum.“ B Æ k u r Sex hamingjuráð frá tal Ben-Sahar Á heimasíðu sinni (http://www.talbenshahar.com/) setur höfundur fram góð ráð sem byggð eru á hugmyndum úr bókinni. Leyfðu þér að vera mannleg(ur) – það kann ekki góðri • lukku að stýra að afneita neikvæðum tilfinningum eða hugsunum. Með því að takast á við tilfinningar okkar erum við að auka líkur á að við komumst yfir þær. Hætta á vonleysi og óhamingju eykst með því að afneita sárum tilfinningum. Hamingjan felst í athöfnum sem hafa merkingu og við • höfum ánægju af. Við þurfum hins vegar að gera fleira en gott þykir og þegar við sjáum ekki merkingu eða njótum þess sem við sýslum við verðum við að tryggja að við getum leitað í hamingjuhvata sem veita okkur ánægju og merkingu. Hamingja er að mestu háð hugarstandinu, ekki stöðu • okkar í þjóðfélaginu eða innistæðu bankareikningsins. Hún er sömuleiðis háð því hvort við sjáum glasið hálf- fullt eða hálftómt. Lítum við á mistök sem hamfarir eða tækifæri til vaxtar? Einblínum við á það sem miður fer í lífi okkar eða það sem vel gengur? Einfaldaðu! Við höfum jafnan of mikið að gera, erum með • of mjörg járn í eldinum. Magn getur haft neikvæð áhrif á gæði og við hættum hamingjunni með því að reyna að gera of margt. Gleymdu ekki líkamlega þættinum. Líkamsástand sem • markast af þáttum eins og hreyfingu, mataræði og svefni hafa áhrif á andlega heilsu. Sýndu þakklæti. Okkur hættir til að taka lífi okkar og • fólkinu í kringum okkar sem sjálfsögðum hlut. Temjum okkur að meta það sem lífið hefur upp á að bjóða og þakka fyrir það. tal Ben-Sahar á Íslandi Laugardaginn 27. mars 2010 hélt tal Ben-Sahar fyr- irlestur Í Háskólabíói. Þetta var einstakt tækifæri til að hlusta á mann sem hefur haldið vinsælasta nám- skeið sem boðið hefur verið í Harvardháskóla. Tal Ben-Shahar.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.